Morgunblaðið - 12.09.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986
19
Menningarmál:
Háskólakennsla á
Akureyri hefjist eigi
síðar en 1987
ÞINGIÐ skorar á alþingismenn Norðlendinga að hlutast
til um að á fjárlögum 1987 verði fjárveitng til háskóla-
náms á Akureyri, í tengslum við HI eða til sjálfstæðrar
háskólakennslu. Því er beint til menntamálaráðherra að
ráðinn verði starfsmaður til að undirbúa kennslu á há-
skólastigi á Akureyri með það fyrir augum að regluleg
háskólakennsla hefjist eigi síðar en 1987.
Þingið lýsir ánægju sinni með að sækja nám í framhaldsskólum
utan sinnar heimabyggðar. Verði
sá kostur valinn að fela ríkinu
rekstur allrar framhaldsmenntun-
ar, séu tryggð áhrif heimaaðila
við skipan skólanefnda. Jöfnun
aðstöðu til að sækja framhalds-
nám er nauðsynleg enda núver-
andi dreifbýlisstyrkir ófullnægj-
andi.
Því er beint til Menningarsam-
taka Norðlendinga að kanna
möguleika á reglulegum menning-
arhátíðum á Norðurlandi og því
fyrirheiti menntamálaráðherra
um fjárhagsstuðning við þesskon-
ar hátíðir er fagnað.
Þingið tekur undir þau mark-
mið útvarpsstjóra að útsendingar
svæðisútvarpsins á Akureyri nái
til alls Norðurlands. Jafnframt er
skorað á Ríkisútvarp og Póst- og
símamálayfirvöld að ráðast þegar
í þær tækniumbætur, sem gera
þarf til að sendingar svæðisút-
varpsins nái vestur um Norður-
land og austur um til byggða í
Þistilfirði og á Langanesi. Þingið
væntir þess að þetta verkefni komi
til framkvæmda á næsta ári. Þá
telur þingið að leggja þurfi áherslu
á frétta- og efnisöflun í hinum
dreifbýlli byggðum Norðurlands.
Þá ítrekar þingið fyrri ábend-
ingar um að fast starfslið verði
ráðið á vegum sjónvarpsins með
aðsetri á Akureyri, sem sinni verk-
efnum um allt Norðurland í
samstarfi við fréttaritara og
heimamenn. Þannig verði norð-
lensku fréttaefni veittur greiðari
aðgangur að fréttaþáttum sjón-
varpsins.
Sigfús Jónsson ____________________
Æskilegt að þjappa
sveitunum saman
þá nefnd sem skipuð var til að
undirbúa samræmda lagasetningu
um allt framhaldsskólanám í
landinu, en bendir jafnframt á það
fjárhagslega misrétti, sem er
ríkjandi á milli sveitarfélaga um
greiðsluskyldur sveitarfélaga
vegna framhaldsmenntunar.
Þingið telur að kanna þurfi kosti
og galla þess að ríkið yfirtaki
rekstur framhaldsskólana eða
sveitarfélögum verði gert kleift
fjárhagslega að eiga aðild að
rekstrinum og þá sitji öll sveitarfé-
lög við sama borð. Gera þarf í
könnuninni grein fyrir áhrifum á
hag og aðstöðu nemenda er þurfa
— segir Sigfús Jóns-
son, bæjarstjóri
á Akureyri
„ÞJAPPA verður þjónustustörf-
um í tvær til þijár stjórnsýslu-
miðstöðvar úti á landi, en gæta
verður þess að litlu staðirnir
verði ekki út undan — þeir
myndu fá að njóta forgangs á
sviði sjávarútvegs," sagði Sigfús
Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri.
„Það þarf að taka sveitarstjórn-
armál til gagngerrar endurnýjunar
og þjappa sveitunum svolítið sam-
an, fækka litlu sveitarfélögunum,
enda hlýtur það að vera erfítt fyrir
þjóð, sem aðeins telur 240.000 íbúa,
að hafa áfram allar þessar héraðs-
og sveitarstjómir. Menn verða oft
á tíðum að horfa fram hjá sínum
hreppum til að geta litið á heildina
og þurfa stjómmálamenn einnig að
líta fram hjá eigin flokkum til að
geta séð skóginn fyrir trjánum."
