Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Page 78
76
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Kaldilækur í Ólafsvík
Kaldilækur, myndin er tekin 2001.
eða frá 1933 til ársins 1958 er
Hans dó. Þau áttu sjö börn og
flest þekkjum við þau systkin
Guðríði sem er
látin og Þor-
stein. Hans
stundaði sjó-
mennsku nær
alla sína ævi og
var lengi for-
maður á Brim-
ilsvöllum. Þess-
ari höfðinglegu
gjöf var vel tekið
af mönnum í
Sjómannadags-
ráði og var
samþyl<kt að skrifa Þorbjörgu
þakkarbréf skv. fundargerð
ráðsins.
Síðan þetta gerðist hefur
margt breyst á þessari lóð og
garðurinn stækkað til muna
eins og áður hefur verið lýst í
Sjómannadagsblaðinu. í
Kaldalæk var búið alveg til
ársins 1976 og eru margir
þeirra ennþá búsettir í Ólafs-
vík sem þar bjuggu. I tilefni
þess að húsið verður 100 ára
Mynd: PSJ
á næsta ári var tekin smá saman-
tekt um nokkra þá íbúa sem
bjuggu í þessu húsi og veru þeirra
þar. Eins og fram kemur var hús-
ið ekki stórt, eitt herbergi sem líka
var stofa og svo eldhús. Þá var
salerni frammi á gangi en ekkert
bað var í húsinu. Unga fólkið í þá
daga lét sig ekki muna um þetta
þó þröngt væri en eklci væru
margir ánægðir í dag að flytja inn
í svona húsnæði.
Við byrjum á því fóllci sem síð-
ast bjó í húsinu og það voru þau
Jóhannes Jóhannesson og Björg
Guðlaugsdóttir en þau fluttu í
Tómasson í andyrinu á Kaldalæk árið 1969.
Eins og margir bæjarbúar hafa
tekið eftir hefur húsið Kaldilækur
sem er staðsett í Sjómannagarðin-
um í Ólafsvík verið gert upp og er
orðið til mikillar prýði. Það var
Vigfús Vigfússon, byggingar-
meistari í Ólafsvík, sem hafði veg
og vanda af þessum breytingum
sem unnar voru í samráði við
Húsafriðun ríkisins og Sjómanna-
dagsráð Ólafsvíkur. Skipt var um
stóran hluta gólfsins og veggir
voru endurnýjaðir að stórum
hluta. Þá voru nýir gluggar smíð-
aðir í húsið.
Þetta hús sem var byggt árið
1905 er 42,4 fm og var gefið sjó-
mönnum í Ólafsvík árið 1968.
Björg og Jóhannes ásamt Dagnýju dóttur þeirra.
Þann 29. september það ár barst
bréf á fund hjá Sjómannadagsráði
Ólafsvíkur frá Þorbjörgu Árna-
dóttur og börnum hennar en þau
bjuggu lengi í húsinu. Gáfu þau
Sjómannadagsráði Ólafsvíkur fyrir
hönd sjómanna bæði húsið og
einnig lóðina sem var þá 877 fm
til fullrar eignar til minningar um
eiginmann Þorbjargar, Hans
Arnason. Þorbjörg og Hans
fluttu í þetta hús frá Holti í Fróð-
árhreppi og bjuggu í því í 25 ár
Senttum sjómönnum og fjötskyldum þeirra
haminqjuóskir á sjómannadaqinn.
fHótd Óíafsvf
Olafsbraut 20, Suœfcttsbœ