Tíminn - 06.05.1919, Side 7

Tíminn - 06.05.1919, Side 7
TÍMINN 127 Samþykt, sem ráöhcrra heflr staðfest, má ekki breyta eöa úr gildi nema á annan hátt en þann, sem hún var stofnuö á. 36. gr. í samþykt skal ávalt kveða á um umsjón og viðhald fyrirtækja og mannvirkja þeirra, sem samþyktin ræðir um, og ef um sam- áveitu er að ræða, um stjórn hcnnar, svo og um greíðslu kostnaðar, cr af þessu leiðir. 37. gr. Pegar ióggilt samþykt hefir verið sett um samáveitu, eru ailir, landeigendur og leigu- liðar á þvi svæði, sem áveitunni er ætlað að ná yfir, skyldir til að leyfa landsafnot til mannvirkja þeirra, cr áveituna snerta, svo sem land undir skuröina, og að efni sje tekið úr landinu, hvort heldur er grjót eða önnur jarðefni, i fyrirhleðslur, garða, stifiu- gerðir eða umbúnað skurða o. s. frv., og yfir höfuð að þola þær kvaðir, óhagræði eða takmörkun á afnotarjetti, scm áveitu- verkið hefir í för með sjer, enda komi fuliar bætur fyrir. Bætur lyrir jarðrask og landnám á óyrktu landi skulu því að eins greiddar, að álitið verði að landeigandi bíði skaða við það. Náist ekki samkomulag milii landeiganda og stjórnar samáveitunnar um bæturnar, skal matsnefnd úrskurða. Kostn- aður við matið telsi líl útgjalda samáveit- unnar. 38. gr. Kostnaði öllum við samáveitu skal stjórn hennar skifta milli landareigna aðallega eftir stærð þess lands, sem vatn næst yfir. Pó skal taka nokkurt tillit til þess, hvernig hver landareign liggur við áveitunni, og hver not geta orðið af henni fyrir landareignina í samanburði við aðrar landareignir. Verði ágreiningur um skiftin, skal matsnefnd skera úr. Borgun til þeirra telst til kostnaðar við samáveituna. 39. gr. Vilji einhver, eftír að samáveitu hefir verið komið á, gerast hluttakandi í henni á þann hátt, að fá vatn til áveitu á land sitt, þá hefir hann rjeit til þess, ef það að dómi matsnefndar er bagalaust fyrir samáveiluna. En skyldur er liann þá að taka þátt i kostn- aði öllum við samáveituna, bæði stofnkosln- aði og árskostnaði, að rjettri tiltölu við aðra sem hlut eiga að máli. Að auki er hann skyldur að grsiöa borgun til matsnefndar fyrir störf hcnnar samkvæmt þessari grein. 40. gr. Nú er samþykt gerð um samáveitu, og skal þá leiguliði leita samkomulags við landeiganda um það, hvernig kostnaðinn skuli greiða. Vilji landeigandi leggja fram kostnaðinn, er leiguliði skyldur til að greiða árlegan kostnað við viöhald, stjórn og um- sjón áveitunnar og ennfremur eftirgjalds- auka, eftir mati, ef eigi semur, en kostnað við það mat greiði landeigandi og leiguliði að helmingi hvor. Vilji landeigandi ekki leggja fram kostn- aðinn við áveituna, er rjett að leiguliði geri það. Pegar leiguliði fer frá jörðinni, skal metið hversu mikið jörðin megi liækka að varanlegu eftirgjaldi fyrir áveituna, og fær þá leiguliði endurgoldinn áveitukostnaðinn annan en viðhaldskostnað, umsjónar- og stjórnarkostnað, þó ekki meira cn sem svarar fimtánföldum eftirgjaldsauka þeim, sem metinn er. 41. gr. Ef hvorki landeigandi nje leiguliði vill leggja fram áveitukostnaðinn samkvæmt 40. gr., getur stjórn samáveitunnar krafist þess, að jörðín sje tekin eignarnámi handa samáveitunni. 42. gr. Lðgtaksrjettur fylgir gjöldum þeim, sem

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.