Morgunblaðið - 12.09.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986
r23
Alþjóðleg geimstöð framtíðarinnar
Hér gefur að líta teikningu af fyrirhugaðri geim-
stöð, sem NASA, geimferðastofnun Banda-
ríkjanna, gerir ráð fyrir að tekin verði í gagnið á
tíunda áratugnum. Miðað er við að hún verði not-
uð sameiginlega af NASA, ESA, geimferðastofnun
Evrópu, Japðnum og Kanadamönnum.
Til hægri búnaður NASA, en til vinstri er búnað-
ur ESA framar, og sá japanski aftar.
Chile:
Fordæma morðið á
kunmim blaðamanni
Fréttaflutningur tveggja fréttastofa bannaður
Santiatfo, London, AP.
ALÞJOÐLEG samtök útgefenda
og ritstjóra hafa harðlega for-
dæmt morðið á Jose Carrasco,
kunnum blaðamanni í Chile.
Fannst hann látinn, hafði verið
skotinn í höfuðið, eftir að menn,
sem kváðust vera lögreglumenn,
réðust inn til hans og höfðu á
brott með sér. Gefið hefur verið
í skyn, að afturkallaður verði
brottrekstur þriggja franskra
presta frá Chile.
Alþjóðleg samtök útgefenda og
ritstjóra fordæmdu í gær mjög
harðlega morðið á Jose Carrasco,
framkvæmdastjóra blaðamanna-
samtakanna í Chile. Nokkrir menn,
lögreglumenn að eigin sögn, brut-
ust inn á heimili hans sl. mánudag
og handtóku hann en daginn eftir
fannst hann látinn, með skotsár á
höfði. Var Carrasco áður ritstjóri
tímaritsins Analisis en það hefur
verið bannað.
Alberto Cardemil, aðstoðarinn-
anríkisráðherra í Chile, sagði frétta-
mönnum í gær, að verið væri „að
athuga" mál þriggja franskra
presta, sem voru handteknir í La
Victoria, einu fátækrahverfa Sant-
iago-borgar, eftir að reynt hafði
verið að ráða Pinochet forseta af
dögum. í fyrradag var þeim skipað
að hafa sig burt úr landinu.
Francisco Cuadra, talsmaður
herforingjastjórnarinnar, sagði i
gær, að um 40 félagar í komm-
únískum skæruliðasamtökum,
Manuel Rodriguez-hreyfingunni,
hefðu verið viðriðnir banatilræðið
við Pinochet en til einskis þeirra
hefur þó enn náðst. Sagði Cuadra,
að ákafast væri leitað að Cesar
Bunster, 28 ára gömlum syni fyrr-
um sendiherra Chile í London.
Væri hann grunaður um að hafa
leigt bifreiðirnar fjórar, sem notað-
ar voru í atlögunni að Pinochet, og
einnig hús úti í sveit þar sem lagt
var á ráðin.
Eftir að herforingjastjómin í
Chile lýsti yfir neyðarástandi hafa
margir vinstrisinnaðir stjórnmála-
menn og stúdentaleiðtogar verið
handteknir og sex tímarit stjórnar-
andstöðunnar bönnuð. í gær var
ítölsku fréttastofunni Ansa bannað
að flytja fréttir frá Chile og gefið
að s_ök að hafa logið til um ástand-
ið. Á þriðjudag var Reuters-frétta-
stofunni einnig bannaður frétta-
flutningur frá landinu og sagði
Cuadra, talsmaður stjómarinnar,
að það hefði verið vegna þess, að
Pinochet hefði verið nefndur „erki-
þijóturinn" í fréttaskeytum hennar.
Moskva:
Spilltir munaðar-
seggir í fangelsi
Moskvu, AP.
HÆSTIRÉTTUR Rússlands
dæmdi í gær yfirmann viðskipta-
stofnunar í Moskvu og 20 aðra
embættismenn í fangelsi fyrir
gróðabrall og spillingu.
Mennimir vom viðriðnir mál, sem
tengist ólöglegu braski með kavíar
og gjaldeyri í fínustu matvöruverzl-
un Moskvu, Yeliseyevsky-verzlun-
inni við Gorkystræti eða Gastronom
nr. 1. Yfirmaður hennar var tekinn
af lífi í hitteðfyrra fyrir að þiggja
mútur og ýmsir undirmanna hans
dæmdir í 7-14 ára fangelsi fyrir
sömu sakir.
Bandar íkj amenn
áfram í Bólivíu
La Paz, AP.
BANDARÍSKIR hermenn munu
dveljast í a.m.k. mánuð til við-
bótar í Bólivíu, þar sem þeir hafa
aðstoðað yfirvöld við að uppræta
kókaínframleiðslu þar i landi.
Um 170 bandarískir hermenn em
enn í Bólivíu og sex þyrlur. Þjálfa
þeir nú bólivíska hermenn í aðgerð-
um gegn fíkniefnaframleiðendum.
