Ný menntamál - 01.06.1986, Blaðsíða 15

Ný menntamál - 01.06.1986, Blaðsíða 15
handa frambaldsskólum -------- NámsbraumogMane^n^ 1 HaHHeS OMSSOn Námskrá handa £r amhaldsskólum! APRÍl- Aþessu ári eru Iiðin fjörutíu ár frá síð- ustu gagngeru breytingu á Iöggjöf um framhaldsmenntun. Það er óhætt að segja að á þeim árum, sem liðin eru síðan sú löggjöf leit dagsins ljós, hafi samfélagsgerð okkar tekið stakkaskiptum. Það hefur verið komið til móts við þessar breytingar bæði með nrikilli fjölgun skóla og með breyttu skipulagi námsins þar sem stofnun íjöl- brautaskóla ber einna hæst. Starfsemi þessara skóla hefurtekið mið af þeim hugmyndum sem komu fram í lagafrumvarpi um framhaidsskóla sem fyrst var Iagt frarn á löggjafarþinginu 1976 — 1977 en síðan þá hefur nánast ekkert verið unnið að því að skapa heildaráætl- un um uppbyggingu framhaldsmenntunar. Þó mikið samstarf hafi oft verið milli skóla, senr starfa eftir svip- að fyrirkomulagi, þá hefur vantað mjög á að framhalds- menntun hafi verið skipulögð sem samvirkt kerfi og er óhætt að fullyrða að þetta hafi staðið í vegi fyrir þróun þessarar menntunar. Út frá þessu sjónarmiði hlýtur það að vekja athygli að nú hefur menntamála- ráðuneytið gefið út sérstaka námskrá handa framhalds- skólum, rit upp á yfir 300 blaðsíður með reglum um starfshætti áfangaskóla, lýsingu á markmiðum og megininntaki einstakra námsbrauta, lýsingu á réttind- um nemenda að loknu námi og loks áfangalýsingu í flestum námsáföngum. Ætlunin er að þessi námskrá taki gildi frá og með áramótunum 1986 — 1987. Oft hef- ur gefist minna tilefni til þess að rýna í hlutina. Námskráin er ekki hugsuð þannig að hún eigi að gilda fyrir alla skóla heldur að áfangaskólar semji eigin námsvísa innan þess ramrna sem hún markar. Svo við stiklum á stóru um innihald hennar þá kenrur þar fram að markmið náms í framhaldsskólum sé að veita undir- búning til áframhaldandi náms og starfa, auk þess að veita almenna menntun sem nýtist í daglegu lífi. Nám- ið greinist í átta námssvið sem síðan greinast í brautir þar sem hverri braut er ætlað að veita menntun sem sé verulega frábrugðin þeirri sem önnur braut veiti. Lág- markseinkunn til að standast próf í áfanga er nú 5 sem merkir að 45% markmiða áfangans skuli náð. Viðmið- unarreglur eru settar um hámark og lágmark þeirra eininga sem nemanda ber að ljúka, um stöðupróf, hæg- ferðir og hraðferðir, um áfanganám án þess að sækja kennslustundir, um utanskólanám og um einingamat á skólasókn. Mestum hluta ritsins er varið undir brauta- og þá sérstaklega áfangalýsingar. í brautalýsingum kemur fram að átta námsbrautir leiði til stúdentsprófs og þar er þess krafist að allir nemendur ljúki minnst 15 einingum í íslensku, 6 í dönsku, 9 í ensku, 12 í þriðja máli, 12 bæði í samfélags- og raungreinum, 15 í stærð- og tölvufræði og 8 í íþróttum. Frá þessu eru frávik á tæknibraut sem er sérstaklega ætluð nemendum sem hafa lokið iðnnámi. I námskránni er skilgreiningu Iðnfræðsluráðs á brautum fylgt hvað varðar nám sem það hefur yfirumsjón með. Það sama gildir um áfanga- lýsingar þess náms en aðrar áfangalýsingar eru að mestu nýjar. Nú segja svona upplýsingar um helstu atriði auðvit- að mjög lítið um raunverulega þýðingu þessarar námskrár því mestu skiptir hvaða nýjungar sé þar að finna. Við mæltum okkur því mót við Hörð Lárusson, deildarstjóra framhaldsskóladeildar menntamálaráðu- neytisins, og báðum hann að segja okkur frá aðdrag- anda þess að námskráin varð til, gildi hennar og helstu nýjungum. Á annað hundrað manns unnu að verkinu Hörður sagði námskrána vera nokkurs konar fram- hald þeirrar vinnu sem var unnin við gerð áðurnefnds framhaldsskólafrumvarps og heimildarlöggjafar frá 1973 um stofnun fjölbrautaskóla. í lagaákvæðum væri almennt gert ráð fyrir að ráðuneytið setti skólum námskrár og að byrjað hefði verið á þessu með skipan nefndar árið 1971 sem síðan hefði skilað niðurstöðu sinni í ágúst 1984. Þegar svo kom í ljós að áfangaskólar hefðu á síðastliðnu ári byrjað samráð um endurskoðun námsvísa sinna hefði tekist samkonrulag um að verkið yrði unnið undir forystu ráðuneytisins. Karl Kristjáns- son var í byrjun þessa árs ráðinn til að sinna þessu verkefni og þá hefði verið ákveðið að gefa út það sem fyrir lægi nú í vor. Verkið var unnið á þann hátt að í ráðuneytinu voru gerð drög að greinargerð um markmið framhaldsnáms, skólameistarar, — í samvinnu við fulltrúa frá háskól- unum og iðnfræðsluráði, — tóku saman reglur um starfshætti skólanna og lýsingu á markmiðum og megininntaki einstakra brauta auk lýsinga á réttindum nemenda að námi loknu. Fulltrúar fagkennarafélaga unnu síðan að gerð áfangalýsinga í hiutaðeigandi grein- um. Þannig tóku á annað hundrað manns þátt í að vinna að þessu verki. Aðspurður um hvers vegna al- mennir kennarar og nemendur hefðu ekki tekið þátt í að móta markmið skólanna og einstakra brauta sagði Hörður að ráðuneytið hefði fengið skólastjóra til þess m.a. á þeim forsendum að þeir hcfðu á bak við sig hópa kennara og nemenda sem þeir hefðu getað haft samráð við í stefnumörkun sinni. Þegar Hörður var spurður um tilgang útgáfunnar sagði hann að með henni skapaðist heilleg mynd af því námi sem boðið er fram í skólunum og það auðveldaði svo miðlun upplýsinga til almennings. Með samræmdu námskránni væru réttindi nemcnda gerð ljósari en áður og þeir ættu einnig auðveldara með að flytjasl á milli skóla án þess að námseiningar þeirra ónýttust við það.

x

Ný menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.