Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 22

Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 22
21SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010 • Gera úttekt á lifun eftir fyrsta vaxtartíma og kanna lifun ungplantna þriggja trjátegunda eftir mismunandi áburðargjöf við gróðursetningu. • Búa til ræktunarmódel fyrir jólatré sem hentar við íslenskar aðstæður. Rannsóknaspurningarnar sem leitað var svara við í verkefninu voru: 1. Er munur á lifun og vexti trjátegunda og sam- keppni við illgresi eftir mismunandi áburðargjöf við gróðursetningu? 2. Er munur á milli tegunda hvað varðar áburðar- þörf við gróðursetningu? 3. Hvaða áhrif hefur mismunandi áburðargjöf við gróðursetningu á samkeppni við gras? Langtímatilraunin Þrjár mismunandi barrtrjátegundir: Rauðgreni (Picea abies), blágreni (Picea engelmannii) og stafafura (Pinus contorta) hafa lengsta sögu í jólatrjáaræktun á Íslandi 1, 2, 4 og voru því valdar sem tilraunategundir fyrir verkefnið. Aðal tilraunin var gróðursett í frjósamt og skjólgott ræktarland á Hvanneyri (2. mynd; svæði 1 og 2) í maí 2009, en áður hafði það verið notað undir prófanir á mismunandi stofnum fóðurjurta um langt árabil. Jarðvinnsla fór fram tveimur vikum fyrir gróðursetningu. Allt svæðið var fyrst plægt í 25 cm dýpt með 50 cm breiðum strengjum. Síðan voru strengirnir pinnatættir á 1.000 PTO snúningi. Frekar þungt stilltur jöfnunarvaltari var á pinnatætaranum, þannig að akurinn varð ekki of laus í sér. Tilraunin var hönnuð þannig að hægt var að beita tölfræðilegum aðferðum til að leita svara við rann- sóknaspurningunum. Tilraunasvæðinu, sem var 0,7 ha, var skipt niður í 7 blokkir með 9 reiti í hverri blokk, alls í 63 reiti (e. randomized block design). Í hverjum reit voru gróðursettar þrjár 10-plöntu raðir af stafafuru (kvæmið Skagway frá Alaska), rauð- greni (kvæmið ÖB frá Noregi) og blágreni (kvæmið Rio Grande frá USA). Þéttleikinn í reitnum var 5.000 tré/ha (1,4 m milli plantna) og samtals voru notaðar 1.890 plöntur. Grenitegundirnar voru afhentar frá gróðrarstöð- inni Barra sem 24-gata eins árs plöntur (blágreni) og 40-gata eins árs plöntur (rauðgreni). Plönt- urnar höfðu verið geymdar í frystigeymslu Barra á Egilsstöðum um veturinn í pappakössum og voru teknar úr frystinum aðeins fáum dögum fyrir gróðursetningu og því enn í dvala. Furan var eins árs, ræktuð og afhent í 40-gata plöntubökkum frá gróðrarstöðinni Furubrún í Bláskógabyggð og var sennilega lifnuð. Þrjár mismunandi áburðarmeðferðir voru not- aðar í upphafi verkefnisins: Enginn áburður við gróðursetningu, lítill áburðarskammtur (12 grömm á plöntu) og stærri áburðarskammtur (24 grömm á plöntu), til að kanna áhrif áburðar í mismunandi magni á tegundirnar þrjár. Gert er ráð fyrir að halda áfram mismunandi áburðargjöf á tilraunina til fram- tíðar og einnig bæta við mismunandi umhirðuliðum (klippingum og toppstjórn).4 Að auki voru lagðar út nokkrar smærri aukatilraunir (2. mynd; svæði 2 og 3) til að svara öðrum afmörkuðum spurningum, svo sem mikilvægi skjóls fyrir þessar þrjár trjátegundir, en ekki verður fjallað um þær tilraunir hér. Fyrsta úttekt á lifun og vexti plantna var gerð fyrsta haustið. Þá var lifun allra plantna metin, hæð þeirra mæld með tommustokk og þvermál ákveð- ins hluta þeirra mælt með skífmáli. Undirbúningur plantnanna fyrir vetur var metinn, með því að meta sjónrænt þroska toppbrums (allar tegundir), hvort síðvöxtur hefði átt sér stað (allar tegundir) auk þess sem útlit og hersla toppsprota var metið (greni). Töl- fræðiforritið SAS (SAS Institute Inc.) var notað til að vinna úr niðurstöðunum. Niðurstöður úr fyrstu úttekt á lifun Niðurstöður úr fyrstu úttektinni komu nokkuð á óvart. Þær leiddu í ljós að áburðargjöf á barrtré 2. mynd. Tilraunasvæðið á Hvanneyri, vestan við gamla greniskjólbeltið. Aðaltilraunin var á svæði 1 og 2. Auka- tilraun án skjóls var á svæði 3, austan gamla skjólbeltisins. Mynd: Loftmyndir ehf.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.