Morgunblaðið - 31.03.1987, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
Ólafsvík:
Hátíðarsam-
koma í tilefni
300 ára
Ólaísvík.
ÓLAFSVÍKINGAR komu sam-
an 26. mars sl. á hátíðarsam-
komu í tilefni 300 ára afmælis
Ólafsvíkur sem löggilts versl-
unarstaðar. AIl margt gesta
var, meðal annars þingmenn
kjördæmisins, og heiðursgestir
voru félagsmálaráðherra,
Alexander Stefánsson, og frú.
Dagskráin hófst með því að
Kristófer Þorleifsson forseti bæj-
arstjómar setti hátíðarfund í
bæjarstjóm Ólafsvíkur. Þar voru
á dagskrá tvö mál. Hið fyrra var
að fá formlegt samþykki bæjar-
stjómar á tillögu afmælisnefndar
að dagskrá afmælisársins. Tiliög-
una flutti Kristján Pálsson
bæjarstjóri sem jafnframt er
formaður afmælisnefndar. Síðara
dagskráratriðið var afhending
fyrsta heiðursborgarskjals í Ól-
afsvík. Það er Víglundur Jónsson
útgerðarmaður sem þessa heiðurs
nýtur. Ekki þarf að fara mörgum
orðum um starfsferil Víglundar í
útgerðar- og félagsmálum. Hefur
hann verið í fremstu víglínu og
afmælis
er verðugur heiðursborgari og
fulltrúi þeirra kynslóðar sem
þyngsta Grettistakinu lyfti.
Bæjarsljóm bárast gjafír og
kveðjur hvaðanæva af landinu og
ávörp fluttu félagsmálaráðherra,
Alexander Stefánsson, og einnig
Friðjón Þórðarson fyrir hönd þing-
manna kjördæmisins.
Forseti Rotaryklúbbs Ólafs-
víkur afhenti forseta bæjarstjóm-
ar eintök af sérslegnum
hátíðarpeningi, en áður hafði for-
seta íslands verið afhentur að
gjöf peningur númer eitt.
Að loknum hátíðarfundi bæjar-
stjómar var flutt erindi eftir Gísla
Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðing
um landnám og upphaf verslunar
í Ólafsvík. Þá framflutti kirkjukór
Ólafsvíkur tvö sönglög, samin
sérstaklega í þessu tilefni. Höf-
undur þeirra er söngstjóri kórsins,
Elías Davíðsson tónlistarkennari.
Fyrra lagið var við ljóð Ottós heit-
ins Ámasonar bókara og heitir
Ólafsvík. Hið síðara var vals sam-
inn við texta Jóns Amgrímssonar
Ólafsvíkurkaupstaður var fánum prýddur í tilefni 300 ára af-
mælisins.
Kirkjukór Ólafsvikur, undir stjórn Elíasar Davíðssonar, frumflytur sönglag eftir stjómandann.
rafvirkjameistara. Þótti þetta ta-
kast með ágætum.
Síðasta atriði þessarar dag-
skrár var að opnuð var sögusýn-
ing sem kennarar og nemendur
grannskólans hafa sett upp.
Gunnar Hjartarson skólastjóri
opnaði sýninguna. Mikla athygli
og ánægju vakti leiksýning sem
nemendur grannskólans fluttu.
Þeirri sýningu stjómaði Svanhild-
ur Jóhannesdóttir leikstjóri. Færði
hún í leikform ýmis atriði úr sögu
byggðarlagsins þar sem við sögu
komu háir og lágir, faktorar,
kaupmenn og svo alþýðan, búðar-
stöður hennar, árleg koma Ól-
afsvíkursansins og fleira. Inn í
textann var svo spunninn flutn-
ingur á vísum eftir Skáld-Rósu,
ljóð eftir Jóhann Jónsson skáld
og fleira. Þetta framtak Svan-
hildar og nemenda grannskólans
var ótrúlega lifandi lýsing frá
þessum tíma og var tekið af hrifn-
ingu. Að dagskrá lokinni bauð
bæjarstjóm öllum upp á kaffi.
Viðstaddir voru um 150-200
manns en auk þess var þessari
dagskrá sjónvarpað beint um
bæinn gegnum Villavídeó. Bátar
vora margir á sjó og unnið var í
flestum fískvinnslustöðvunum
þennan dag og vora því margir
sem ekki áttu þess kost að vera
viðstaddir. Allhvass vindur var úr
norðaustri en almennt róið eins
og fyrr sagði. Bærinn er fánum
prýddur. Vel þótti til takast með
fyrsta þátt afmælisdagskrárinnar
og vonum við að svo fari einnig
um hina ýmsu liði sem síðar verða
á árinu.
- Helgi
Morgunblaðið/Bjöm Guðmundsson
Frá hátíðarfundi bæjarstjórnar, Kristján Pálsson formaður af-
mælisnefndar ávarpar fundargesti.
Kristófer Þorleifsson, forseti bæjarstjómar, afhendir Víglundi
fyrsta heiðursborgaraskjalið sem gefið hefur verið út í Ólafsvik.
Lionsklúbburinn Þór:
Gaf Borgarspítal
anum lengingar-
og réttingatæki
Gunnar Sverrisson, formaður Lionsklúbbsins Þórs, afhenti dr. Gunn-
ari Þór Jónssyni, yfirlækni á slysadeild Borgarspitalans, gjöf þeirra
lionsmanna í gær. Að baki þeim má sjá starfsfólk á Borgarspítalan-
um ásamt félögum i Þór.
LIONSKLÚBBURINN Þór í
Reykjavík hefur fært Borg-
arspítalanum að gjöf beina-
lækningatæki. Hvatamaður og
ráðgjafi klúbbsins við tækja-
kaupin var dr. Gunnar Þór
Jónsson, prófessor og læknir
á Borgarspítalanum.
Tækin gera það kleift að
lengja bein og rétta eftir brot
eða ranga samgróningu. Kostir
þeirrar aðferðar, sem tækin eru
byggð fyrir eru miklir og góð
viðbót við eldri aðferðir. Ekki
þarf opna aðgerð við lengingu
eða réttingar beina. Aukaverk-
anir við minni háttar lengingar
og réttingar verða litlar, segir í
frétt frá Þór.
Nokkrir íslenskir læknar hafa
kynnt sér notkun þessara tækja
í Rússlandi, þar sem þau hafa
verið í notkun um nokkurt skeið.
Með tilkomu tækjanna verður
unnt að rétta bein sem ella hefði
þurft að gera á erlendum sjúkra-
stofnunum. Verulegar fjárhæðir
sparast með tilkomu tækjanna,
segir ennfremur í fréttinni.
Nú bíða um það bil tíu sjúkl-
ingar eftir meðferð í þessum
tækjum, en unnt er að lækna tvo
til þijá sjúklinga með tækjabún-
aði þeim, sem gefínn var.
Kaupverð tækjanna nam um
430.000 krónum, en þau myndu
kosta á fullu verði með aðflutn-
ingsgjöldum um eina milljón
króna.
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI