Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 16
14
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
vel við að draga hann inn og ég
var rígmontinn með hann og þá
gleymdi ég allri sjóveiki. Þá þurfti
að blóðga fiskinn og ég gerði bara
eins og karlarnir og bar mig að
eins og þeir gerðu. Síðar var gert
að fiskinum og hann flattur, þveg-
inn og saltaður niður í lest. Það
þurfti svo að umstafla fiskinum í
lestinni eftir nokkra daga og lent-
um við nafnarnir oft í því verki.
Hver sjómaður hafði sitt
„mark“ svo að hægt var að vita
hvað hver átti af fiskinum þegar
honum var landað eftir hverja
veiðiferð. Hver veiðferð tók um
hálfan mánuð. Þegar komið var í
land eftir hér um bil hálfan mán-
uð þá var fiskinum landað og sett
í hrúgur og sorteraður eftir því
marki sem hver og einn sjómaður
hafði. Eg hafði það mark sem
kallað var bananfjöður og hafði
það alla tíð nema eitt ár, en þá var
ég á öðrum kútter. Ekki man ég
hvað ég fékk útborgað því pabbi
heitinn sá um þá hlið málsins.
Meðan stoppað var í landi og
skipið gert ldárt fyrir næsta túr þá
fórum við nafnarnir í skoðunar-
ferð um plássið og meðal annars á
reitinn þar sem konur voru að
breiða fisk til þerris. Ég varð
mjög feiminn, enda feiminn að
eðlisfari, þegar reitarkonurnar
fóru að snussa í mann og spyrja
um það hvað ég væri gamall og
hvort það væri virkilegt að ég væri
háseti á Haffrúnni. Ég varð að
játa því eins og satt var enda voru
þær aldeilis hissa á þessu öllu sam-
an. Eina vísu fékk ég frá skipsfé-
laga mínurn á kútternum og hún
er svona:
Veiðiskapinn verðskuldar
vakir flestum lengur,
Bjarni sonur Sveinbjarnar,
sómaríkur drengur.
Nú var allt tilbúið í næstu veiði-
ferð og þannig gekk sumarvertíð-
in fyrir sig fram í ágústbyrjun. Þá
var haldið heim og það voru góð-
ar móttökur sem við pabbi feng-
um. Ég þóttist nú vera orðinn
fullgildur sjómaður.“
Bjarni stundaði sjómennsku í
tæp 50 ár samfellt. Tíu ára varð
hann fullgildur háseti. Bjarni var
á kútterum næstu ár á sumarver-
tíðum eða þar til hann fermdist
1930 á hvítasunnudag en eftir það
allt árið. Árið 1929 þann 29. nóv.
drukknar Sveinbjörn, faðir
Bjarna, þegar m/b Baldur fórst við
Mávahlíðarhelluna í Fróðár-
hreppi. Á þessum tæpum 50
árum stundaði Bjarni sjómennsku
við allar þær veiðiaðferðir sem þá
voru til. Eftir að sjómennsku lauk
gerðist hann hafnarvörður í
Stykkishólmi og hætti því starfi
þegar hann varð 70 ára.
Þau Bjarni og Anna, kona hans,
senda öllum sjómönnum á Snæ-
fellsnesi hamingjuóskir á sjó-
mannadaginn.
&s/ium sjómö/t/tu/n oíyJ^ö/s/uj/c/um/>ei/HHí
tr//uimizigyu meo c/cuyr/izi f
léffir þér lífið
Svalþúfa ehf.
VERSLUNIN
BLÓMSTURVELLIR
HELLISSANDI
S: 436 6655
(>
brimborg
Sími 55 10 500
http://fiskifelag.is
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
Netagerð Aðalsteins ehf.
Norðurgarði 1 • 355 Ólafsvík • Sími: 436 1544
í _7_ SKIPASMÍÐASTÖÐ J ÞORGEIRS OG ELLERTS /r\ sími 431 4611 (S^afjinn Bakkatúni 26 - Akranesi - s 430 2000 - Fax: 430 2001 E-mail: skaginn@skaginn.is - www.skaginn.is TOPPFISKUR Fiskislóð 115a Símar: 552 8959 562 1344