Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 19

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 19
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 17 Framtíðin er í okkar höndum Viðtal við Sævar Friðþjófsson í Rifi Oft ber á góma gerð hafnarinnar í Rifi og útgerðin sem jókst svo mjög við byggingu hennar sem gerði það verkum að Rif byggðist upp sem þorp. Sævar Friðþjófs- son skipstjóri og útvegsbóndi í Rifi er manna best kunnugur sögu útgerðarinnar og kemur margt fróðlegt frám í viðtali sem Sjómannadagsblaðið tók við hann. Hann hefúr róið úr Rifs- höfn frá því hún var tekin í notkun árið 1955. Sæv- ar hóf sinn skipstjóraferil árið 1961 á Hamri SH 224. Þó hann hafi stund- aði sjómennsku í langan tíma hefúr hann aldrei gleymt því sem hann ólst upp við hjá foreldrum sín- um en hann er fæddur í Rifi og er næstelstur af fjórum systkinum, nú 67 ára gamall. Sævar er sannkallaður útvegsbóndi eins langt og það orð nær því hann er með talsvert af kindum sem hann stundar af mikilli alúð og metnaðurinn er mikill við bú- störfin. Aldrei er þó eins mikið að gera og á vorin en hann gaf sér smá tíma til að setjast niður og segja sögur úr Rifinu. Talið berst fyrst að upphafinu er búskapur ættmenna Sævars hófst í Rifi en nær öld er síðan afi hans, Guðmundur Guðmundsson, og amma, Jófríður Jónsdótti, flytjast þangað. „Byrjunin var sú að afi minn var formaður á bát. Hann bjó á Selhóli á Heilissandi og á Rifi bjó þá Jens nokkur Sigurðs- son. Afi minn var aldrei sáttur við þetta mikla hafnleysi sem var í Keflavíkinni. Eg tel að það hafi ráðið úrslitum að hann vildi hafa makaskipti við Jens að upp úr aldamótum 1900 varð hörmulegt slys í Keflavíkinni. Þá fórst þar bátur með níu mönnum í lend- ingunni og fólk sem stóð uppi á kambi gat ekkert að gert. For- maður á þessum bát var mjög var tengdur Selhólsfólkinu og hann giftur systur ömmu minnar og bjó hjá afa og ömmu á Selhóli. Ég tel það mjög sennilegt að þessi atburður hafi orðið til þess að þau hafa svokölluð makaskipti við Jens í Rifi og hans fólk árið 1914. Guðmundur afi taldi að í Rifi væri ákjósanlegt hafnarstæði frá náttúrunar hendi. Foreldrar Sævars eru þau Frið- voru afdrifarík mistök því sandur- inn kom allur aftur inn í höfnina þetta haust og lokaði höfninni. Tveir stórir bátar ætluðu að róa þessa vertíð úr Rifi en urðu frá að hverfa. Dæling á sandinum upp á land var erfið þar sem lögnin var svo löng.“ Fyrstu heimabátarnir voru Hólmkell og Armann. Jakob Pét- ursson var skipstjóri á Hólmkeli en Eggert Sigmundsson á Armanni. „Það var eins og menn biðu eftir því að komast að í Rifshöfn því strax fylltist allt af að- komubátum og ég man að það voru allt upp í fjórir til fimm bátar liggjandi hver utan á öðrum við tré- bryggjuna þessa vertíð," segir Sævar er hann rifjar upp þessa miklu fram- kvæmd. Garðarnir komu svo seinna en áður var höfnin alveg opin fyrir sunnanáttinni. Helga Hermannsdóttir og Sævar Friðþjófsson. Mynd. PSJ þjófur Guðmundsson en hann fæddist á Selhól og Halldóra Kristleifsdóttir en hún var frá Hrísum í Fróðárhreppi. Halldóra lést árið 1999 en Friðþjófur árið 1987 en hann stundaði sjó- mennsku úr Krossavíkinni á Hell- issandi og var einn af aðalhvata- mönnum þess að höfn varð byggð í Rifi. Við túnfótinn heima Sævar er kunnugur gerð hafnar- innar en hún var gerð nánast við túnfótinn heima hjá honum. „Það er árið 1951 sem hafist er handa við uppbyggingu lands- hafnar í Rifi og stóð sú vinna yfir næstu fjögur árin við að byggja norðurgarðinn og dæla sandi upp úr ósnum. Trébryggjan er byggð sumarið 1955 og til stóð að hún yrði tekin í notkun um haustið. Utbúin var renna frá trébryggju og út ósinn og var sandinum dælt út fyrir norðurgarðinn. Þetta Fiskverkunarhúsin Það var ekki nóg að höfnin fylltist af bátum því að mikill fiskur kom að landi og fiskverkunarhús voru reist hvert af öðru. „Jóhannes Kristjánsson úr Stykkishólmi kemur og byggir þarna á Melnes- inu fiskverkunarhús og er með tvo báta, Hafdísina og Faxafellið. Kristján Guðmundsson kemur líka úr Stykkishólmi um áramótin 1959 og 1960 með Tjaldinn og rær honum og fer að verka þar fisk í húsum sem hann reisir árið 1965. Fyrstu húsin sem voru byggð í Rifi voru verbúðir sem standa á uppfyllingu fyrir neðan bakkann. Þær voru nýttar sem beitningaraðstaða og veiðarfæra- geymsla fyrir bátana. Fyrst þrjár og síðan fleiri á eftir. Svo kemur Sigurður Magnússon frá Eskifirði kenndur við Víði. Hann byggir stórt og mikið fiskverkunarhús sem hann selur svo síðar Sigurði Agústssyni úr Stykkihólmi þar sem nú er fiskréttaverksmiðja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.