Bókasafnið - mar. 2024, Qupperneq 28

Bókasafnið - mar. 2024, Qupperneq 28
28 Gróa Finnsdóttir Að verða sjötug Í dag heyrist því blákalt haldið fram að þegar kona verður sjötug sé það eitt og hið sama og að verða fimmtug. Það er að segja eins og fimmtug kona var skilgreind fyrir um sjötíu árum síðan. Af einhverjum ástæðum virðist mér sem þessu hafi aðallega verið haldið á lofti um konur, en hvort það þýði að þetta sé bara skoðun einhverra kvenna í bjartsýniskasti skal látið ósagt. Og ekki veit ég heldur hvenær þessi óvísindalega kenning skaut upp kollinum. Kannski hefur það gerst þegar það uppgötvaðist að flestar sjötugar konur eru bara enn í fullu fjöri, bæði andlega og líkamlega þegar þeim er sagt að nú sé þetta komið gott, gerið svo vel að hætta að vinna því þið eruð orðnar sjötugar (lesist: gamlar). Á sjötugsafmælinu mínu þ. 12. ágúst 2021 fékk ég kurteislega orðað bréf á stofnanaíslensku þar sem mér var sagt upp störfum sem bókasafns­ og upplýsingafræðingi Þjóðminjasafns Íslands eftir þrjátíu og þriggja ára starf. Ég hafði beðið spennt eftir þessu bréfi því elskulegt samstarfsfólk mitt var búið að vara mig við að ég fengi slíkt bréf og voru örugglega búin að mynda áfallateymi á laun ef ég fengi taugaáfall við að lesa það þótt ég vissi hvað í því stæði. Ég var hins vegar vel undirbúin og las bréfið með brosi á vör enda þótt undarleg tilfinning bærðist hið innra við að sjá þetta svona svart á hvítu, enda í fyrsta skipti á ævinni sem mér var sagt upp störfum. Vissulega hálf skrítið með það í huga að ég hafði ekkert brotið af mér í starfi og unnið mín störf bara þokkalega vel að ég held. Mér hafði hins vegar ekki tekist að stöðva tímann og hafði unnið mér það eitt til saka að vera allt í einu búin að lifa í sjötíu ár. Verkefnin eftir vinnu Tilfinningin sem ég hafði þegar ég afhenti lykilspjaldið mitt á skrifstofunni, lokaði dyr unum á eftir mér í síðasta sinn og steig út í veröldina var auðvitað tregafull en jafnframt bærðist með mér tryllt frelsistilfinning. Það fyrsta sem mér datt í hug var að nú átti ég mig algjörlega sjálf, gat sofið út og lesið heilu dagana, nokkuð sem ég hlakkaði mest til á því augnabliki. Síðan bættist við óendanleg runa af skemmtilegheitum sem ég þráði að gera skil: heimsækja gamla og nýja vini, klára hálfprjónuðu peysuna síðan í fyrra, fara oftar í sund og jóga, skoða íslenskar plöntur, fara í útreiðartúr, hlusta á alla hlaðvarpsþættina sem ég átti eftir að hlusta á, gerast sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum, skoða landið mitt, ferðast til út landa, fara á söfn og listsýningar, gerast túristi í Reykjavík, vera fyrirmyndar amma, rækta fjöl skylduna mína og lesa! Loksins gæfist mér tími til að stytta hinn langa lista þeirra bóka sem ég átti eftir að lesa. En fyrst og síðast var unaðslegt til þess að hugsa að núna hefði ég í fyrsta sinn á ævinni raunverulegan tíma til að SKRIFA, nokkuð sem ég hafði dundað mér við á hlaupum og með löngum hléum á undanförnum árum. Já, mér hafði nefnilega þrátt fyrir allt tekist að skrifa bók, skáldsögu, sem ég hafði bitið í mig að gefa út áður en ég yrði sjötug og það tókst. Svo Er líf eftir sjötugt? Höfundur: Gróa Finnsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.