Morgunblaðið - 12.09.1986, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986
Að klappa í kirkju
-eftirÁsmund
Brekkan
Nýlegt hirðisbréf biskupsins
yfir íslandi hefur verið nokkurt
fréttaefni. Enda þótt ég sé einn
af hjörðinni, sem bréfið er stílað
til, er póstgangur með þeim hætti,
að mér hefur ekki borizt. Hinsveg-
ar hafa fjölmiðlar gert efni
bréfsins góð, og ég vænti, rétt
skil, þannig að innihald þess hefur
borizt hjörðinni sæmilega ómeng-
að. Er þar margt gott og raunar
flest umhugsunarvert og allt í
samræmi við þá hegðun og mark-
mið þau, sem heyra siðmenntuðu,
kristnu vestrænu þjóðfélagi til.
Þó er þama tekið til umræðu
smámál, sem hefur bólgnað nokk-
uð í meðförum fjölmiðla og sjálf-
skipaðra skoðanaspekinga (eins
og mín) í þeim. Eg á þar við
umræðu Biskupsins um, hvort
megi láta í ljósi þakkir, hrifningu
og ánægju með athafnir í guðs-
húsum, svo sem tónleika, með því
að klappa!
Herra biskupinn hefur útaf fyr-
ir sig ekki neina fastmótaða
skoðun á þessu efni, og er það
honum til mikils hróss, og raunar
í samræmi við nútímalegan anda,
sem vonandi hefur losað sig að
mestu við strangtrúarkreddur
vantúlkaða Lúters sáluga á átj-
ándu og nítjándu öld. Utaf fyrir
sig sýnist mér það bera vott um
nokkum yfirdrepsskap af hálfu
kirlqunnar að taka þetta atriði til
umræðu, svo sjálfsagt fínnst mér,
Ásmundur Brekkan
„ Að lokinni þessari
athöfn er það venjan
að söfnuðurinn þakki
fyrir sig með lófataki.
Hver er sá staður í
kristninni, sem telst
öllu heilagari en Pét-
urskirkjan í Róm?“
að söfnuði í kirkju sé ieyfílegt og
beri raunar að láta í ljósi þakkir
sínar, aðdáun og hriftiingu með
þeirri aðferð, sem í menningu
okkar er eiginlegast að beita í
hópi, nefnilega lófataki.
Ég hefi oft verið við messur í
kaþólskum stórkirkjum þar sem
messugerð lýkur með flutningi
fagurs tónverks, annaðhvort org-
elsólói, eða ekki síður eða sjaldnar
verki fyrir litla hljómsveit og/eða
kór. Að lokinni þessari athöfn er
það venjan að söfnuðurinn þakki
fyrir sig með lófataki. Hver er sá
staður í kristninni sem telst öllu
heilagari en Péturskirkjan í Róm?
Þar, og fyrir utan fagnar söfnuð-
urinn Pápa sínum með áköfu
lófataki. Persónuleg viðbrögð mín
eftir marga aðdáunarverða, vel
flutta og fagra kirkjutónleika í
Skálholtskirkju hafa verið hálf-
gerð tómleikakennd og ófullnægja
vegna þess að ég hefí ekki getað
fengið að sameinast öðrum kirkju-
gestum í því að þakka fyrir mig,
ekki eingöngu fyrir hina fluttu
list, heldur einnig fyrir að hafa
fengið að njóta hennar í svo frið-
sælu og góðu umhverfí.
Því er það nú spuming mín til
herra biskupsins, og þá ekki síður
til þeirra samstarfsmanna hans,
sem vafalítið hafa átt þátt í, að
þessi „klappklausa" var tekin með
í hirðisbréfíð: Hversvegna ætti
það að vera Drottni vanþóknan-
legt að láta í ljósi aðdáun, þakk-
læti og virðingu með lófataki?
Hvaðan í textum testamentanna
kemur sú speki? Stendur ekki ein-
mittskrifað: „Exultate, jubilate"?
Höfundur er prófessor við
lækrmdeild Háskóla íslands.
Sigurður Þorsteinsson fram
kvæmdastjóri UMFÍ.
Sigurður
Þorsteinsson
framkvæmda-
stjóri UMFÍ
STJÓRN Ungmennafélags ís-
lands hefur ráðið Sigurð Þor-
steinsson í starf framkvæmda-
stjóra. Sigurður hóf störf á
skrifstofu UMFÍ síðastliðinn mið-
vikudag.
Sigurður, sem er 33 ára viðskipta-
fræðingur, hefur að undanfömu
starfað sem ráðgjafí hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins, en áður starfaði
hann hjá Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis, síðast sem markaðsstjóri.
Sigurður hefur starfað í íþróttafélög-
um og verið knattspymuþjálfari hjá
nokkrum félögum, bæði á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landi.
Sigurður Geirdal, sem lengi var
framkvæmdastjóri UMFÍ, hefur nú
látið af því starfi og gerst fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins.
Listahátíð:
Fulltrúar
listamanna
kjörnir í
framkvæmda-
sljórn
Á fulltrúaráðsfundi Listahá-
tíðar 1986, sem haldinn var 8.
sept., voru kjörnir nýir fulltrúar
listamanna í framkvæmdastjórn
Listahátíðar. Þá var einnig lögð
fram tillaga um sýnisbók Lista-
hátiðar.
Nýkjömir fulltrúar listamanna í
framkvæmdastjóm Listahátíðar eru
Karla Kristjónsdóttir listfræðingur,
Gunnar Egilsson tónlistarmaður og
Arnór Benónýsson leikari. Fulltrú-
arnir koma í stað þeirra þriggja,
sem sátu í framkvæmdastjóm há-
tíðarinnar en gáfu ekki kost á sér
til endurkjörs.
