Bókasafnið - mar. 2024, Side 67

Bókasafnið - mar. 2024, Side 67
Bókasafnið 44. árg – 2024 67 Nittedal bókasafnið geymir tæplega 40.000 bækur og eitt af því skemmtilega sem starfsmenn safnsins gera er að mæla með bókum sem þeir hafa lesið og líkar við. Þær bækur eru settar í hillu með bókamerki sem sýnir hvaða starfsmaður mælti með bókinni. Safnið rekur stóran sal sem er nýttur í ýmis konar viðburði og kvikmyndasýningar. Á safninu fara fram fjölbreyttir viðburðir og kom sérstak­ lega á óvart hversu mikið er um viðburði sem tengjast stjórnmálum og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Á safninu er farið að flokka bækur eftir efni eins og t.d. f antasíur, vísindaskáldsögur, gamansögur, spennusögur o.s.frv. Það er mikill sveigjanleiki með að breyta uppröðun bóka og eru miklir möguleikar varðandi það. Safnið er einnig, eins og Majorstuen bókasafnið með fræbókasafn. Það er minna í sniðum, en svipuð hugmyndafræði hvað varðar útlán og skil. Útlit safnsins er mjög aðlaðandi, en eins og í flestum söfnum þá þyrfti barnahornið að fá meira rými. Eftir hádegi var haldið til grunnskólans í Smestad, en bókasafnið í skólanum er bæði skólasafn og almennings­ safn. Safnið er í smærri kantinum ef horft er til þess að skólinn er með rúmlega 700 nemendur. Það munu eiga sér stað endurbætur á skólanum á næstu misserum og mun þá safnið stækka. Skákin er vinsæl í safninu en úrval bóka er mun minna en á hinum söfnunum sem við heimsóttum. Tveir bókasafnsfræðingar tóku á móti okkur, annars vegar forstöðumaður safnsins og hins vegar starfsmaður sem sér um skipulagða sögustund fyrir alla bekki skólans. Þar sem skólinn telur 700 nemendur þarf að skipuleggja ansi margar sögustundir. Hákon krónprins gekk í þennan skóla sem er staðsettur í einum af betri hverfum Oslóar. Þetta safn kemst næst því að vera það sem við köllum hér heima samsteypusafn, en ekki er mikið um þesskonar söfn í Noregi. Eftir annasaman dag var gott að fara saman út að borða og varð æðislegur indverskur staður fyrir valinu. Þar var borðað, drukkið og hlegið fram eftir kvöldi. Þessi samverustund þétti hópinn heldur betur saman og við vorum sammála um mikilvægi þess að fara í svona ferðir saman og kynnast á annan hátt en inni á vinnustaðnum. Mynd 6: nittedaL: bókaMerki seM sýnir MeðMæLi starfsManns Mynd 7: efnisfLokkun og upprÖðun í nittedaL Mynd 8: deicHMan bókasafnið sMestad

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.