Bókasafnið - mar. 2024, Blaðsíða 20

Bókasafnið - mar. 2024, Blaðsíða 20
20 Arndís Dögg Jónsdóttir hag notenda safnsins og gefur bókasöfnum verkfæri sem auðvelda þeim að markaðssetja safnið rétt og innan rétts markhóps. Í þessu ferli er unnið að því að greina markhópinn, farið er í stefnumótun og skipulagsvinnu og fundin er leið til að ná til notenda safnsins og eiga í samskiptum við þá. Í ferlinu er einnig skoðað hvernig best sé að halda samskiptum við notendur góðum til frambúðar (Armstrong o.fl., 2020). Tvö af þeim átta söfnum sem tekin voru fyrir, höfðu farið í greiningarvinnu fyrir kynningar starf sitt og fjögur af átta höfðu myndað sér eða unnið að stefnu fyrir markaðs­, og kynningar starfið. Fjögur söfn höfðu myndað sér hugmynd um hvernig þau vildu að kynningar starfið væri sett upp og hvernig samskipti ættu að vera, bæði bein og milliliðalaus samskipti við notendur sem og samskipti gegnum samfélagsmiðla. En þær hugmyndir voru ekki til niðurskrifaðar. Almenningsbókasöfn eru í virkri vinnu við að þróa kynningarstarf sitt en skortur er á að söfnin fari í stefnumótun og fylgi þeim skrefum sem uppsett eru innan markaðs fræðinnar. Á það sérstaklega við meðal minni safna þar sem ekki starfar sérfræðingur sem sinnir kynningar starfinu. Hjá þremur af átta söfnum í rannsókninni var sérstakur starfsmaður sem sá um kynningarmál og þau söfn tilheyrðu öll svæðum með yfir 7000 manns. Fimm af átta söfnum sýndu mikinn áhuga og skilning á mikilvægi þess að hafa starfsmann sem sinnir málefninu sérstaklega og hefur menntun og kunnáttu til þess að gera það vel. Samræmist það niðurstöðum rannsóknar sem kom út árið 2021 þar sem fram kemur að meðal þess sem vantar helst inn á bókasöfn sé sérfræðingur í samfélagsmiðlum (Johnston o.fl., 2021). Áskoranir í kynningarstarfi Starfsemi bókasafns stjórnar því kynningarstarfi sem safnið sinnir og er því ekki hægt að ræða um kynningarstarf safna án þess að leiða umræðuna inn á þá þróun sem hefur átt sér stað hjá almenningsbókasöfnum síðustu ár. Miklar breytingar hafa átt sér stað í starfs umhverfi safna og líta þátttakendur rannsóknarinnar þær almennt jákvæðum augum. Flest safnanna vinna eftir þeirri hugmyndafræði að bókasöfn eigi að vera virkt rými þar sem einstaklingar geta komið saman, viðburðir fara fram og leyfilegt er að láta í sér heyra. Bókasöfn séu að styrkjast sem samfélagsrými og unnið er með hugmyndir um bókasöfn sem fjölnota rými. Þar eigi að vera pláss fyrir fólk og rýmið eigi að hanna með það í huga að hægt sé að halda úti dagskrá og virku starfi. Söfnin í rannsókninni voru flest að vinna að því að breyta uppröðun bóka og grisja safnkost, með það að markmiði að rýma til fyrir fólki. Þetta er í takt við umfjöllun sem víða má sjá í upplýsingafræðum (Jochumsen o.fl.,2012, Williams og Willett, 2017) og endurspeglast í orðum eins viðmælenda í rannsókninni. „Einu sinni var bókasafn hús fyrir bækur. Við viljum það ekki. Við viljum að bóka safn sé hús fyrir fólk en það eru bækur þar. Það er ekki að bókin minnki í virði sínu. Í rauninni eykst virði hennar því hún er í samneyti við fólk (Bókasafn Kríunnar)” Margir þættir hafa áhrif á kynningarstarf bókasafna og það eru annars vegar húsrými og hins vegar kunnátta og áhugi starfsfólks sem vega hvað þyngst og geta hindrað framþróun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.