Morgunblaðið - 12.09.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, F()STUDAGUB 12. SEPTEMBER 19g6
Minning:
Ingvar Kristins-
son heildsali
Fæddur 18. janúar 1935
Dáinn 5. september 1986
í dag er til moldar borinn svili
minn Ingvar Kristinsson. Það er
undarleg tilfinning að eiga þess
ekki lengur kost að hitta þennan
góða vin, en minningin lifir. Oft
getur það reynst erfítt að átta sig
á tilverunni og öllum tilgangi lífsins
á jörðu hér. Ekki síst þegar kvadd-
ur er maður í blóma lífsins. Ingvar
fæddist 18. janúar 1935. Sonur
hjónanna Kristins Guðmundssonar,
kaupmanns, og konu hans Unnar
Kristjánsdóttur, sem lengst af
bjuggu að Laufásvegi 58 og þar
ólst Ingvar upp, en hann var elstur
af fjórum bömum þeirra hjóna.
Ingvar kvæntist árið 1958 eftirjif-
andi eiginkonu sinni Ásu Þ. Ás-
geirsdóttur frá Valshamri á
Skógarströnd. Þau stofnuðu sitt
fyrsta heimili í Grænuhlíð 15, þar
sem heimili þeirra hefur verið síðan.
Böm Ingvars og Ásu eru fjögur,
Ásgeir Halldór, Guðmundur Krist-
inn, Unnur Valdís og Björgvin Þór
og barnabörnin orðin þrjú.
Ingvar stundaði nám við Verzl-
unarskóla íslands og hugur hans
stefndi strax að verslun enda kynnt-
ist hann því starfi frá bemsku. Og
nú síðustu árin var hann að byggja
upp sitt eigið fyrirtæki ásamt fjöl-
skyldu sinni, heildverslunina Echo.
Allt virtist ætla að ganga svo vel
hjá samhentri fjölskyldu, þegar
kallið kom svo skyndilega og starfs-
degi Ingvars var lokið.
Ég kynntist Ingvari þegar hann
kom á heimili mitt um það leyti sem
þau Ása vom að kynnast. Við áttum
oft skemmtilegar stundir saman
ásamt fjölskyldum okkar bæði hér
í Reykjavík og á heimili tengdafor-
eldra okkar sem þá bjuggu á
Valshamri, þangað vom ferðirnar
margar og þeim var hann hjálpleg-
ur og góður tengdasonur.
Það var gott að eiga Ingvar að
vini, vinátta hans var heil og án
skilyrða, þegar hann á annað borð
batt þau bönd. Hann var jafnan
glaður í viðmóti, hlýr og. traustur.
Þeir sem hafa notið gestrisni hans
gleyma því ekki.
Ég vil að lokum um leið og ég
kveð Ingvar svila minn þakka hon-
um fyrir alla þá vinsemd og tryggð
sem hann sýndi mér og fjölskyldu
minni. Ég veit að margir syrgja
Ingvar og hefðu viljað eiga lengri
samleið með honum. En nú kveðjum
við hann með miklum söknuði og
biðjum honum velfarnaðar á nýjum
og ókunnum brautum. Ég votta
sérstaklega Ásu mágkonu minni,
bömum hennar, bamabörnum,
aldraðri móður og öðmm ættingjum
mína dýpstu samúð.
Björgvin H. Björnsson
Fallinn er í valinn fyrmrn ágætur
skólafélagi minn úr Verslunarskóla
Islands, Ingvar Kristinsson, versl-
unarmaður. Við vomm af sama
árgangi, þó við væmm aðeins einri
vetur í sama bekk. Hann var eilítið
eldri en við hin og hann hafði enga
sérstaka framadrauma. Hljóðlega
fór hann í gegnum Verslunarskól-
ann.
Hann starfaði lengst af við versl-
unarstörf hjá J. Þorlákssyni og
Norðmann.
Ég veit að ég mæli fýrir hönd
allra þeirra er vom honum samskipa
í Versló er við sendum ekkju hans
og bömum þeirra okkar innilegnstu
samúðarkveðjur. Persónulega sendi
og einnig fjölskyldu hans, ættingj-
um og vinum djúpar samúðarkveðj-
ur og vona að sárin grói þó
einhveijum verði það erfítt við lát
þessa geðfellda manns.
Sumarliði Steinar
Benediktsson.
Minning:
Jón Eiríksson
bifreiðastfóri
í dag kveð ég elskulegan tengda-
föður minn, Jón Eiríksson, sem
andaðist í Landspítalanum 3. sept-
ember, eftir tveggja mánaða legu,
fyrst heima og síðan í spítalanum.
Þar með iauk baráttunni við sjúk-
dóm sem hann hafði háð síðastliðið
ár. Stóð hann sig alltaf eins og
hetja og bar veikindi sín aldrei á
torg. Á spítalanum var hugur hans
allur hjá fjölskyldunni og var hann
á leiðinni heim þar til yfír lauk.
