Bókasafnið - mar. 2024, Blaðsíða 39

Bókasafnið - mar. 2024, Blaðsíða 39
Bókasafnið 44. árg – 2024 39 búningur næsta fasa. Í júní komu fulltrúar bjóðenda til landsins og tóku þátt í seinni fasa út boðsferlisins sem fólst í úrlausn fyrirfram skilgreindra notkunardæma. Þar var látið reyna á hversu vel virkni kerfanna félli að kröfum og verklagi, svo sem varðandi útlán og lánþega, lýsigögn, umsýslu, leit og kerfislega uppsetningu. Dómnefnd, sem skipuð var sérfræðingum úr hópi aðildarsafna Gegnis auk Landskerfis bókasafna, mat úrlausn þessara verkefna og gilti niðurstaðan 32% í vallíkani. Þegar einkunnir dómnefnda lágu fyrir voru verðumslög opnuð en verð vigtaði 48% í vallíkani. Útreikningar leiddu í ljós að tilboð Ex Libris var heldur hagstæðara en tilboð Innovative í kaup á hugbúnaði. Leigutilboð Innovative var hins vegar óhagstæðast. Þegar hér var komið sögu ákvað stjórn Landskerfis bókasafna að óska eftir skýringar­ eða samningaviðræðum við bjóðendur, líkt og gefinn er kostur á í samkeppnisútboði eins og hér var um að ræða. Var það í takt við ábendingar frá Ríkiskaupum um að í flestum tilfellum skiluðu slíkar samningaviðræður kaupendum lægra verði og betri niðurstöðum. Um miðjan september gerðu bjóðendur sér aftur ferð til Reykjavíkur fyrir viðræður þar sem leitast var við að ná gagnkvæmum skilningi á þörfum íslensks bóka safnasamlags og möguleikum kerfanna á að uppfylla þær. Skýringaviðræður héldu áfram um nokkurt skeið í formi símafunda og tölvupóstsamskipta og á endanum kölluðu Ríkiskaup eftir og tóku við nýjum tilboðum frá bjóðendum. Lokatilboð bjóðenda bárust 20. nóvember 2018. Ex Libris bauð sem fyrr leigu á Alma bókasafnskerfinu og Primo VE leitargáttinni. Hjá Innovative Interfaces varð sú breyting að auk kaupa á Sierra bókasafnakerfinu var nú einnig boðin ný leitargátt sem var í þróun, Inspire Discovery án nokkurs viðbótarkostnaðar og skyldi Landskerfið hafa aðkomu að þróun hennar. Tilboð Innovative fékk nú hærri lokaeinkunn en tilboð Ex Libris. Báðir aðilar höfðu fengið svipaða einkunn fyrir úrlausn notendadæma og gæði en allnokkur munur var á verði. Heildareinkunn fyrir tilboð Ex Libris varð 88,30 og heildareinkunn hagstæðara tilboðs Innovative var 92,92. Í ljósi þessa ákvað stjórn Landskerfsins í desember að taka tilboði Innovative Interfaces Global Ltd. og voru bjóðendur upplýstir um niðurstöðuna. Að biðtíma loknum sendu Ríkiskaup út tilkynningu um töku tilboðs Innovative Interfaces og Mynd 5: útboð á nýJu bókasafnskerfi Mynd 6: LokaskýrsLa sérfræðiHópa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.