Morgunblaðið - 31.03.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAUUR 31. MARZ 1987
Neyðarástand á sjúkrahúsum á miðnætti
Borgarspítalinn;
*
Aætlun um að rýma
helming sjúkrarúma
Á Borgarspítalanum hefur verið
gerð áætlun um að rýma helming
allra sjúkrarúma á spitalanum
sjálfum, 150 talsins, í dag vegna
uppsagna sjúkraliða, sem vænt-
anlega koma til framkvæmda í
kvöld. Að sögn Ólafs Þ. Jónsson-
ar formanns læknaráðs Borg-
Formaður Sjúkraliða-
félags Islands:
Trúum því ekki
að við verðum
látnar ganga út
„VIÐ viljum ekki trúa því að við
verðum látnar ganga út, en það
er nú algerlega á vaídi ríkisvalds-
ins hvort af því verður," sagði
Hulda S. Ólafsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélags Islands.
Hulda sagði að 537 sjúkraliðar
hefðu sagt upp á sínum tíma og að
aðeins sárafáir yrðu eftir við vinnu.
Hún sagði að af þeim sem sögðu upp
hefðu 163 unnið á stofnunum Borg-
arspítalans, rúmlega 200 hjá
Ríkisspítulunum, um 100 hjá Landa-
kotsspítalanum og hinir við heima-
hjúkrun og á ýmsum öðrum
stofnunum. Sagði Hulda að nú væru
nærri því 6 mánuðir síðan sjúkralið-
amir sögðu upp og þætti þeim nokkuð
seint að standa í viðræðum nú.
Sjúkraliðafélag íslands semur ekki
um kaup og kjör sjúkraliða, það gera
Starfsmannafélag ríkisstofnana fyrir
þá sjúkraliða sem vinna hjá ríkinu
og Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar fyrir þá sem vinna hjá borg-
inni. Viðræður hafa verið í gangi á
milli ríkisins og SFR. Hulda sagði
að uppsagnimar kæmu til fram-
kvæmda annað kvöld nema þannig
tilboð kæmi frá ríkinu að laun sjúkra-
liða hækkuðu verulega. Hún sagði
að sjúkraliðar gerðu kröfu um 35
þúsund króna lágmarkslaun, en laun
þeirra væru nú á bilinu 25.314 til
34.448 kr. á mánuði.
arspítalans liggur ekki fyrir
hvort það verður mögulegt
vegna ástands sjúklinganna.
Ólafur sagði að það hjálpaði til
að ýmsir sjúklingar væm að útskrif-
ast þessa dagana, eftir því sem
heilsa þeirra leyfði, en aðrir ekki
teknir inn í staðinn. Þá hjálpaði það
einnig til að óvenju lítið hefði verið
um veikindi og slys um helgina.
Sagði Ólafur að starfsfólkið myndi
hjálpast að við að láta starfsemina
ganga áfram, þrátt fyrir uppsagn-
imar.
Um næstu helgi hætta flestii'
meinatæknar Borgarspítalans, er
uppsagnir þeirra taka gildi. Ólafur
sagði að þá myndi það vandamál
bætast ofan á vandamálin vegna
uppsagna sjúkraliðanna ef ekki yrði
þá búið að leysa þessar deilur.
Blóðbankinn:
Morgunblaðið/Einar Falur
Starfsfólk Blóðbankans að undirbúa blóð fyrir blóðþega, en þessi vinna leggst niður í dag.
V erkfall í dag - upp-
sagnir í gildi í kvöld
LÍFFRÆÐINGAR við Blóðban-
kann eru i verkfalli í dag og í
kvöld taka uppsagnir flestra
þeirra gildi. Ólafur Jensson yfir-
læknir Blóðbankans segir að
leita verði til þeirra beint eða
fyrir milligöngu stéttarfélags
þeirra um að sinna neyðarþjón-
ustu svo mannslif verði ekki i
hættu.
Líffræðingamir, sem eru 16 tals-
ins, em í Félagi íslenska náttúm-
fræðinga og hófst verkfall þeirra á
miðnætti. Verkfall flestra þeirra
stendur í raun ekki nema í dag, því
14 þeirra hafa sagt störfum sínum
lausum og taka uppsagnimar gildi
á miðnætti í kvöld.
Ólafur sagði í gær að búið væri
að skipuleggja neyðarvaktþjónustu
eins og á stórhátíðum fyrir daginn
og nóttina, en eftir að fólkið hætti
störfum væri ekki hægt að gera
það. Blóðbankinn þyrfti að minnsta
kosti það vinnuframlag sem hann
hefur í dag til að geta verið með
lágmarks neyðarþjónustu, það er
að segja 3 líffræðinga. Hann sagði
að ekki hefði verið sótt um undan-
þágu til þessa, vegna þess að það
lægi ekki fyrir hvaða aðila ætti að
biðja um slíka undanþágu. Nauð-
synlegt yrði að leita til fólksins
beint eða biðja félag þess að hlut-
ast til um að það tæki þetta að
sér. Það væri síðan háð velvild
fólksins hvort þetta tækist. Ef ekki
þá væm sjúklingar sem þyrftu á
þessari þjónustu að halda settir í
lífshættu.
