Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 68

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 68
66 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004 Myrkrahöfðinginn Haft eftir Krístni B. Guðlaugssyni frá Sólbakka, Keflvíkurgötu 23 Hellissandi „Árið 1943, þá níu ára, er ég ráð- inn af Friðþjófi Guðmundssyni í Rifi fyrir hönd Krossavíkurnefnd- ar til þess að sjá um innsiglingar- ljósin í Krossavíkinni. Þetta voru olíuluktir sem var komið fyrir í staurum á og við suðurbryggjuna. Fremri staurinn var steyptur í skjólgarðinn sem var þversum fyr- ir fremri endanum á bryggjunni. Það voru steyptir teinar í skjól- garðinn til að auðvelda uppgöngu í staurinn. Efri staurinn var upp af Suðurbryggjunni. Örlítið príl var upp í staurana en á þeim voru okar til uppgöngu. Luktirnar voru gjarnar á að sóta sig og þurfti þá að þrífa glösin og eins vildi drepast á ljósunum. Þá var kallað í mig til að lagfæra þetta. Það voru margar ferðir sem þurfti að fara til að snúast í þessu, stundum fékk ég far með Halldóri Ben á vörbílnum úteftir. Það var þó ekki alla daga sem þurfti að setja upp innsiglingarljósin því að ekki gaf á sjó alla daga og eins var það að bátar voru stundum komnir að fyrir myrkur. Ljósin voru einung- is uppi þegar þurfti að vísa bátum til hafnar eftir að fór að dimma. Ferðalagið heiman að frá mér og út í Krossavík er drjúgur spotti, líklega um tveir kílómetrar. Eitt- hvað var nú rætt um að reimt væri á sandinum á leiðinni út í Krossa- vík en ég hef aldrei trúað á drauga Kristinn Guðlaugsson. og varð aldrei var við neitt sem truflaði mig á þessari leið, aldrei. En sögurnar voru þannig að menn kæmu bláir og þrútnir af hlaupunum undan draugunum. Eflaust hefur þetta mest verið það að frosinn sandurinn brotnaði undan fótum mannanna, ólarnar og böndin sem menn bundu á sig, skrínurnar með og aðrar birgðir slóust utan í hörð og freðin hlífðarfötin og þetta munu hafa verið hljóðin sem menn voru að flýja. En sem bet- ur fer þá varð ég ekki fyrir neinni ásókn eða leiðind- um á þessari leið. Þegar ég hafði annast þessar olíuluktir í tvö ár þá er keypt ljósavél og sett upp í Krossavíkinni og ég fékk þann starfa að sjá um þessa vél. Það er að gangsetja hana og hirða hana að öllu leyti. Þetta var einar sí- lendra Lister-vél, mjög gangviss og þægileg þannig en svolítið há- vær. Þegar þarna var komið var orðið skjól til að vera þarna á meðan það þurfti að hafa lýsingu. Yfir vélina var byggður skúr áfast- ur lifrarbræðslunni að austan- verðu, lifrarbræðslan stóð sunnan við Háabarðið. Stundum var ég þarna fram eftir kvöldi, svo sem þegar útskipun var, hafði ég þá með skólabækurnar og las í þeim og lærði þarna í skúrnum. Oft á tíðum var þar heitt og loftlítið þó ég hefði hurðina opna og fyrir kom að ég sofnaði. Þetta starf hafði ég fram til vors fermingarár- TILBOÐ I JUNI & JUU ! ALLT TIL I tilefni af 1 árs afmæli Sjóvéla fylgir veglegur veiðafærapakki öllum C6000Í færavindum í júní og júlí! HAFÐU SAMBAND ! S/@i iWiustad FÆRAVEIÐA Skútuvogi 6-104 Reykjavík Slml 553 3311 - Fax 553 3336 wvwv.s|o.ls - sjo@sjo.ls O's/iiim sjótnö/umm (Hj^J/ö/s/u//t/um■þeitwi ti/ /uiming/tt tnetf íftiyínn ! Höfum þjónað sjávarútveginum frá árinu 1982 Vélsmiðja Arna Jóns Rífi S. 436 6773

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.