Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 46

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Blaðsíða 46
44 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Bónus þess tíma Þetta skemmtilega erindi flutti Bjarni Ólafsson bóndi í Geira- koti í Vallnakirkju á tónleikum sem kirkjukór Ólafsvíkur hélt í apríl sl. I þessu erindi eru hug- leiðingar Bjarna frá bernskuárum sínum í Fróðárhreppnum. Þegar séra Óskar hringdi í mig og spurði hvort ég væri til í að halda smá tölu í Vallnakirkju um gamla daga þá var ég nú hikandi en það er erfitt að segja nei við blessaðan prestinn svo ég sló til. Það hefur nú þótt mikið átak að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Svo var einnig 1939 þegar foreldr- ar mínir byggðu steinsteypt hús á jörð sinni, Geirakoti í Fróðár- hreppi. Það sem hefur eflaust ráðið úrslitum var að Sigurður sonur þeirra og bróðir minn var búinn að læra húsasmíði og sá hann um fram- kvæmdina. En til merkis um erfið- leika við aðdrætti á þessum tíma þá var steypuefnið flutt í pokum á reiðungs- hestum neðan úr fjöru og öll steypan var hrærð á bretti því engin var hræri- vélin. Þetta hús var og er tæpir 40 fer- metrar, ein hæð og ris, en sex ára krakka þótti þetta æði stórt og flott miðað við litla torfbæinn sem hýsti fólkið fram að þessum tíma. Það hefur þótt sæmilega búsældarlegt í Fróðárhreppi en þó urðu menn að treysta á sjávarfang Stefán Jónsson á Hrísum. ýmist á heimaslóðum eða fara til fjarlægra útgerðarstaða til að sækja sér björg í bú. Upp úr 1940 var stofnað pöntunarfélag í Fróðár- hreppi til þess að fá ódýrari mat- vöru, svo sem hveiti, sykur, rúg- mjöl, haframjöl og margt fleira. Fyrir þessu félagi stóð Stefán Jóns- son í Hrísum og var aðstaðan við Hrísaklett. Þessar vörur komu með strandferðaskipunum Súð- inni eða Esjunni og var landað að- allega í Ólafsvík en þó einstaka sinnum við Hrísaklett og var vör- unni þar skipað upp í litlum bát og borin í land og í hús. Þessi verslunardreifmg náði til Óiafs- víkur og einnig inn í Eyrarsveit. Ekki veit ég hvort hún náði út fyrir Enni og má líta svo á að þetta hafi verið Bónus síns tíma. Þess má geta að Stefán réri frá Hrísakletti árum saman og verk- aði fiskinn sjálfur á staðnum ým- ist í salt eða herslu enda annálaður dugnaðarmaður. Það getur eflaust verið erfitt að vera krakki eða unglingur í dag því þótt mörg séu tækifærin þá eru líka margar freistingarnar sem fyrir verða og er þá nauðsynlegt að baklandið sé traust. Þar á ég við heimilin og ekki síst móðurhlutverk- ið. Því það er ekkert sem getur komið í stað móðurástar og umhyggju. Það er svo ótrúlegt hvað góð móðir getur gef- ið mikið af sér. For- eldrar mínir áttu fjórtán börn og rak ég lestina en það var nóg ást og umhyggja eftir handa mér. Eg mun ljúka máli mínu á þessum nót- um. Móðurhöndin milda þín minn um strýkur vanga. Astúðin úr augum skín eftir vöku langa. Bjarni Ólafsson Greinarhöfundur, Bjarni Ólafsson, í lendingunni við Hrísaklett. Ýmsar minjar um sjósókn eru enn sjáanlegar þar. Mynd: PSJ f/j'f/t'S'f/t/t ó'sAct/* sfó/nön/ut/n ot^Jjöf's/itjfifit/tt/)et/*/Ht (il/ttt/ni/itjfjtt /netí clacji/t/t ! PRINSINN Ólafsbraut 19,Ólafsvík, s.436 1362 & 436 1339
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.