Morgunblaðið - 12.09.1986, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986
„Erum komnir
til að vera“
— segja Völsungar eftir að hafa
tryggt sér 1. deildar sæti í
fyrsta sinn í sögu félagsins
VÖLSUNGUR frá Húsavík er nú kominn upp í 1. deild í knattspyrnu
í fyrsta sinn í sögu félagsins. Sl. laugardag sigraði Völsungur Ein-
herja frá Vopnafiröi 1-0 á Vopnafirði. Jónas Hallgrímsson skoraði
sigurmarkið úr vítaspyrnu 5 mínútum fyrir leikslok. Öruggt 1. deildar
sæti var þó ekki tryggt fyrr en Víkingur gerði markalaust jafntefli við
KS frá Siglufirði á gervigrasinu á Laugardal á sunnudag og missti
Víkingur þar með af 1. deildinni, en baráttan stóð á milli Völsungs
og Víkings nú í lok keppnistímabils um hvort liðið hreppti hnossið
ásamt KA frá Akureyri.
Það var að vonum kæti á
Húsavík er Ijóst var um úrslitin og
þá strax tilkynnt um að fólags-
heimilið yrði opið um kvöldið þeim
er fagna vildu úrslitunum. Húsið
fylltist af fólki, áhangendum liðsins
og dyggum stuðningsmönnum í
gegnum árin, ræður voru fluttar
og heillaóskaskeyti og blómvendir
voru að berast allt kvöldið frá burt-
fluttum Húsvíkingum og eins frá
sjómönnum á hafi úti.
Völsungur hefur nú í ein 20 ár
barist hart fyrir því að komast í
1. deildina, en fyrir rétt um 20
árum var 3. deildin stofnuð og hóf
Völsungur feril sinn þar. Þeir hafa
ávallt mætt til leiks í baráttuhug í
upphafi keppnistímabils og skyldi
nú aldeilis barist, en þegar nálgast
hefur síðari hluta keppnistímabils
hafa örlög liðsins verið ráðin. Þeir
Húsvíkingar hafa setið í 2. deild-
inni ávallt utan þrisvar að þeir
duttu niður í 3. deild en þó hafa
þeir brölt upp á við á næsta keppn-
istímabili, en aldrei fyrr komist á
meðal 1. deildar liða.
Völsungur á eftir einn heimaleik
við Selfyssinga sem verður nk.
sunnudag. Guðmundur Ólafsson
hefur þjálfað Völsung í sumar, en
hann var fjarstaddur þegar sigur-
inn var endanlega tryggður á
sunnudag. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið að leikmenn
væru góðir og sýndu samstöðu,
enda hefðu þeir leikið saman í
nokkur ár. Þá sagði hann að lítil
meiðsli hefðu hrjáð leikmenn í
sumar og brottrekstur af velli eng-
inn verið. Guðmundur sagði að
Völsungur hefði alla burði til að
standa sig vel í 1. deildinni og um
það voru leikmenn sammála er
þeir tóku forskot á sæluna um
helgina. Freyr Bjarnason, formað-
ur Völsungs, sagði að nú væri
loksins óhætt að fara að fjölda-
■ Úrslitin í 1. deild
ráðast á morgun
— Guðmundur Torfason getur sett markamet
SÍÐASTA umferð í 1. deild karla
í knattspyrnu fer fram á morgun
og hefjast allir leikirnir klukkan
14.30. Fyrir leikina hefur Fram
tveggja stiga forystu og nægir
jafntefli í síðasta leik til að hljóta
íslandsmeistaratitilinn, en ÍBV er
> failið og UBK verður að vinna FH
með þriggja marka mun til að
forðast fall.
Búast má við mikilli baráttu í
öllum leikjunum, en augu flestra
beinast að viðureignum efstu lið-
anna.
Verður Fram íslands-
meistari?
Eini leikurinn í Reykjavík verður
á milli Fram og KR á Laugardals-
vellinum. Framarar náðu góðri
forystu um mitt mótið eins og í
fyrra, en misstu forskotið í hendur
- _>Valsmanna í síðasta mánuði. Eftir
síðustu umferð komust Framarar
aftur í efsta sætið, þegar þeir unnu
Víði, en Valur tapaði stórt fyrir KR.
Fram nægir jafntefli gegn KR á
morgun, en KR-ingar eiga harma
að hefna og leika stíft til sigurs.
Fram vann fyrri leikinn 2:1 og sló
Vesturbæingana út úr bikarkeppn-
ini 6:2 eftir framlengdan leik, þar
sem KR komst í 2:0. KR stefnir á
3. sætið og nær því hugsanlega
með sigri.
Þó Fram nægi jafntefli til að
verða íslandsmeistari, leikur liðið
vtil sigurs til að sýna og sanna að
úrslit úr leik ÍA og Vals skipti ekki
máli. Auk þess á Guðmundur
Torfason möguleika á að slá átta
ára gamalt markamet Péturs Pét-
urssonar, sem hann jafnaði á
sunnudaginn, svo mikiö er í húfi.
Heldur Valur titlinum?