Sigfús sagði að betur gæfist að
stofna útibú ríkisstofnana úti á
landi í stað þess að færa heilu stofn-
animar til þegar þær hefðu einu
sinni tekið til starfa annars staðar,
sbr. Byggðastofnun. Eins þegar
nýjar stofnanir eru settar á laggim-
ar, þá ætti strax að koma þeim
fyrir á fyrirfram ákveðna stjórn-
Skólabílstjórar á launaskrá
hjá ríkinu eins og annað
starfsfólk skólanna
— segir Sturla Krisljánsson, fræðslustjóri
„Skólaakstursmálið snýst ekki
um hver borgar — ríkið gerir það
hvort sem er ef sveitarfélögin
þurfa nýja tekjustofna vegna þess
— heldur um það hver sér um
reksturinn," sagði Sturla Kristj-
ánsson, fræðslustjóri Norður-
Pálmi Jónsson
Þarf lagabreytingu til að
ríkið geti hætt að aðstoða
við skólaaksturinn
— segir Pálmi Jónsson,
formaður fjárveit-
inganefndar
„EINFALDUR niðurskurður í
fjárlögum til lögbundinna verk-
efna ríkisins, t.d. skólaakstursins
og sérkennslunnar, dugar ekki,
heldur þarf að koma til sérstakr-
ar lagabreytingar á grunnskóla-
lögunum sem tæki af skyldur
ríkisins til þessara verkefna á
árinu 1987. Umræður um það
hafa ekki farið fram í stjórnar-
flokkunum, mér vitandi," sagði
Pálmi Jónsson, formaður fjár-
veitinganefndar, í samtali við
Morgunblaðið.
Hann sagðist telja að Alþingi
myndi vilja bíða endurskoðunnar
grunnskólalaganna áður en það
tæki afstöðu. „Óheppilegt er að
ræða afgreiðslu fjárlaga í einstök-
um atriðum á meðan þau eru á
vinnslustigi. Niðurstöðu þarf að ná
innan stjórnarliðsins áður en þau
eru rædd. Ég tel að ýmsu þurfí að
breyta í skipulagi og verkaskiptingu
milli ríkis og sveitarfélaga í skóla-
málum og skerpa þar fjárhagslega
ábyrgð og hlutdeild sveitarfélaga
annars vegar og ríkis hinsvegar.
Enginn vafí leikur á því að ástæða
er til að endurskoða skipulagningu
skólaaksturs, en kostnaður ein-
stakra sveitarfélaga vegna hans er
þó svo misjafn að þar er um að
ræða eitt ólíklegasta atriðið í rekstri
skólanna til þess að færa algjörlega
á herðar sveitarfélaganna og gæti
ekki tekist án þess að móta reglur
um mismunandi stuðning jöfnunar-
sjóðs við þau. Ég hef því ekki trú
á að af þessu verði nú.“
Pálmi sagðist vonast til að starf
þeirrar nefndar, sem vinnur að end-
urskoðun grunnskólalaganna undir
forystu Páls Dagbjartssonar skóla-
stjóra í Varmahlíð, beri þann
árangur að unnt verði að koma
breytingum fram á næsta Alþingi.
Á því væri full þörf.
landsumdæmis eystra, í samtali
við blaðamann.
„Ég tel eðlilegt að skólastjórar í
samráði við skólanefnd skipuleggi
skólaaksturinn og ráði bílstjóra eins
og gert er viðvíkjandi öðru starfs-
fólki skólans. Skólabílstjórarnir yrðu
þá teknir inn á launaskrá hjá ríkinu
eins og aðrir starfsmenn grunnskól-
anna. Sveitarfélögunum hefur verið
ætlað að sjá um ráðningar hingað
til og þar með eru þau gerð ábyrg
fyrir launagreiðslum."
Sturla sagði að ráðuneytið ætti
fýrst og fremst að sinna sínu hlut-
verki sem ráðuneyti en ekki rekstrar-
stofnun. Fræðsluráð viðkomandi
umdæma eiga að sjá um reksturinn
— að öðru leyti er hlutverki þeirra
misboðið þar sem svo virðist sem lítið
sé gert með tillögur þeirra og sam-
þykktir.
Sturla Kristjánsson
sýslumiðstöð. Þá væri æskilegt að
beina því til Byggðastofnunar að
hún stuðlaði að því að laða þjón-
ustufyrirtæki út á land. Með
bættum samgöngum ætti þetta vel
að takast.
Páll Dagbjartsson
Það gengur aldrei að
einn ráði og hinn borgi
Garnaeitrun veldur búsifjum
- Bændur vilja fá að flylja inn skoskt bóluefni
artíma, þrátt fyrir margendurtekn-
ar bólusetningar. Hins vegar hafi
tilraunir með skoskt bóluefni gefið
góða raun og vonir um að veita
kindunum ævivöm gegn veikinni.
ÞAÐ KOM fram á aðalfundi
Landssamtaka sauðfjárbænda,
sem haldinn var á Hólum í
Hjaltadal fyrir nokkru, að garna-
eitrun í fé veldur bændum
miklum búsifjum. Samþykkt var
áskorun á yfirdýralækni um að
heimila nú þegar innflutning á
skosku bóluefni gegn garnaeitr-
un sem talið er geta veitt kindum
lifstíðarónæmi.
í greinargerð með ályktun fund-
arins er því lýst yfir að gamaeitrun
í sauðfé, einkum lömbum og ungu
fé, valdi íslenskum bændum svo
þungum búsifjum, þar sem þúsund-
ir fjár færust árlega úr veikinni,
að vart verði við unað lengur. Taldi
fundurinn að garnaveikibóluefni
það sem nú er framleitt á Keldum
væri ófullnægjandi til varnar gegn
veikinni sökum stutts ending-
sjálfstýringar
— segir Páll Dagbjarts-
son, formaður nefndar
um endurskoðun
grunnskólalaganna
„ÞAÐ ER samstaða í nefndinni
um að reyna að einfalda öll fjár-
málasamskipti ríkis og sveitarfé-
laga varðandi skólakostnað,“
sagði Páll Dagbjartsson, formað-
ur nefndar um endurskoðun
grunnskólalaganna, í samtali við
Morgunblaðið.
„Einnig viljum við reyna að koma
á einfaldara stjómskipulagi — beinni
boðleið milli ráðherra annars vegar
og nemenda og foreldra hinsvegar.
Þá þarf að auka vald sveitarstjóma
og heimaaðila um málefni skólans.
Það gengur aldrei upp það kerfi að
einn ráði og hinn borgi. Ef heimaað-
ilar vilja fá aukinn sjálfsákvörðunar-
rétt, verða þeir líka að axla
fjárhagslega ábyrgð. Mér fínnst and-
inn yfírleitt vera sá að verkefnin
skuli færð en ríkið skuli borga.“
Páll sagði að ef ríkið losaði sig
við allt grunnskólahald, þýddi það
fjármagnstilfærslu upp á ll/t til 2
milljarða króna sem hlyti að kalla á
mjög flóknar reglur um skiptingu
þess. „Ég tel ekki fysilegt að færa
þetta allt yfir á sveitarfélögin, held-
ur verður að reyna að einfalda og
skýra þær reglur, sem í gildi eru.
Ef velta ætti öllu grunnskólahaldi
yfír á sveitarfélögin, þýddi það al-
gjöra umbyltingu í skólakerfínu."
Páll sagðist gera ráð fyrir að drög
af breytingum gmnnskólalaganna
liggi fyrir í upphafí þings eða fljót-
lega eftir að þing kemur saman.
sitnanúmenö
36777
AUGLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Wagner-sjálfstýringar,
komplett með dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stærðir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stærðir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greiðsluskilmálar.
Atlas hf
Borgartún 24. Simi 621155
Pósthólf 493, Reykjavík