Morgunblaðið - 31.03.1987, Side 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
75. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Reuter
Sovétríkin:
Vilja sundra Evrópu
og Bandaríkjunum
Bonn, Reuter.
Heimildarmenn Reuter-frétta-
stofunnar sögðu í gær að Sovét-
menn hefðu breytt afstöðu sinni
í viðræðunum í Genf og væru
greinilega að reyna að reka fleyg
milii Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra í Evrópu.
Sögðu heimildarmennirnir að
samningamenn Sovétmanna í við-
ræðunum um meðaldrægar kjarn-
orkuflaugar (INF) hefðu fallið frá
fyrri tillögu um að skammdrægar
flaugar yrðu hluti af samkomulagi
og bættu við að stjórnin í Kreml
væri að reyna að skapa sundrungu
meðal vestrænna ríkja. Nú er rætt
um að Vestur-Evrópuríki þurfi að
taka höndum saman í varnarmálum
eigi þau að mega sín einhvers. Jaqu-
es Chirac, forsætisráðherra Frakk-
lands sagði í viðtali um helgina að
í Evrópu væri skilningur fyrir því
að öryggi álfunnar ylti m.a. á auk-
inni samhæfingu herja í Vestur-
Evrópu.
Sjá grein á miðopnu.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, Mikhail Gorbachev, aðalritari sovéska kommúnista-
flokksins, og Raisa, kona hans, klappa eftir að þjóðsöngvar ríkjanna voru leiknir fyrir sýningu á
Svanavatninu eftir Tchaikovsky í Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu.
Forsætisráðherra Breta í Moskvu:
Mikill ágTeiningiir milli
Thatcher osr Gorbachevs
Moskvu, AP, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sem
nú er í fimm daga heimsókn í Sovétríkjunum, sagði við
Mikhail Gorbachev Sovétleiðtoga síðdegis í gær að hann
mætti reiða sig á meira traust vestrænna ríkja ef hann
uppfyllti skuldbindingar sínar í mannréttindamálum og
kveddi sovéskt herlið brott frá Afganistan með hraði.
Thatcher og Gorbachev ræddust við
í nærri níu klukkustundir í gær og
viðræðunum loknum héldu þau
ræður í kvöldverðarboði. í ræðunum
kom fram djúpur ágreiningur um
ýmis málefni.
Gorbachev hefur aldrei verið
harðorðari í garð vestræns leiðtoga
í opinberri heimsókn í Kreml. Hann
svaraði gagnrýni Thatcher á stefnu
Sovétmanna, bæði í utan- og inn-
anríkismálum, lið fyrir lið.
Thatcher sagði að mikilvægast
væri að auka traust og trúnað milli
ianda austurs og vesturs. „Við
byggjum úrskurð okkar ekki á
ásetningi eða loforðum, heldur á
athöfnum og niðurstöðum," sagði
Thatcher í harðorðri ræðu í móttöku
í Kremlarhöll.
Gorbachev sagði að Sovétmenn
væru reiðubúnir til að ræða mann-
réttindamál af hreinskilni og án
vífilengja ef einnig yrði rætt um
atvinnuleysi, heimilisleysi og mis-
munun í vestrænum ríkjum.
Hann sagði að ekki væri hægt
Reuter
Réttarhöld vegna eitraðrar matarolíu
Réttarhöld hófust í gær í máli 38 kaupmanna, sem sakaðir eru um
að hafa selt eitraða matarolíu. Þessi mynd var tekin af hinum ákærðu
í réttarsal í Madrid, höfuðborg Spánar, í gær. Að sögn yfirvalda lét-
ust 386 manns af völdum eitruðu olíunnar, en sækjendur í málinu
segja að 650 manns hafi látið lífið og 25 þúsund borið skaða af.
Eduardo Fungairino ríkissaksóknari krafðist þess að átta hinna
ákærðu yrðu dæmdir í rúmlega hundrað þúsund ára fangelsi hver.
Eitrunin kom upp vorið 1981. Saksóknarinn sagði að hinir ákærðu
hefðu flutt inn iðnaðarolíu unna úr repju og blandaða eiturefnum.
Olían hefði verið endurunnin við mikinn hita til að líta út sem matar-
olía. Fjöldi fórnarlamba eitrunarinnar safnaðist saman fyrir utan
réttarsalinn og lá við óeirðum þegar hinir ákærðu komu í lögreglufylgd.
að taka alvarlega tilraun Thatcher
til að tengja takmörkun vígbúnaðar
mannréttindamálum í Sovétríkjun-
um.
