Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Qupperneq 32

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Qupperneq 32
30 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Hér var gaman og gott að koma. Þarna er Silfur- garðurinn, frægt hafnarmannvirki, og Bókhlöðu- húsið og allt var þetta skoðað og um leið notið blíðviðrisins. Eftir nokkuð labb um eyjuna var svo farið í kirkjuna sem var byggð 1926, fallegt og stíl- hreint hús og hún skoðuð. Eftir þessa ágætu skoðunarferð um Flatey með frábærri leiðsögn Jóhanns Kristjánssonar var farið að huga að heimferð. Skipsfélagar Jóhanns frá ver- tíðinni komu við á heimili hans og fengu þar góðar móttökur. Ollum var síðan hóað um borð og leyst- ar landfestar. Leifur benti okkur á Oddbjarnarsker í vestur af Flatey en frá því skeri var útræði hér áður fyrr. Nú var ekki farið beint strik í Rif. Karlarnir voru eitthvað að bralla. Leifur var mjög íbygginn við stýrið og var stöðugt með augun á áttavitanum. Eftir drjúgan tíma sáust eyjar fyrir stafni. Einhver sagði að þetta væru Bjarneyjar og það reyndist rétt vera. Þar var farið upp undir land, stoppað og sett- ur út lítill bátur sem nokkrir karlanna fóru í og reru í land. Þegar þeir komu aftur voru þeir með helling af svartsbakseggjum. Góður slatti af eggj- unum var settur í pott í hvelli og soðinn og sum eggin á pönnu og spæld og síðan borðuð með bestu lyst af ferðalúnu og svöngu fólki. Eftir þetta gekk ferðin án stórviðburða. Það var orðið áliðið kvölds þegar lagst var að bryggju í Rifshöfn. Að leiðarlok- um voru allir himinlifandi ánægðir yfir þessari skemmtilegu og sérstöku ferð. Flest vorum við ung og rómantísk en skemmtunin og ánægjan yfir ferð- inni var sameiginleg hjá öllum í hópnum. Leifi Jónssyni og skipshöfn hans var þakkað fyrir að hafa stjórnað þessari ferð. Nú, næstum hálfri öld síðar er gaman að minnast þessa skemmtilega dags. Hrefna Magnúsdóttir Ferðahópurinn, allir nema Elín sem tók myndina. Talið frá vinstri: Jó- hann, Jóhann Karlsson, sonur Ingibjargar, Skiili, Asta, Hlöðver, Sigur- björg, Kristín, Hrefna, Leifiir Jónsson, skipstjóri, Ingibjörg, Kristín Karls, Eggert, Matthías Pétursson, kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Hell- issands og Guðmundur. Hér eru þeir í bátnum sem fóru í land í Bjarneyjum. Talið frá skut: Egg- ert, Guðmundur, Hlöðver og Jóhann. (3f vil senda sjómönnum í Qfbnœfelbbœ ecjfðbkpldum peirm mínar bestu kvedjur í tilefnisjómannadag'sins. Haraídur Guchnundsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.