Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 37

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 37
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 35 kemur með hann heim til Grafar- ness árið 1947. Guðmundur segir að sú ákvörðun hafi verið vel studd af Sigurði Agústssyni sem átti hlut í þessum fyrsta báti. Þessi fyrsti bátur Guðmundar hét Runólfur SH 135 og var 39 tonn að stærð og var hann nærri þrisvar sinnum stærri en Svanur- inn. Þennan fyrsta Runólf er Guðmundur með til ársins 1955 þegar hann er seldur. Síðan líða nokkur ár og þann tíma er hann með Hring frá. Siglufirði eða fram til ársins 1960 þegar hann sækir annan Runólf SH135 til Noregs þar sem hann var smíðaður og enn stækkar skipakosturinn um þriðjung en þessi Runólfur var 120 tonn. Þegar kom að því að fá svo stórt skip þurfti Guðmundur að sækja sér réttindi og fór í Sfyri- mannaskólann veturinn 1959 - 1960. Á þessum tímum stendur síldarævinfyrið sem hæst og nýji Runólfur er útbúinn kraftblökk. En látum Guðmund nú rifja upp sögur frá síldarárunum. Yfirnáttúruleg hönd við hlið mér. „Þetta var á síldarárunum, ég var þá á Runólfi gamla og var staddur einhverstaðar langt austur af Langanesi, þóttist þó nokkuð viss um hvar ég væri. Þarna vorum við komnir að torfu, ég og annar bátur til en hann sneri eitthvað vitlaust við henni þannig að ég kastaði á hana og fæ nærri fullan bát en hann bar mest um 300 tunnur. Þannig að ég gat haldið glaður í land með þennan afla sem þótti góður á þessum árum en þætti ekki mikill í dag. Eg tek út stefnuna beint á Raufarhöfn og held af stað. En þá skell- ur fljótlega á niðdimm þoka en ég sigli áfram á stefnuna sem ég þóttist nokkuð viss um. Eg vissi það líka að þar sem kominn var 1. ágúst ætti að vera búið að kveikja ljós á vitanum við innsiglinguna. Eg sigldi því f áttina að Raufarhöfn þar til sá tími var kominn sem ég hafði áætlað að ég ætti að fara að sjá vitann. Eg fyni eftir vitanum en sé hann eltki. Sfyrimaðurinn minn segir þá að hann hafi séð tvö ljós á bakborða rétt áður. Haitu þá á þau sagði ég en til vonar og vara bað ég menn að vera á varðbergi því innsiglingin er þröng. Ekki löngu síða rofar til og ég sé að við erum komnir langleiðina að bryggju á Raufar- höfn. Ég fann þá þótt ég reyndi sjálfur að þykjast stjórna bátnum að þarna var eitthvað óútskýran- legt sem hafði lagt mér lið. Ég frétti síðar af því að ekki hefði ver- ið búið að kveikja á vitanum. Það má segja að í gegnum mína skip- stjórnartíð hafi ég oftar en einu sinni orðið var við það að með mér var fylgst. Hvað sem á nú að kalla þessa aðstoð þá var hún til staðar þótt ég geti ekki útskýrt hvaðan hún kom.“ Við víkjum næst tali að lífinu og fjörinu á síldarárunum og þá kemur ein frásögnin upp f huga Guðmundar frá árunum á Siglu- firði. „Það var sko bræla og við lágum allir í höfn og oft þegar svo var þótti ekki tiltökumál að skella sér á ball. Þær komu til mín, nokkrar stúlkur af planinu og spurðu hvort ég ætlaði ekki að koma á ball um kvöldið en áður en ég veit af hef ég svarað: „Nei, ég kemst ykkur upp á kaffi og útí það kl. 6 annað kvöld því þá verð ég kom- inn að landi með 600 tunnur.“ Þær voru nú ekki tilbúnar til að kyngja þessu, blessaðar stúlkurnar enda var þá ennþá bræla en við þetta sat, út fer ég um kvöldið og daginn eftir var ég kominn að landi kl. 6 með 600 tunnur. Þá vandaðist reyndar málið því það var sunnudagur og ég átti ekkert til að gefa stúlkunum út í kaffið en vinur minn og félagi, Daníel Þórhallsson, var tilbúinn til þess að leysa þennan vanda minn og fór upp í apótek og náði í pott- flösku af hreinum spíra þannig að ég gat efnt loforðið við stúlkurnar. Þær urðu glaðar við þessa hressingu og spurðu hvort ég vildi eltki heita á þær aftur og enn svara ég að bragði ég heiti því sama og verði kominn að landi ki. 7 annað kvöld með 700 tunnur. Og viti menn það stóðst allt upp á mínútu sem fyrri dag- inn, ég kem með 700 tonninn og aftur fengu þær út í kaffið. Og enn heiti ég á stúlkurnar og nú segist ég ætla að koma með 800 tunnur kvöldið eftir og það gekk eftir en þá var ég nú orðinn svo slæptur og ósofinn að látið var að heitingum að sinni en stúlkurnar voru hressar í söltun- inni þessi þrjú kvöld.

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.