Hafa þeir verið í landinu í tvo mán-
uði og framan af gerðu þeir áhlaup
á hverja kókaínverksmiðjuna af
annarri, en sinna nú fyrst og fremst
þjálfun heimamanna. Tekist hefur
að eyðileggja a.m.k. 10 stórar kók-
aínverksmiðjur, sem afköstuðu
fimm tonnum af kókaíni á viku.
Hæstiréttur rússneska lýðveldis-
ins dæmdi N.P. Tregubov, yfírmann
viðskiptastofnunar Moskvu í gær í
15 ára fangelsi fyrir að þiggja
mútur og misnota aðstöðu sína sem
yfirmaður ríkisverzlananna í höfuð-
borginni. Aðstoðarmaður hans,
A.A. Petrikov, hlaut 12 ára fangels-
isdóm og tveir deildarstjórar, G.M.
Khokhdov og V.P. Kireyev 10 ára
dóm hvor.
Þá var forstöðumaður matvæla-
verzlana í Kuibyshev-hverfinu í
Moskvu dæmdur i átta ára fangelsi
fyrir mútustarfsemi og deildarstjóri
matvæladeildar GUM-stórverzlun-
arinnar við Rauðatorgið hlaut 10
ára fangelsisdóm fyrir sömu sakir.
Aðrir í hópnum hlutu vægari dóma.
Að sögn blaðsins Moskovskaya
Pravda tengjast mál mannanna,
sem dæmdir voru í gær, hneykslis-
máli, sem kennt er við Gastronom
nr. 1, en það snerist um ólöglega
kavíar- og gjaldeyrissölu. Blaðið
skýrði frá því að Yuri Sokolov, yfir-
maður verzlunarinnar, sem þykir
sú fínasta í Moskvu og er vinsæl
meðal ferðamanna, hefði verið
líflátinn er upp komst um máiið
1984. Hefur ekki áður verið skýrt
frá þeim málalokum. Sokolov var
sekur fundinn um gróðabrall með
kavíar og gjaldeyri, mútuþægni og
aðra glæpi.
Mjólkina
heim
Þið sem haldið stór heimili og sinnið daglegum
heilbrigðisþörfum ungra sem aldinna, ættuð ekki
lengur að þurfa að rogast heim af markaði með
plastpoka þungaða mjólk og öðrum mjólkurafurð-
um.
Kaupmaður sem hóf verslun 1960 ætlar að selja
ykkur mjólkurvörur og senda heim.
Sendir verða 12 eða fleiri lítrar eftir þörfum annað
hvort á tilteknum dögum vikunnar eða daglega.
Afgreitt verður beint frá mjólkurstöð samkvæmt
samkomulagi, svo þeir sem neyta 3—4 lítra á dag
ættu alltaf að hafa ferska nýmjólk í skápnum.
Að loknum undirbúningi og gerðum samningum
við viðskiptavini mun dreifing hefjast, áríðandi er
að þeir sem áhuga hafa á viðskiptum gefi það til
kynna strax.
Ekkert verður hægt að gera í málinu nema undir-
tektir séu góðar.
Söluverð verður hið sama og í verslunum almennt
> ,
Sendið pöntun
Vinsamlegast látiA vlta um viAskiptin, svo
aA gera megi samning á eftirfarandi forsend-
um yAar:
□ Ég mun taka við öllum sendingum sem samið er um
enda verða þær bornar að dyrum íbúðar minnar, mun
ég þó heimila, að þær verði skildar eftir á tilteknum stað
í húsi mínu sé enginn heima.
□ Ég get afturkallað afgreiöslu hvaða dag sem er með
tilkynningu um síma daginn fyrir afgreiðsludaginn.
□ Ég mun heimila greiðslu vegna viðskiptanna að hálfu
greiðslukortafirma eða gera annað samkomulag við
seljanda um greiðslur.
Ætlað er að margir muni vilja fá sendingu einu
sinni eða tvisvar í viku. Hlýtur í þ.m. fyrst um sinn
að fara eftir aðstæðum og svæðum, hvaða dag
vikunnar afgreitt verður og á hvaða tíma dags.
Mest verður væntanlega afgreitt snemma dags
og þá einnig síðla, þ.e. milli 16 og 20.
Sölusvæðið er þéttbýlið á höfuðborgarsvæðinu
öllu, þ.e. Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og
'Hafnarfjörður, ef til vill Suðurnes síðar.
Látið vita af ykkur, notið til þess úr-
klippu hér að neðan.
Mjólkurpósturinn
Pósthólf 8743, 128 Reykjavík, sími 22575.
Klippið hér -
>s
Sendandi:
Nafn: ........
Heimili: .....
Sími: ........................
MJÓLKURPÓSTURINN
Pósthólf 8743
128 Reykjavík
□ Ég hef hug á viðskiptum