Bókasafnið - mar. 2024, Qupperneq 9
Bókasafnið 44. árg – 2024 9
Einn möguleiki sem við höfum til að leysa málið er að nýta tækni sem Ex Libris býður upp
á og nota APIvefþjónustur til að láta gögnin „tala“ saman. Með þeirri tækni er hægt að
senda APIköll á milli gagnagrunnanna og það ætti að skila betri leitarheimtum á Leitir.
is. Með þeirri aðferð eru gagnasöfnin sjálf ekki tengd saman, heldur er hvert þeirra tengt
við Ölmu og Leitir.is með APIvefþjónustum. Það myndi skila betri niðurstöðum en nú er
raunin, en ekki er víst að leiðin myndi skila fullkominni niðurstöðu. Önnur leið er að smíða
utaná liggjandi nafnmyndaskrá þar sem nafnmyndaskrám allra gagnasafnanna er hlaðið inn
og gögnin „tala“ við bókasafnskerfið Ölmu og Leitir.is. Aftur er forsenda fyrir betri leitar
heimtum sú að allar nafnmyndir innihaldi einkvæm auðkenni, svo hægt sé að tengja þær
saman. Þriðja leiðin er að búa til utanáliggjandi venslatöflu þar sem gögnin eru opnuð og
vensluð í gegnum venslaskrá. Fjórða leiðin er að búa til svokallaðan „resolver“ sem væri frí
standandi SQL grunnur og ótengdur öllum öðrum gagnagrunnum. Hann myndi innihalda
öll auðkenni úr öllum gagnagrunnunum og venslatöflur myndu tengja auðkennin saman.
Einungis auðkennin eru sótt og önnur gögn í gagnagrunnunum eru ekki snert.
Lokaorð
Niðurstöður rannsóknarinnar nýtast til að fá yfirsýn yfir helstu viðfangsefni sem þarf að
takast á við svo hægt sé að opna og tengja saman gögn. Rannsóknin er mikilvægt skref í að
bæta aðgengi notenda að upplýsingum í Leitir.is. Það er alveg ljóst að við þurfum í náinni
framtíð að hrinda af stað þróunarvinnu til að bæta leitarheimtur í Leitir.is.
Heimildir
Europeana. (e.d.). Linked open data. https://pro.europeana.eu/page/linkedopendata
Risan, A. (2020, 27. októberA). Masterdata og autoriteter. https://nva.sikt.no/registra
tion/0187b7d01d46de66831dc0314b86bcf0502f45e4e222
Risan, A. (2020, 27. októberB). Metadata - orden i kaos. https://nva.sikt.no/registra
tion/0187b7c91e5585f9ebba272a4ae4ab79358c218e0fa8
Sigrún Hauksdóttir. (2005). Nafnmyndaskrá Gegnis. Fregnir 30 (3), 4647.
SmithYoshimura, K. (2020, 16. apríl). Presenting metadata from different sources in dis
covery layers. Hanging Together – the OCLC Research blog. https://hangingtogether.
org/presentingmetadatafromdifferentsourcesindiscoverylayers/
W3C. (2013, 27. júní). Linked Data Glossary. https://dvcs.w3.org/hg/gld/rawfile/de
fault/glossary/index.html
W3C. (2015). Data – W3C. https://www.w3.org/standards/semanticweb/data