Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 63
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
61
Ævar Rafn Þrastarsson er ungur
vélstjóri frá Hellissandi. Hann
lauk vélstjóranámi um áramótin
frá Vélskólanum í Reykjavík og
er þegar farinn að vinna við það
sem hann var að læra en hann er
vélstjóri á togbátnum Hamri frá
Rifi. Ævar Rafn varð góðfuslega
við beiðni Sjómannadagsblaðsins
um að segja frá námi og þeim
möguleikum sem vélstjóra-
menntunin hefur uppá að bjóða.
Framhaldsnám mitt hófst við
íjölbrautarskólann við Armúla en
þar var ég við nám í tvær annir,
reyndar með misgóðum árangri.
Það má segja að ég hafi meira ver-
ið þar fyrir einhvern annan en
sjálfan mig, þó svo að enginn hafi
neitt mig :). Á þeim tíma sem ég
var í Ármúla var ég alltaf að hugsa
að það væri nú ekki fyrir mig að
fara í háskóla. Þó er ég ekki að
gera neitt lítið úr háskólunum en
það er bara ekki fyrir alla að sitja
þar í stórri stofu og glósa af töfl-
unni eftir kennaranum allan dag-
inn, þannig að ég ákvað að taka
mér smá frí frá námi á meðan ég
hugsaði mitt mál.
Eg hugsaði oft um að læra eitt-
hvað sem tengdist sjómennsku í
þessum frítíma mínum og þá var
það vélskólinn sem var mér efstur
í huga. Ég var kannski ekki með
mikla reynslu af vélum. Var oft
bara að fikta við snjósleðann og
fjórhjólið þegar ég var gutti. Féklt
stundum að fara með pabba þegar
Afram skóli
að hann var að gera við sínar
bíldruslur eða þegar hann var að
gera við um borð í trillunni sinni.
Ég hugsaði líka um að það væri
nú kannski ekki neitt svo vitlaust
að fara í Stýrimannaskólann en
eftir umhugsun, sem tók eitt ár
(!), þá ákvað ég að fara í Vélskól-
ann en ekki í Stýrimannaskólann.
Mér persónulega fannst það nám
geta gefið mér meiri möguleika
við atvinnuleit því að Vélskóla-
námið bíður uppá vinnu jafnt til
strax í þessu námi og mér gekk
mjög vel. Það tók mig fjögur og
hálft ár að klára námið en venju-
legur námshraði er fimm ár og þó
ég segi sjálfur frá þá var ég ákaf-
lega stoltur þegar ég kláraði það
um áramótin 2003-2004. Eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum þá
er skólinn nú einkavæddur. Vél-
skólinn og Stýrimannaskólinn eru
nú ein stofnun sem er rekinn af
Menntafélaginu og að því standa
Landsamband íslenskra útvegs-
Ævar Þrastarson við störf í vélarrúminu á Hamri SH.
sjós og lands. Ég lét verða af því
að fara í Vélskólann sem ég sé
ekki eftir. Og það var einstök lífs-
reynsla að takast á við þetta nám
og má segja að ég hafi fundið mig
manna, Samband íslenskra kaup-
skipaútgerða, Sjómannasamband
Islands, Samtök raforkuhita og
vatnsveitna, Vélstjórafélag íslands
og Sjómennt.
Sjómenn!
InniCecjar fiamingjuásídr á sjómannadagirm
Grandakaffi
Grandagarði 101, Reykjavík
Sími: 552 9094