Freyja - 01.01.1906, Síða 43
VIII. 6.
FREYJA
Bréf frá Kaupmannahöfn.
171
M. okt. J'DOö.
Iværa frú Bríet Asmuudsson!
Eg; á að flytja yður margar hjartanlegar kveðjur hér að heiman og
innilega fullvissu um livað fegnnr við viljum hafa yður með okkur til
að berjast fyrir kjörgengi kvenna. Kjörgengisféiagið er myndað af 14
féiögum og vildi fegið fá íslenzkt kvennfélag með, eins og 15. félagið.
Konurnar hérna vilja standa samhliða ykkur. Mvað mér viðvíkur, þá
tinnst mér, að við svíkjum þó alþjóða kjörgengisfélagið um beint tillag
frá ykkuref þið gangið inn í þnð saman með okkur. Eg er sannfærð
um að þvf verður öllu raðað niður á beztan hátt á Lundúnafundinum,
svo þið getið gengið inn í sambandið, sem sérstakt félag.
Eyrst um sinn getum við látið eitt fulltrúasætið bíða eftir ykkur-
Við höfum sex fulltrúa. En munið, að þið eruð boðnartil Lundúna
þótt þið séuð ekki enn þá gengnar inn í félagið. Við viljum fegnar , fá
að heyra hvernig þið fenguð kosningarrétt og kjörgengi í sveitastjórn-
armálum og hvernig þið notið hann. Öllum öðrum fremur eruð þér
lioðin sem gestur og íslenzka konan, sem er í Cambridge getur sjálfsagt
lika orðið boðin sem gestur.
Eg er viss um, uð á Lundúnafundinunt yrði fundið, form handa
þeim löndum, sem ekki eru fylliiega sjálfstæð, svo þau gætu haft sína
sérstöku fulltrúa á fundinum og gengið inn í félagið út af fyrir sig. Af
slíkum löndum er töluvert til, Það væi'i gott, bæði vegna sameiginlegs
félagssjóðs og beinnar samvinnu, sem fengist með því móti. En ef þ'ð
viljið það heldur, þá getið þið gengið inn í okkar dönsku kjöi'gengis-
deild, eins og eitt af okkar félögum. Þið þurfið ekki að vera neitt sér-
stakt kosningaréttarfélag. En svo verður eitt fulitrúasætið að standa
autt, og við verðum að fá sem allra fyrst að vita hvað þið ráðið af.
En þér eruð samt sjálf boðin af forsetanum, frú Chapman Catt til
að vera fulltrúi á fundinum. Það er ef til vill eins gott fyrir ykkur
að vera að eins b o ð n a r og bíða með að ganga inn í félagið fvr en eft-
ir fundinn, þegar eitthvert fast skipulag er fundið fyrir ykkur, sein ég
vona að verði. Eg ann hjartanlega Islandi að standa sjálfstætt í beinni
samvinnu með svo ágætu fólki. Þó vil ég að þiðvitið, hve gjarna við
hér í Danmörku opnum okkar félög fyrirykkur, cg hve fegnar við vilj-
um standa ykkur samhliða í því að vinna fyrir kvennfólkið.