Valsmenn verða ekki aðeins að
vinna ÍA á Skaganum, heldur verða
þeir um leið að treysta á að KR
vinni Fram til að verja íslands-
meistaratitilinn. Góð stígandi hefur
verið í leik Vals í sumar og fyrir
leikinn gegn KR hafði liðið aðeins
fengið á sig sex mörk og tapaö
þremur leikjum með einu marki.
Valur vann ÍA 1:0 á Hlíðarenda,
en Skagamenn hafa verið á upp-
leiö síðan, eru nýkrýndir bikar-
meistarar og hafa unnið síðustu
fjóra leiki í deildinni. Þeir hafa
reyndar ekki tapað leik síðan Pétur
Pétursson hóf að leika með liðinu
á ný. Skagamenn hafna í 3. sæti,
vinni þeir á morgun og það er
þeim mikið kappsmál.
Fallbaráttan í
Firðinum
Eftir 16. umferð blasti fall við
Breiðablik, en ekki er öll nótt úti
enn, því með þriggja marka sigri
gegn FH bjargar liðið sér frá falli
á kostnað Hafnfirðinganna. Blik-
arnir börðust vel í síöasta leik og
unnu öruggan sigur, en FH tapaði
stórt fyrir fallliði Eyjamanna. FH-
ingar voru í 1. sæti deildarinnar
eftir tvær umferðir, en staða þeirra
hefur heldur betur snúist við. Það
veröur því örugglega hart barist á
Kaplakrikavelli á morgun, en FH
nægir jafntefli og þolir tveggja
marka tap til að halda sér í deild-
inni. Breiðablik vann fyrri leikinn
2:1.
Víðir þarf stigin
Víðir fær Vestmanneyinga í
heimsókn. Eyjamenn eru fallnir og
Víðir hefur 19 stig og þar af þrjú
stig, sem félaginu voru dæmd
vegna Sigurðarmálsins svonefnda.
Keflvíkingar unnu Víði 1:0, en mál-
ið er enn hjá dómstólum og ef svo
færi að ÍBK fengi stigin aftur, yrði
Víðir með 16 stig fyrir síðasta leik
og í fallhættu. Því verða Víðismenn
að vinna á morgun til að gull-
tryggja sætið í 1. deild. ÍBV vann
3:2 í Vestmannaeyjum og mætir
án nokkurs álags í leikinn í Garðin-
um, en Víðismenn verða án
bræðranna Daníels og Vilhjálms
og munar um minna.
Þór gegn ÍBK
Keflvíkingar leika sinn síðasta
leik á Akureyri og með sigri eiga
þeir möguleika á 3. sætinu. Þórs-
urum hefur gengið afleitlega í
seinni umferðinni, tapað fimm
leikjum, gert tvö jafntefli og aðeins
unnið Eyjamenn með einu marki.
Þeir eru samt í öruggu sæti, þó
tæpt sé, og þar sem Keflavík verð-
ur án Óla Þórs Magnússonar og
Sigurjóns Sveinssonar, sem eru í
banni, aukast möguleikar heima-
manna á sigri.
STAÐAN (1. deild þegar ein umferð er eftir:
Fram 17 11 4 2 39:13 37
Valur 17 11 2 4 28:9 35
ÍA 17 9 3 5 31:19 30
KR 17 7 7 3 21:10 28
ÍBK 17 9 I 5 21:24 28
Víöir 17 5 4 8 20:24 19
Þór 17 5 4 8 18:29 19
FH 17 5 3 9 22:34 18
UBK 17 4 3 10 16:33 15
ÍBV 17 2 3 12 18:39 9
Markahœstir:
GuömundurTorfason, Fram 19
Guömundur Steinsson, Fram 10
Sigurjón Kristjánsson, Val 9
Valgeir Baröason, ÍA 9
• Völsungarnir voru að vonum í sigurvfmu sl. sunnudagskvöld þegar þeir höfðu tryggt sér sæti í 1. deildinni
í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Morgunblaöiö/Jóhanna Ingvarsdóttir
• Hallmar Freyr Bjamason, formaður Völsungs, kampakátur með
árangurinn.
Morgunblaöiö/Júlíus
•Setur Guðmundur Torfason markamet á morgun? Hann hefur jafn-
að met Péturs Péturssonar og skorað 19 mörk.
framleiða veifurnar, borðana og
hattana alveg eins og gert væri í
ensku knattspyrnunni og öruggt
væri að þeir piltar myndu standa
fyrir sínu næsta sumar.
Fyrirliði Völsungs, Björn Ol-
geirsson, flutti þakkarræðu fyrir
hönd þeirra félaga og þakkaði
áhorfendum sérstaklega dyggan
stuðning í gegnum árin. Knatt-
spyrnuáhugi er mikill í bænum og
þess má geta að 130 Húsvíkingar
fjölmenntu til Vopnafjarðar um sl.
helgi í rútum og á eigin bílum þeg-
ar Völsungar léku úrslitaleikinn við
Einherja. Bæjarstjóri Húsavíkur,
Bjarni Aðalgeirsson, óskaði liðinu
til hamingju og bauð Völsungum
ásamt mökum og forráðamönnum
knattspyrnufélagsins til kvölverðar
í boði bæjarins eftir síðasta leik
við Selfoss um næstu helgi.