Ný menntamál - 01.06.1986, Blaðsíða 25

Ný menntamál - 01.06.1986, Blaðsíða 25
Kvennalistinn Fyrirspurnir: Kennsluréttindi kennara í grunn- og framhaldsskól- um. Lögverndun á starfsheitum kennara. Kynlífsfræðsla í skólum. Kennsla í útvegsfræðum við Há- skóla íslands. Útibú frá aðalskóla. Aðgangur skóla að náms- og kennslugögnum í öllum fræðslu- umdæmum. Staða lektors í íslensk- um bókmenntum við heimspeki- deild Hf. Norsku- og sænskunám í grunn- og framhaldsskóla. Nám í ferðaþjónustu. Þingsályktanir: Skipulagning námsbrauta á sviði sjávarútvegs. Fullorðinsfræðslulög. Skólasel. Fræðsla um kynferðismál. Friðar- fræðsla. Lagafrumvörp: Fjarnám ríkisins. Heilbrigðisfræðsluráð. Kvennalistinn sagðist ætla að leggja áherslu á aukin áhrif for- eldra, kennara og nemenda á stjóm skóla, jafna aðstöðu barna til náms, skólasel í sveitum landsins, fram- boð allra grunnskóla á kennslu í níunda bekk, fullorðinsfræðslu (fjarnám), aukið fjármagn til Náms- 24 gagnastofnunar, lögverndun á starfsheitum kennara, bætt kjör kennara, fjármagn til Háskóla ís- lands, stóraukna heimilisfræðslu, fræðslu um stöðu kynja, aukna kynlífs- og heilbrigðisfræðslu og friðarfræðslu. Kvennalistinn lagði á nýloknu þingi ekki fram nein mál sem snerta áhrif foreldra, kennara og nemenda á stjórn skóla, bætt kjör kennara. fjármagn til Háskóla íslands, heim- ilisfræðslu, kynlífs- og heilbrigðis- fræðslu né friðarfræðslu. Af áherslumálum samtakanna eru þau aðili að málum sem snerta skólasel og jafna aðstöðu barna til náms, fullorðinsfræðslu, fjamám, aðgang að kennslutækjum, lögverndun á starfsheitum kennara, stöðu kynja í fræðslu, kynlífs- og heilbrigðis- fræðslu og friðarfræðslu. Auk þessa hefur Kvennalistinn átt þátt í mál- um um útvegsfræði í framhalds- og háskóla, stöðu norsku og sænsku í skólum og nám í ferðaþjónustu. Bandalag jafnaðarmanna Fyrirspurnir: Engar Þingsályktanir: Jafn réttur til fræðslu óháð námsleiðum og náms- stigum. Skólasel. Lagafrumvörp: Engin Bandalag jafnaðarmanna sagðist ætla að stefna að betri vinnuskil- yrðum nemenda og kennara, hærri launum kennara, fæði fyrir kennara og nemendur og að dregið yrði úr stéttskiptingartilraunum Sjálfstæð- isflokksins á nemendum í grunn- skóla. Bandalag jafnaðarmanna lagði á þinginu ekki fram mál sem snerta betri vinnuskilyrði og laun kennara w þriðja tölublaði á síð- Iasta ári voru fulltrúar þingflokkanna spurðir unr hvað sett yrði á oddinn hjá þeim í skólamálum á 108. Iöggjafarþinginu og þar sem því er nú nýlokið er komið að okkur að standa við loforð um að fylgst yrði með hvernig flokkunum tækist til. Rétt eins og þeim hefur reynst erfitt að standa við sín loforð þá eigum við nú í erfiðleikunt: Ogerlegt er fyrir okkur að skoða önnur mál en þau sem hljóta opinbera umfjöllun á þingi þannig að ekki er hægt að taka tillit til málefna sem eru rædd innan þingflokka, í nefndum og í almennum umræðum; ómögulegt er að sjá hvernig þingmálum reiðir af eða hvernig þeim er tekið af ein- stökum þingmönnum og -flokkum; ekki er hægt að leggja mat á þingmálin hvorki hvað varðar gæði Þeirra né þá undirbúningsvinnu sem liggur að baki þeim; erfitt getur verið að meta hvaða málefni teljast skólamál og einnig hvort áherslu- atriði flokkanna birtast síðan í Þingmálum þeirra. Rétt er þó að iaka fram að formönnum allra pingflokkanna