Bókasafnið - mar 2024, Qupperneq 33

Bókasafnið - mar 2024, Qupperneq 33
Bókasafnið 44. árg – 2024 33 Ung, falleg, hvít og grönn kona. Þessar tvær halda ekki einu sinni á barni. Þær virka ekkert þreyttar eða undir því álagi sem barnauppeldið veldur. Þær eru örugglega á leiðinni á ball að skemmta sér. Gervigreindin hefur greinilega ekki reynslu af barnauppeldi. Auðvitað getur niðurstaðan orðið eitthvað öðruvísi, en líkurnar eru með því að niðurstaðan fari á þessa leið. Ástæðan fyrir því er að myndir af fyrirsætum eru helst til fyrirferðarmiklar í þeim gögnum sem gervigreindin hefur verið þjálfuð á og sá gagnahalli hefur áhrif á svar gervigreindarinnar. Það er að segja, á þeim tíma sem þessi grein var skrifuð. Líklega er aðeins tímaspursmál hvenær verður búið að bregðast við þessum gagnahalla svo svörin endurspegli betur væntingar allra. Til að gæta allrar sanngirni eru hér einnig myndir af hinum fullkomna föður: Gráhærður, skeggjaður, þreytulegur, hvítur náungi milli fertugs og sextugs, líkist kannski svolítið fölum Pedro Pascal. Annar þeirra heldur meira að segja á barni (það er greinilegt hvaða foreldri sér um uppeldið á þessum heimilum). Í hönnun er stundum talað um að taka verði tillit til innbyggðra fordóma sem koma fram í tækjum, verkferlum og hverju öðru sem mögulegt er að hanna. Beautify valkosturinn á símanum á það til að breyta dökku fólki í hvítt, klósett og búningsklefar gera aðeins ráð fyrir tveimur kynjum og við sem örvhent erum, bölvum skriftinni sem neyðir okkur til að ýta pennanum á undan okkur frá vinstri til hægri í stað þess að draga fallega til stafs á líkan hátt og „rétt“hentir gera. Hér tekur hönnunin ekki tillit til allra og með sanni má segja það um þær gervigreindir sem eru hér til skoðunar. En hvaða áhrif hefur þetta á upplýsingahegðun fólks? Upplýsingar sem fást við að „Chatta“ við spjallmenni um tiltekin viðfangsefni munu vera litaðar af þeim skoðunum sem þjálf­ unargögn spjallmennanna endurspegla. Góðu fréttirnar eru að það er hægt að aðlaga þjálfun gervigreinda með tilliti til inngildingar og sú vinna virðist þegar vera farin af stað. Það er gert með því að velja jafnara þýði gagna sem endurspeglar fjölbreyttari flóru og setja ák veðna varnagla í forritun þeirra. En vondu fréttirnar eru aftur á móti þær að líkurnar á fölskum niðurstöðum sem endurspegla skoðanir fremur en staðreyndir margfaldast. Og þegar um er Mynd 4: nigHt cafe: perfect fatHer Mynd 5: stabLe diffusion: perfect fatHer
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.