Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 21

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 21
19 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 sögu er gerð skil á öðrum stað í blaðinu. Til að klára vertíðina var nýr bátur tekinn á leigu sem hét Trausti og er Sævar vélstjóri á honum. Skipstjóraferillinn hefst Haustið 1956 fer Sævar í Stýri- mannaskólann í Reykjavík og þar eru með honum margir lands- þekktir skipstjórar og útgerðar- menn. Eftir skólann er hann svo stýrimaður á Faxafellinu hjá þeim mæta manni Markúsi Þórðarsyni. Næstu þrjár vertíðir 1959 til 1961 er Sævar stýrimaður hjá aflamann- inum Sigurði Kristjónssyni, fyrst á Armanni, svo á Stíganda og síðast á Skarðsvíkinni þeirri fyrstu sem hann eignaðist. „Það var svo haustið 1961 sem við feðgar, við Kristinn Jón og faðir okkar, kaupum Hamar frá Sandgerði. Þetta var mjög góður 57 lesta bátur og í góðu standi og við vorum ákaflega heppnir með hann alla tíð. Þarna hefst minn skipstjóraferill. Við byrjuðum á línu og rérum alla þessa vertfð með línu. Það gekk strax vel hjá mér að fiska á línu og það má segja að það sé sá veiðiskapur sem hafi verið í mestu uppáhaldi hjá mér. Eg sótti mikið út í Kyrrðina og vestur í Álinn og rérum við oft þrjá og fjóra tíma þarna út og þá var oft mjög gott fiskirí á þessum slóðum þessi fyrstu ár okkar í út- gerðinni,“ segir Sævar. Það er við- urkennt meðal sjómanna að Sævar var mikil „línumaður“ og hann stóð harður á móti togveiðum á Breiðarfirði þegar línuveiðar voru stundaðar á þessum hefðbundnu vertíðarbátum á milli 1965 og 1980. Oft var hart barist um þessi veiðarfæri á fundum útgerð- armanna á Snæfellsnesi á þessum árum og lét Sævar ekki sitt eftir liggja í þeirri baráttu ásamt öðrum á utanverðu Nesinu. Hann var rökfastur og sagði sína meiningu. „Nonni bróðir kemur sem stýri- maður eftir að hann lýkur skóla og svo fór hann fljótlega að leysa mig af á sumrin sem skipstjóri á milli línu- og netavertíða. Fyrsta sumarið fórum við á humartroll í Jökuldjúpið, eitt sumar á síld. Oll þau sumur á eftir og á meðan við áttum Hamar voum við svo á handfærum,“ rifjar Sævar upp. Saxhamar SH 50 smíðaður „Þegar hér er komið sögu förum við út í það að láta byggja fyrir okkur nýtt stálskip en samningur um smíði skipsins var undirritað- ur 9. okt. 1967, sama dag og okk- ur hjónum fæddist sonur. Miklir erfiðleikar voru á þessum árum í skipasmíði og dróst þó nokkuð að fá skipið en allt fór þetta vel að lokum. Við fengum svo Saxham- ar afhentan í febrúarlok 1969 og var hann 110 lestir. Það gekk nú þannig fyrir sig að þennan vetur voru svo mikil frost að Arnarvog- inn lagði en skipið var smíðað í Stálvík í Garðabæ. Þurfti að sprengja lænu til þess að koma skipinu út. Það beið mín mjög góður mannskapur þegar ég kem með skipið í Rif. Eg reri alla þessa vertíð á línu en Nonni var á net- um á Hamri.“ Segja má að Sævar hafi verið brautryðjandi með því að róa með tvöfaldan línugang á Saxhamri hér við Breiðafjörð en það var þriðja vertíðin hans á bátnum. Þetta var svo tekið upp af mörgum en það er að sjálfsögðu mikil hagkvæmni í því. „Eftir þessa þriðju vertíð var svo komið að Jóni bróður fannst Hamar heldur lítill fyrir sig og við keyptum þá Jökul frá Rauf- arhöfn sem heitir Hamar SH 224 í dag og fljótlega eftir það skipt- um við upp útgerðinni, Jón með Hamar og ég með Saxhamar. Það skiptust að sjálfsögðu á skin og skúrir í útgerðinni. Sum árin betri og önnur lakari eins og gengur en áfram er haldið að end- urnýja. Árið 1972 er Saxhamar lengdur og var þá orðin 128 lestir. Síðan er byggt yfir hann 1980 og seinna sett á hann nýtt stýrishús. „Eg reri með línu á haustin og skipti svo yfir á net á vetrarvertíð. Sumrin voru alltaf vandamál því það var erfitt að hafa mannskap- inn án vinnu allt sumarið. Við byrjum þá á því að prófa að fara á reknet 1972. Fyrst hérna heima og síðan suður fyrir land og endir- inn var sá að við vorum á reknet- um öll sumur fram til ársins 1980. Þá var farið að reyna fyrir sér á rækjuveiðum sem stundaðar voru nokkur ár á eftir.“ Brotsjórínn Skjótt skipast veður í lofti því Sævar varð skyndilega að hætta á sjónum eftir um 25 ára starf árið 1980 og það kom ekki til af góðu. „Við höfðum nýhafið vetrarvertíð 1980 á Saxhamri og vorum stadd- ir í Norðurkantinum í miklu sunnanroki. Það var það slæmt veður að ég hætti við að draga og andæfði við baujuna. Eg vonaðist til þess að hann mundi hægja þeg- ar að hann sneri sér í vestrið en það fór nú aldeilis á annan veg. Það gerði ofsaveður að vestan og mældust allt upp í 16 vindstig svo það var ekkert annað hægt að gera en að snúa til lands. Þegar við erum að leggja af stað kemur gríð- arlegt brot á bátinn að aftann. Saxhamar SH 50.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.