var boðið að gera athugasemdir við þessa grein og bárust ábendingar frá einum þeirra sem tekið hefur verið tillit til. Með ofangreinda fyrirvara í huga er niðurstaða okkar sú að í skóla- málum hafi á síðasta þingi verið lögð fram fimm lagafrumvörp, tólf bingsályktanir og fjórtán fyrir- spurnir. Það hlýtur að teljast at- hyglisvert að engin þingsályktan- anna og aðeins eitt lagafrumvarp (um lögvemdun kennarastarfa) náði lengra en til nefnda þingsins. Við skulum nú skoða hvernig þessi Þingmál falla að áðurgreindum áhersluatriðum flokkanna. Hversu vakandi voruf'okkarnir í skólamálum? (Fjöldi þingmála sefl1 ri°kkarnir áttu aðild að) Fyrirspurnir Þingsálykt- anir Lagafrum- vörp Kvlisti 9 B.jafn. 0 3 0 Aiþn. o Samtals 16 Frfl. 1 3 1 Alþbl. 3 Sjfl. 0 3 2 11 né fæði fyrir þá og nemendur. Af stefnumálum Bandalagsins er það aðili að málum sem snerta bætt vinnuskilyrðinemendaog jöfnuð til náms. Bandalag jafnaðarmanna hefur ekki átt aðild að öðrum mál- um. Alþýðuflokkurinn Fyrirspurnir: Engar Þingsályktanir: Stefnumörkun í skólamálum. Sameining Kennara- háskóla íslands og Háskóla íslands. Skipulagning námsbrauta á sviði sjávarútvegs. Fullorðinsfræðslulög. Jafn fréttur til fræðslu óháð náms- leiðum og námsstigum. Skólasel. Lagafrumvörp: Engin Alþýðuflokkurinn sagðist ætla að leggja áherslu á jafnrétti til náms, hærri laun kennara, jafngildi verk- og bókmenntunar, snertingu nem- enda við atvinnulífið, stóraukna móðurmálskennslu, fræðslu um menningararf íslendinga, endur- menntun vegna tæknivæðingar, stefnumótun í skólamálum, endur- skoðun laga um Kennaraháskóla íslands og löggjöf um framhalds- skóla. Alþýðuflokkurinn lagði á ný- Ioknu þingi ekki fram nein mál sem snerta hærri laun kennara, snert- ingu nemenda við atvinnulífið, rækt við móðurmálið né menning- ararf íslendinga. Af ofangreindum áherslum hafa þingmál flokksins snert jafnrétti til náms, jafngildi verk- og bókmenntunar, endur- menntun vegna tæknivæðingar, stefnumörkun í skólamálum, end- urskoðun laga um Kennaraháskól- ann og löggjöf um framhaldsskóla. Flokkurinn hefur ekki átt aðild að öðrum málum. Framsóknarflokkurinn Fyrirspurnir: Engar Þingsályktanir: Skipulagning námsbrauta á sviði sjávarútvegs. Framhaldsnám í sjávarútvegsfræð- um á Höfn í Hornafirði. Lagafrumvörp: Lögverndun á starfsheitum kennara (stjórnar- frumvarp). Framsóknarflokkurinn sagðist ætla að ella grunnmenntun, stuðla að námsjöfnuði milli landshluta, bæta laun kennara, efla vísinda- rannsóknir og tækninám í háskól- anum, styrkja tengsl nútíðar og for- tíðar og ella móðurmálskennslu. 71. Tillaga til þingsályktunar jávarútvegsfræðum á Höfn í Hornafirði. 131. Tillaga til þingsályktunar ísbrauta á sviði sjávarútvegs. li Alexandersson. Helui Splian u- 123. Fyrirspurn nnslu í útvegsfræðum við Háskóla íslands. Frá Guðrúnu Agnarsdóttur. Framsóknarflokkurinn hefur ekki átt aðild að þingmálum sem snerta bætt laun kennara, eflingu vísindarannsókna og tæknináms í Háskóla íslands, styrkt tengsl nú- tíðar og fortíðar né eflingu móður- málskennslu. Lagafrumvarpið snertir þau áhersluatriði flokksins að efla grunnmenntun og stuðla að námsjöfnuði milli landshluta. Flokkurinn hefur auk þess tekið þátt í að flytja mál um sjávarútvegs- fræði í framhaldsskólum. 25

x

Ný menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.