í tillögu Kristins Hallssonar um
gerð sýnisbókar Listahátíðar segir
meðal annars: „Gerð verði sýnisbók
um Listahátíð frá upphafí í tilefni
þess að næsta hátíð, sem verður
haldin 1988, er sú tíunda í röðinni.
Bók þessari sé ætlað að vera alhliða
kynningarbók um Listahátíð og á
þeim listamönnum sem komið hafa
fram á hátíðinni og komi út bæði
á íslensku og ensku. Ritstjórar
verksins verði þeir Birgir Sigurðs-
son, rithöfundur og forseti Banda-
lags íslenskra listamanna, og
fráfarandi formaður Listahátíðar
’86, Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndaleikstjóri og skal sá síðast-
nefndi jafnframt hafa umsjón með
framkvæmd verksins."
26600— Skotland:
allir þurfa þak yfirhöfudið
Atvinnuhúsnæði
Til sölu
Húseign Bílaborgar
Húsið sem er vinkilbyggt hús og stendur á horni Dvergs-
höfða og Höfðabakka, skiptist þannig:
Álman með Höfðabakka er 2x600 fm, innkeyrsla á báð-
ar hæðir.
Álman með Dvergshöfða er 2x528 fm með innkeyrslu
á báðar hæðir.
Auk þessa er 180 fm skrifstofuhæð sem tengd er öllum
hlutum hússins og getur því selst með hvorri sem er.
Afgirt port er norðan við húsið. Glæsilegir útstillinga-
gluggar. Fullgerð og vönduð eign er getur hentað
allskonar rekstri. Góðar lofthæðir.
Selst í einu lagi eða pörtum.
í Mjóddinni
138 fm verzlunarhúsnæöi á jarðhæð. Verð: 45 þús. pr. fm.
118 fm verzlunarhúsnæði á jarðhæð. Verð: 45 þús. pr. fm.
538 fm skrifst./verzlhúsn. á 2. hæð. Verð: 27 þús. pr. fm.
357 fm skrifstofuhúsn. á 3ju hæð. Verð: 25. þús. pr. fm.
Húsið stendur milli Landsbanka íslands og verzlunarinn-
ar Víðis.
Afhendist tilbúið undir tréverk í desember 1986. Hægt
að byrja að innrétta verzlunarhúsnæði í október nk.
Teikningar á skrifstofunni.
Ath. nú er verið að opna nýju Reykjanesbrautina milli
Hafnarfjarðar og Breiðholts.
26600
Fasteignaþjónustan
Austursfræti 17, s. 26600
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali.
Tólf börn hafa látist
úr heilahimnubólgu
Engin aukning hér á landi að sögn landlæknisembættisins
Heilbrigðisyfirvöld í
Skotlandi hafa sent foreldr-
um 80.000 barna í héraðinu
Fife bréf þar sem þeir eru
hvattir til að fylgjast með
einkennum heilahimnu-
i
27750
V/
4
1
27150
Ingólfsstræti 18 - Stofnað 1974
VERIÐ VELKOMIN
Sýnishorn úr söluskrá
OPIÐ 13-17
SUMARBÚSTAÐUR
Þessi fallegi sumarbústaður er til.
sölu. Hann er á Mýrum ca 12 km
frá Borgarnesi. Landið umhverfis
bústaðinn er ca 4 hektarar, girt
og kjarri vaxiö. M.a. einkaraflína.
I Lögmenn Hjalti Stainþórsson hdl., Gústaf Þór Tryggvason hdl. M
—26600-------------------------
Vantar einbýlishús
Höfum kaupanda að glæsilegu einbýlishúsi á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Kaupverð allt að kr. 15 millj.
Höfum kaupanda að góðu nýlegu einbýlishúsi, t.d. í
Selási eða Breiðholti, Garðabæ og víðar. Kaupverð allt
að kr. 10 millj.
7 rr nrÆ
hJ MJ MJMJ fít Þofsteinn Steingrimsson
Iðgg. fasteignasali
bólgu, en í ár hafa 12 börn
látist af hennar völdum,
þrisvar sinnum fleiri en í
fyrra og árin þar á undan.
í bréfunum er foreldrum
bent á mikilvægi þess að
uppgötva sjúkdómseinkenn-
in nægilega snemma til að
lækning geti átt sér stað.
I nýlegri frétt í Times eru for-
eldrar hvattir til að bregðast við
einkennum svo sem háum hita,
sárum höfuðverk, stirðleika i hálsi
og húðútbrotum, en haft er eftir
læknum að auðvelt sé að lækna
þessa tegund heilahimnubólgu ef
nægilega fljótt er brugðist við.
Morgunblaðið hafði samband
við landlæknisembættið vegna
þessarar fréttar og sagði Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir að
heilahimnUbólgufaraldur hefði
gengið hér á landi fyrir nokkrum
árum, en hann hefði verið bundinn
við ákveðið landssvæði, svo til ein-
göngu fundist á AustQörðum,
sjúkdómurinn hefði verið stað-
bundinn í ákveðinn tíma. Hann
sagði að árlega kæmu upp nokkur
tilfelli af þeirri bakteríuheila-
himnubólgu sem fjallað er um í
fréttinni, hér sé um að ræða heila-
himnubólgu sem smitast frá bami
til bams, en við þessari tegund
er ekkert bóluefni til. Aðspurður
sagði hann að embættið hefði
ekki orðið vart við neina ijölgun
heilahimnubólgutilfella hér á landi
að undanfömu.