Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 20

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 20
18 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Humals. Þorgeir Árnason byggir fiskverkun þar sem nú er Sjávar- iðjan. Kjartan Steingrímsson byggir verkun líka á þessum tíma. Ársæll Jónsson kaupir gömlu þaraverksmiðjuna og setur þar upp lýsisbræðslu og fleiri komu þarna við sögu. Jóhannes Jóhannesson kemur í Rif og byggir þar Hafnarbúðina. Hann var fyrst í skúr sem stóð við verbúðirnar gömlu og byggði svo myndarlegt hús og rak þar mat- vöru og gjafaverslun til margra ára,“ segir Sævar og bætir við að þessi höfn hafi breytt miklu. Þeir útgerðaraðilar sem innar voru á Nesinu sáu hve mikla möguleika þessi höfn gaf til sjósóknar. „Á sama tíma byggist höfnin upp, rekið er niður stálþil og suð- urgarður byggður upp og er þá höfnin orðin eins og hún er í dag. Allt þetta svæði þar sem þessar byggingar standa á er uppfylling úr ósnum og menn geta þá gert sér í hugarlund hversu gífurlega miklu magni af sandi hefur verið dælt upp í gegnurn tíðina“. Þess má geta að Sævar sat f hafnar- nefnd Rifshafnar í 30 ár og þekkir því vel sögu hennar. Sjómennskan byrjar. Faðir Sævars, Friðþjófur Guð- mundsson, varð að hætta sjó- mennsku vegna veikinda. Eftir að hann hætti fór hann í það að byggja upp bát sem hann átti og hafði verið í eigu Guðmundar afa Sævars. Var það áttæringur sem hét Straumur sem hann hafði komið með frá Skógaströnd þegar hann flutti á Hellissand. Hann var orðinn fúinn og gamall þegar Friðþjófur byggir hann upp og setur í hann vél. Sævar réri með föður sínum á þessum bát. Þetta voru fyrstu kynni hans af sjó- mennskunni og þar lærði hann að umgangast sjóinn og vara sig á þeim hættum sem hann bjó yfir. „Mín fyrsta alvöruvertíð á stór- um bát er þegar ég fer að róa með Tryggva Jónssyni á Snæfellinu frá Ólafsvík en það var 14 tonna bát- ur. Ársæll bróðir Tryggva var þar stýrimaður og þeir voru báðir sómadrengir. Hann réði mig til þess að koma með þeim á net og var þetta með fyrstu vertíðum sem róið er með net á Breiðafirði. Eg lærði mikið þennan vetur og þetta góðir karlar. Konráð Gunnarsson hafði verið vélstjóri á Hafdísinni en hætti þegar hann fór að sækja Tjaldinn til Danmerkur með Myndin er tekin af áhöfninni á Hamri SH 224 árið 1963. Fv. Þorgeir Árnason, Friðgeir og Kristján Þorkelssynir, Hreinn Pétursson, Ingólfur Karlsson, Þórir Pétursson, Sævar skipstjóri, Sigurður Eggertsson og Kristinn Jón Friðþjófsson. Ljósmynd: Helga Hermannsdóttir Kristjáni Guðmundssyni og er ég þá ráðinn sem vélstjóri.“ Undraverð björgun „Eg fer svo að róa á Hafdísi þarna um veturinn 1956 frá Rifi og skipstjóri var Erlingur Viggósson. Við erum ekki búnir að róa lengi þegar við missum bátinn undan okkur. Við lentum í miklu sunn- anroki og það braut yfir hann og stór hluti af línunni fór út og lenti í skrúfunni og okkur rak stjórn- laust. Þetta var mín fyrsta raun til sjós og nokkuð mikið áfall. Okk- ur var bjargað af togaranum Hall- veigu Fróðadóttur. Það má segja það að þetta hafi verið undraverð björgun vegna þess að það sást ekki út úr augunum vegna snjó- komu og við vissum ekkert fyrr en skipið lagði að okkur. Talstöðin virkaði alltaf sem betur fer og við vorum alltaf í sambandi. Hallveig var að koma að vestan og við vor- um stutt út af Rauðasandi þegar togarinn finnur okkur. Þá vorum við eitthvað um fimm til sex míl- ur frá iandi og Hafdís sökk fljót- lega eftir að okkur var bjargað,“ segir Sævar þegar hann lýsir þess- um atburði. Þess má geta að um borð í Hafdísinni var líka Frið- þjófur, faðir Sævars, en þessari var góð reynsla enda góðir menn til borðs eins og Haraldur Guð- mundsson og fleiri sjóhöfðingjar. Sumarið eftir er ég svo við vinnu í Rifshöfn þar sem verið var að dýpka með Gretti sem þá var not- aður. Ég vann við prammann sem dreginn var af bát sem hét Hafdís út á sjó og hann losaður eftir að Grettir hafði mokað í hann. Þarna unnu með mér margir heiðursmenn, svo sem Kristófer Snæbjörnsson, Einar Samúelsson, Lúðvík Albertsson, Sigurður Sveinn, Ársæll Jónsson og Lárentínus Dagóbertsson, allt Halldóra Kristleifsdóttir og Friðþjófiir Guðmundsson. Myndin er tekin 1932.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.