Bókasafnið - mar. 2024, Síða 35
Bókasafnið 44. árg – 2024 35
með sínum eigin orðum án þess að setja sig í einhverjar stellingar. Til dæmis, „Hvers vegna
þarf ég að mæta í skólann, get ég ekki bara lært heima?“ og Assistant nýtir orðanet sitt til
að endurorða fyrirspurnina á marga vegu og framkvæma með því fjölda leita á augabragði
í þekkingargrunni sínum. Þá dregur Assistant saman stutt svar við fyrirspurninni, byggt á
þeim gögnum sem gervigreindin vann úr og vísar í heimildir. Heimildalistinn birtist svo í
sér dálki með útdrátt fyrir hverja grein.
Notagildi þessa tóls er augljóst þeim sem vinna með heimildaleitir, þar sem niðurstöður við
flóknum fyrirspurnum koma fram á augabragði og einföld fyrirspurn er sett fram í mörgum
ólíkum leitarstrengjum. Þetta er líklegast framtíð leitarvélanna og hægt er að spyrja hver
framtíð upplýsingafræðinga verður þegar gervigreindin getur tekið svo vel við þessu hlutverki.
Upplýsingafræðingar og gervigreind
Í bókinni Hitchhiker‘s guide to the Galaxy eftir Douglas Adams er sagt frá gervigreindinni
Deep Thought sem var tölva á stærð við plánetu. Þeirri gervigreind var ætlað að reikna út
svarið við lífinu, alheiminum og öllu. Tölvan vann verkið og komst að því að svarið væri 42.
En þá var komið að næstu áskorun, að finna spurninguna. Til þess taldi Deep Thought að
þyrfti enn stærri og fullkomnari tölvu. Það má kannski segja að nú séum við komin með
vísi að gervigreind sem getur fundið svarið, en þá er spurningin, hvers virði er svarið ef við
getum ekki mótað spurninguna.
Það er auðvitað orðin hálfgerð hefð fyrir því að spá endalokum stéttarinnar með hverri nýrri
tækniþróun. En ég ætla ekki að gera það hér. Það er allt eins líklegt að hlutverk okkar muni
aukast og stækka með tilkomu þessarar tækni. Til þess að gervigreindir á borð við Assistant
og ChatGPT skili nothæfum niðurstöðum og texta, þarf að vanda vel þær beiðnir (e. prompt)
sem þær vinna úr og skýra vel hverskonar svari er óskað eftir. Þar gætu upp lýsingafræðingar
Mynd 6: assistant by scite_ reunveruLegar HeiMiLdir birtast í Hægri gLugganuM.
Leit gervigreindarinnar er dregin saMan undir svari Hennar