Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 38

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Síða 38
36 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Á þessum árum sótti ég síldina mjög oft á hól sem var á milli Grímseyjar og Kolbeinseyjar, það var eins og hún stoppaði þar oft á leið sinni aust- ur með landinu og kom upp og óð á fallaskipt- um á kvöldin." mikið þótt þeir borguðu fyrir björgunina. Stóð þetta í stappi í þó nokkurn tíma og ég vildi ekki láta mig og fékk síðan lögfræðing í málið. Þegar svo var komið þá komu þeir til mín og spurðu hvort ég vildi ekki fallast á það fá 150 þúsund krónur og málið yrði úr sögunni. Eg gerði það enda var það upphæðin sem ég hafði sett upp og við sættumst vel eftir þetta.“ Mér finnst eins og Guðmundur vilji með þessari sögu segja að til þess að koma hlutunum áfram eins og hann hefur gert í gegnum Guðmundur og togararnir Hringur og Runólfur. tíðina þurfi menn að vera ákveðn- ir á sínu en það er jafnframt ljóst að atorka Guðmundar og vinnu- semi hefur skilað honum vel áfram í lífinu. „Guðmundur var kappsamur sjósóknari en jafn- framt gætinn og oft á tíðum eins og honum fylgdi ákveðin lán- semi“ eru ummæli aldins samferðamanns Guð- mundar. Áfram með útgerðar- söguna Um tíma, á meðan Guð- mundur átti þann Runólf sem byggður var í Noregi, átti hann einnig annan norskbyggðan bát sem í eigu Guðmundar var nefndur Ásgeir SH 235 en hann hafði áður heitið Pétur Sigurðsson RE 331. I útvarpviðtali sem Jónas Jónasson átti við Guðmund árið 1977, segir Guðmundur frá því að hann hafi verið búinn að ganga lengi með það í maganum að eignast skuttogara áður en að því kom að sá draumur varð að veru- leika. í apríl 1972 skrifar Guð- mundur undir samning við Stál- vík um smíði á skuttogara og þann 19 janúar árið 1975 kemur skuttogarinn Runólfur SH 135 til heimahafnar í Grundarfirði. Til- koma togarans olli straumhvörf- um í atvinnulífi í Grundarfirði því aflinn af honum var allur unninn þar. Þarna gerðist Guðmundur enn frumkvöðull í útgerðarsögu Grundarfjarðar og seinna meir Skipi bjargað Guðmundur reyndist alla tíð farsæll skipstjóri og lenti aldrei í neinum óhöppum eða skaða á sjó en hann kom stund- um til hjálpar sjáfur þegar svo bar undir. Hann segir nú frá því er hann bjargaði skipi: „Þetta var á þeim árum sem ég var nýbúinn að fá Runólf nýja en hann var vel búinn tækjum með astik og radar. Enn er ég að fara inn á Raufarhöfn og það er þoka eins og svo oft þarna fyrir austan. I þetta sinn sneri ég frá og var eitthvert hik á mér en það kemur á eftir mér bátur sem lætur sig vaða beint inn. Eftir smá um- hugsun sá ég að ég gæti farið þetta eins og ég hefði gert áður og rétti af bátinn og stefni honum inn á Raufarhöfn og þegar ég kem þarna inn er báturinn sem fór á undan mér strandaður á skeri rétt innan við höfnina, þetta var Hrafn Sveinbjarnarson. Þeir kalla og biðja mig að taka í hann, mér leist ekkert á það í fyrstu enda báturinn fullur af síld. En ákvað svo að láta slag standa. Við sett- um í hann mikla tóg og ég setti á fulla ferð og þá var eins og bátn- um ætlaði að hvolfa því hann lagðist alveg á hliðina og meira til svo ég sló af en í því losnaði hann af skerinu og var óskemmdur. Þegar við vorum komnir að bryggju báðir sagði ég við skip- stjórann að þetta vildi ég fá eitt- hvað fyrir. Það var Tómas í Grindavík sem átti bátinn og hon- um fannst það ekki koma til greina að borga neitt fyrir björg- unina, menn gerðu hvorum öðr- um greiða til sjós án þess að borg- un kæmi fyrir. En ég stóð fastur á mínu enda taldi ég að miðað við þá áhættu sem ég tók væri ekki Svanurinn í slipp í Stykkishólmi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.