Kona hans hlúði að honum af sinni
alúð og umhyggjusemi í veikindum
hans.
Jón fæddist 3. desember 1911,
sonur hjónanna Eiríks Ingimagns-
sonar og Elísabetar Jónsdóttur.
Hann ólst upp í Vesturbænum
ásamt 3 systkinum, Lilju sem býr
á Selfossi, Ingimagni í Reykjavík
og Maríu sem búsett er í Banda-
ríkjunum.
1943 kvæntist Jón eftirlifandi
konu sinni Níelsínu Guðmundsdótt-
ur frá Nýjubúð í Grundarfírði.
Eignuðust þau 5 böm. Þau eru
Elísabet, Guðmundur og Ingibjörg
sem eru gift og búsett í Reykjavík,
Jensína gift og búsett f Banda-
ríkjunum og Eiríkur sem er í
heimahúsum. Bamabörnin eru 11
og bamabamabamið eitt.
Jón og ína bjuggu iengst af í
vesturbænum til 1957 er þau fluttu
á Réttó, þar sem þau hafa búið
síðan. Hann var með fyrstu bif-
reiðastjórum í Reykjavík, keyrði hjá
ýmsum fyrirtækjum og vann síðan
hjá Eimskip.
Jón hafði mikinn áhuga fyrir
velferð bama sinn og alltaf var
hann mættur ef eitthvað stóð til
að gera. Þau em ófá handtökin sem
hann á í húsinu okkar og garðinum.
Áhuginn var gífurlegur hvort sem
það var að grafa gmnn, hreinsa
timbur, tyrfa lóðina og allt þar á
milli. Oft var glatt á hjalla í Hnjúka-
selinu, þegar hlaupið var út í móa
til að drekka nestið eða seinna,
sest á einangmnarplast á gólfínu.
Þó var aldrei setið lengi því kappið
var mikið. Eftir að við fluttum inn
vom þær margar eftirlitsferðimar,
eins og við kölluðum þær, sem hann
kom, það var orðinn vani að keyra
upp í Hnjúkasel.
Mér er það svo minnisstætt þeg-
ar ég í fyrsta sinn sá Jón með
hamar, því hann var jafnvígur á
báðar hendur.
Jón var söngelskur maður og
gaman var að vera með honum á
gleðistund og syngja hin gömlu
góðu lög, sem hann kunni svo mörg.
Efst í huga mér á þessari hryggð-
arstund er þakklæti til Jóns fyrir
alla hans hjálp, og hið hlýlega og
góða viðmót sem hann ætíð sýndi
mér. Bömin mín minnast hans sem
elskulegs afa er ætíð tók þátt í gleði
þeirra og fylgdist vel með námi
þeirra, starfi og áhugamálum. Vilj-
um við þakka honum fyrir það.
Guð varðveiti sálu hans og veiti
ástvinum hans styrk.
Brynja
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfílegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTRÚN ÞÓRARINSDÓTTIR, lést 2. september á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Karl Bjarnason, Bjarnveig Karlsdóttir, Sigurbjörn Logason, Eybjörg Einarsdóttir, Tryggvi Jakobsson, Karl Rúnar Sigurbjörnsson, og barnabörn.
t Faðir okkar og tengdafaðir, JÓHANN STEFÁNSSON fyrrverandi skipstjóri, andaðist að Hrafnistu, Reykjavík, þann 10. september. Jón K. Jóhannsson, Ólaffa Sigurðardóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiginmaður minn og faðir okkar, MAGNÚS MAGNÚSSON, Tryggvagötu 22, Selfossi, lést að heimili sínu 10. september. Svandís Jónsdóttir og börn.
t Faðir okkar, STEFÁN ÓLAFSSON skósmiður, Borgarnesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 10. september 1986. Sigrfður Stefánsdóttir, Magnús Stefánsson.
t Sonur minn, ÓLAFURÞÓRÐURJÓNSSON, Túngötu 17, Patreksfirði, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 13. september kl. 2. Fyrir hönd vandamanna, Ingibjörg Ólafsdóttir.
t Eiginmaður minn og faðir okkar, KARL GUÐJÓNSSON, rafvirkjameistari, Suðurgötu 15-17, Keflavík, áður að Mávabraut 11 b, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 13. september kl. 14.00. Dagrún Friðfinnsdóttir og börn.
t Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför SIGURBJARGAR B. STEPHENSEN, Ljósheimum 6, Reykjavfk. Sigrfður M. Stephensen, Steinunn M. Stephensen, Guðrún Magnúsdóttir, Haraldur Bergþórsson, Magnús Þorleifsson, Ida S. Daníelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SVEINS GUÐMUNDSSONAR frá Reykjum. Þurfður Sigurjónsdóttir og börn.
t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föðurs míns og bróðurs, GUÐJÓNS V. MÝRDALS. Valtýr Ómar Guðjónsson, Júlíana Valtýsdóttir.