Morgunblaöiö/Einar Falur
Málin rædd á skrifstofu hjúkrunarforstjóra. María Björnsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri kvennadeilda, Sigríður Snæbjörnsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri á lyfja- og taugadeild og Vigdís
Magnúsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Verkefnið nær ógerlegt
— segir Vigdís Magnúsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Landspítalans
„OKKUR finnst verkefni okkar
nánast ógjörlegt, en það verður
að liggja fyrir á þriðjudag, hve
margir sjúklingar verða inni.
Það þarf að útskrifa mikinn
fjölda og alveg óvíst hvernig það
gengur," sagði Vigdís Magnús-
dóttir, hjúkrunarforstjóri Lands-
pítalans, í samtali við Morgun-
blaðið á mánudag.
Þá var unnið að endurskipulagn-
ingu starfsemi spítalans og var talið
að losa þyrfti um 200 rúm, en und-
anfarið hafa aðeins mjög veikir
sjúklingar verið teknir inn og því
færri á spítalanum en ella.
Vigdís sagði, að á hverjum
morgni væri farið yfir stöðuna með
verkfallsnefndum. Hingað til hefðu
nauðsynlegar undanþágur fengizt,
en eftir að uppsagnir tækju gildi
um mánaðamótin, vandaðist málið.
Reynt væri að koma til móts við
þarfir og aðstæður sjúklinga og
aðstandenda þeirra, en væm of
margir inni, gæti takmarkaður
íjöldi hjúkmnarfólks ekki sinnt
sjúklingunum og aðeins yrði um
brýnustu aðstoð að ræða, allt annað
yrði að sitja á hakanum.
Helgi Valdimarsson, formaður læknaráðs Landspítalans:
r
Aðstandendum boðið að ann-
ast hjúkrun á sjúkrahúsinu
AÐSTANDENDUM sjúklinga á Landspítalanum verður í dag boðið
upp á að annast hjúkrun sjúklinganna. Yrðu sjúklingarnir þá áfram
á spítalanum og fengju þar húsnæði, mat og læknisþjónustu, en
aðstandendur sjá um aðhlynningu.
Þetta kom fram í samtali við
Helga Valdimarsson, formann
læknaráðs Landspítalans, um und-
irbúning stjómenda spítalans undir
verkföll og uppsagnir fjölda starfs-
manna sem taka gildi í kvöld.
Helgi sagði í gær að unnið væri
að athugun á hvaða sjúklingar
gætu farið heim. Haft væri sam-
band við aðstandendur og þyrftu
sumir að taka sér frí úr vinnu til
að annast sjúklingana heima. Þá
væri verið að athuga með hvað
væri hægt að virkja af því starfs-
fólki sem eftir yrði, tii dæmis lækna
og læknanema. Einnig að undirbúa
það að taka við skyldmennum sem
vildu annast fólkið sitt sjálft á
spítalanum.
Helgi sagði einnig að sjúkrahúsin
ynnu að því að setja upp greiningar-
stöð á höfuðborgarsvæðinu fyrir
bráðveikt fólk. Þar yrðu upplýsing-
ar um öll laus rúm á sjúkrahúsum
svæðisins og reynt að koma sjúkl-
ingunum þangað.
Helgi sagði að útlit væri fyrir
að útskrifa þyrfti um helming af
600 sjúklingum sjúkrahússins, 90
væru þegar farnir og 210 yrðu
væntanlega útskrifaðir í dag.
Læknaráð Landakotsspítala:
Lýsir þung’um áhyggjum vegna
ástands í heilbrigðiskerfinu
LÆKNARÁÐ Landakotsspítala
lýsir þungum áhyggjum vegna
ástands þess, sem fyrirsjáan-
legt er í heilbrigðiskerfinu
vegna uppsagna og verkfalla
margra heilbrigðisstétta. Þótt
engin leið sé að sjá fyrir hveij-
ar afleiðingar þessar aðgerðir
kunni að hafa, í og með vegna
þess að ekki er unnt að spá til
um slys og heilsufar, þá er Ijóst
að algert neyðarástand mun
skapast á sjúkrahúsum og mikl-
um fjölda heimila. Læknaráðið
skorar á fjármálaráðherra, sem
samningsaðila fyrir hönd ríkis-
ins, að kynna sér ýtarlega þessa
alvarlegu stöðu mála og láta
einskis ófreistað til að samning-
ar takist næstu daga, svo að
forðast megi mestu truflun á
þjónustu við sjúka í áratugi.
Jafnframt hvetur læknaráðið
þær stéttir heilbrigðisstarfs-
manna, sem hlut eiga að máli, til
að sýna samningsvilja svo að af-
stýra megi því neyðarástandi sem
við blasir og kemur niður á þeim
sem sízt skyldi.