Bókasafnið - mar. 2024, Page 27
Bókasafnið 44. árg – 2024 27
Ýmis konar upplýsingaþjónusta
Í dag er stærsta hlutverk okkar að vera upplýsingamiðstöð skólans. Þangað sækja nemendur
og kennarar sér upplýsingar og heimildir til stuðnings vinnu og námi. Við aðstoðum að
auki nemendur með hin ýmsu mál ótengd skólanum, t.d. hvernig á að lesa úr launaseðlum,
skrifa ferilskrár, sækja um styrki o.fl. Einnig aðstoðum við reglulega tilvonandi nemendur
við að sækja um skólavist. Þessi þjónusta hefur ekki verið sérstaklega auglýst, en nemendur
virðast treysta því að geta nálgast alls konar upplýsingar hjá okkur og fengið aðstoð. Við
viljum viðhalda þeirri ímynd og efla til framtíðar. Við viljum að bókasafnið sé staður sem
má leita til og framtíðarbókasafnið sjáum við fyrir okkur sem miðstöð upplýsinga og upp
lýsingaþjónustu í skólanum. Bókasafnið verði vettvangur fyrir samstarf milli stoðdeilda
skólans svo nemendur geti sótt alla þjónustu á einn stað.
Pláss fyrir öll
Nemendur okkar nota bókasafnið mikið og þjónustan sem við bjóðum upp á verður sífellt fjöl
breyttari. Við vonumst til þess að sú verði einnig raunin á nýja bókasafninu. Við viljum áfram
leggja áherslu á að þar sé boðið upp á faglega upplýsingaþjónustu og fyrirtaks námsaðstöðu.
Við viljum líka að nemendur komi til okkar milli kennslustunda og nýti aðstöðuna til að læra,
komast í tölvu, tefla, vinna hópverkefni, lesa nýjustu bókina í mangaseríunni sinni, eða
bara til að „hanga“. Framhaldsskólar eru líflegir staðir í eðli sínu og við viljum að bókasafnið
endurspegli það. Á safninu á að vera pláss fyrir öll og það á að vera öruggur staður og afdrep
þeirra sem finna sig ekki í erlinum í matsalnum eða öðrum nemenda rýmum. Bókasafnið hefur
fjölbreyttu hlutverki að gegna í skólastarfinu, bæði faglegu og félagslegu, sem við hlökkum
til að halda áfram að sinna og þróa. Við sjáum fyrir okkur spennandi framtíð á bókasafni
Tækniskólans.
Mynd 5: Lesið í skóLanuM