Bókasafnið - mar. 2024, Side 25

Bókasafnið - mar. 2024, Side 25
Bókasafnið 44. árg – 2024 25 og starfsfólki skólans. Öllum er velkomið að nýta rýmið til náms og kennslu, alveg eins og bóka safnið. Það hefur verið mikill samgangur milli bókasafnsins og framtíðarstofunnar frá upphafi og árið 2020 var opnað útibú frá framtíðarstofunni inni á bókasafni skólans í Hafnar firði. Í ljósi þess hversu mikla sam­ leið þjónusta bókasafnsins á með þjónustu framtíðar stofunnar var í ár ákveðið að hún skyldi formlega tilheyra bókasafninu í innra skipulagi skólans. Á framtíðarbókasafninu sjáum við fyrir okkur framhald þessa samstarfs og samnýtingar á þjónustu. Það að fara á bókasafnið í skólanum til að læra verður ekki lengur bara falið í því að fletta upp í bókum og tímaritum, heldur verður líka hægt að taka upp hlaðvarp, prenta út líkan í þrívíddarprentara eða forrita og smíða dróna. Þetta eru allt dæmi um verkefni sem nemendur eru nú þegar farnir að v inna í framtíðarstofu skólans. Á framtíðarbóka safninu verður sköpunarrýmið áfram hluti af bókasafninu en mun hafa það fram yfir núverandi fyrirkomulag að vera í sama rými. Annað hvort á sitthvorri hæðinni með tengingu á milli eða í stóru rými sem er skipt upp eftir hljóðvist. Þannig munum við halda áfram að uppfæra þjónustu og aðstöðu bókasafnsins í takt við nýjar þarfir nemenda og breyta því í vinnusvæði sem er búið nýjustu tækni og þjónustu sem nýir námshættir krefjast auk þess að bjóða upp á fleiri miðla og aðstöðu fyrir fjöl breyttari verkefnavinnu. Þannig getur skólabókasafnið verið miðstöð samvinnu milli deilda í skólum og boðið upp á rýmið, tæknina og færnina í upp lýsingalæsi sem er svo mikilvægur hluti af nýsköpun og námi. Skólabókasöfn bjóða upp á rými þar sem er í lagi að prófa sig áfram, gera mistök og læra af þeim. Skólastofan er nefnilega ekki hlutlaust rými og getur verið hamlandi fyrir nýsköpun hjá nemendum sem óttast að gera mistök þar. Bókasafnið er hins vegar hlutlaust rými þar sem má prófa eitt hvað nýtt án þess að hafa áhyggjur af því hvaða einkunn þú færð fyrir það. Safnkennsla Safnkennslan í dag beinist bæði að því að kenna nem­ endum að nota bókasafnið til að afla sér heimilda en einnig að því að efla upplýsingalæsi. Við sýnum þeim t.d. Wikipedia og ræðum svo muninn á ritstýrðum heimildum, eins og bókum og Vísindavefnum og opnum heimildum þar sem hver sem er getur sett inn hvaða upplýsingar sem er. Safnkennslan fer fram á bókasafninu en við förum líka inn í kennslustundir. Við heimsækjum sem dæmi íslenskuhópa þar sem við notum veggspjald frá IFLA (International Federation of Library Associations and Institutions) sem eins konar leiðarvísi í kennslu um upplýsingalæsi. Þar förum við yfir greiningu upplýsinga og gagnsemi, kennum nemendum að þekkja áróður, auglýsingar o.s.frv. Mynd 2: HLJóðver Mynd 3: Þríviddarprentarar

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.