Gorbachev hafnaði ákalli Thatch-
er um að kalla sovéskt herlið brott
frá Afganistan og sagði að vissir
vestrænir aðiljar vildu aðeins grafa
undan tilraunum til að leita póli-
tískrar lausnar þar.
Thatcher sagði að stjórn hennar
myndi ekki afsala sér þeirri vörn,
sem fælist í að hafa kjarnorkuvopn.
Hún talaði máli vestrænna ríkja um
samkomulag um takmörkun
vígbúnaðar, allt frá útrýmingu með-
aldrægra flauga í Evrópu til
takmörkunar skammdrægi-a
flauga. Gorbachev svaraði með því
að saka vestræn ríki um að draga
úr tillögum um samkomulag með
því að setja Sovétmönnum skilyrði
og kröfur.
Breskur embættismaður gerði
lítið úr árás Gorbachevs á Thatcher
og sagði að viðræðurnar bæru því
vitni að þau gætu sagt hvoru öðru
hug sinn án fjandskapar. Sovéska
fréttastofan TASS sagði aftur á
móti að ágreiningur hefði verið
mikill og Gorbachev hefði lýst sig
andvígan því að öryggi ríkis yrði
best tryggt með styrkleika.
Thatcher snæðir í dag hádegis-
verð með Andrei Sakharov, að sögn
breskra embættismanna. Sögðu
þeir einnig að sir Geoffrey Howe,
utanríkisráðherra Breta, myndi í
dag afhenda Eduard Shevardnadze,
starfsbróður sínum, lista yfir að-
skildar fjölskyldur og menn, sem
ekki hafa fengið leyfi til að fara
úr landi.
Sjá síðu 33.
Rcuter
Sólblóm eftir Vincent van
Gogh.
Einn og hálfur
milljarður kr.
fyrir van Gogh
London, AP, Reuter.
EITT þekktasta málverk Vin-
cents van Gogh, Sólblóm, var
selt í gær fyrir 24,75 milljónir
punda (um 1,53 milljarða ísl.
kr.) og er það þrefalt hærra
verð en áður hefur fengist fyr-
ir málverk á uppboði.
Ónefndur erlendur listaverka-
safnari keypti myndina á uppboði
hjá Christie’s í gærkvöldi. Loka-
boð í myndina var 22,5 milljónir
sterlingspunda og bætast tíu pró-
sent umboðslaun þar við.
Svartur mánudagur í kauphallarviðskiptum:
Verðbréf hríðféllu
þegar dollar lækkaði
London og New York, Reuter, AP.
VERÐBREF lækkuðu í kauphöllum í London og New York í
gærmorgun og söniu sögu var að segja frá Tókýó. Bandaríkja-
dollar lækkaði enn og komst neðar gagnvart japanska jeninu
en nokkru sinni eftir stríð. Talið er, að ótti við yfirvofandi
viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og Japans haf i valdið þessu.
frá Japan frá og með 17. apríl nk.,
vegna vanefnda japanskra stjórn-
valda á áðurgerðu samkomulagi um
kaup og sölu á tölvubúnaði milli
landanna, en þessi viðskipti nema
geysilegum fjárhæðum.
Margir fjármálasérfræðingar
telja nú, að Bandaríkjastjórn hafi
ekkert á móti því, að dollarinn lækki
enn frekar og reyni með því að
1 Tókýó var dollarinn skráður á
144,70 jen um tíma í gær og því
lægri en nokkru sinni. Verðbréf í
dollurum snarlækkuðu í kjölfarið,
er fjárfestingaraðilar víða um heim
reyndu að losa sig við mikið magn
af slíkum verðbréfum.
Á föstudaginn var ákvað Reagan
forseti að leggja tolla að fjárhæð
300 millj. dollara á rafeindavörur
knýja Japani til að auka eftirspurn
heima fyrir en draga úr útflutningi
til Bandaríkjanna. Þannig megi
draga úr þeim mikla halla, sem
verið hefur á viðskiptum Banda-
ríkjanna við Japan um langt skeið.
Síðdegis í gær bárust fréttir af
því, að helztu frammámenn í jap-
önsku efnahagslífi hygðust halda
skyndifund mjög fljótlega til að
ræða til hvaða ráðstafana skuli
gripið eftir hið mikla verðfall dollar-
ans í gær.
Sjá ennfremur: Gengi
gjaldmiðla á bls. 41.