Morgunblaðið - 31.03.1987, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 31. MARZ 1987
Aflabrögð á vetrarvertíð:
Þorlákshöfn:
Afli vikunnar
varð 1.172 tonn
Þorlákshðfn.
HEILDARAFLI vikunnar varð
1.172 tonn af 47 bátum, sem
skiptist þannig: 41 netabátur var
með 1.016 tonn. 2 dragnótabátar
með 94,9 og 4 trollbátar 61,1
tonn.
Mestan afla í vikunni fengu:
Haföm ÁR 84,8 tonn í 7 róðrum,
Jóhann Gíslason ÁR 83,4 tonn í 3
róðrum og Þorleifur Guðjónsson
ÁR 51,6 tonn í 2 róðrum. Afla-
hæstu bátar frá áramótum em
Höfrungur III ÁR 250 með 572,4
tonn, Friðrik Sigurðsson ÁR 17
með 562,3 tonn og Jóhann Gíslason
ÁR 42 með 537,7 tonn. Togarinn
Þorlákur ÁR 5 landaði 24. marz
79,5 tonnum eftir 11 daga veiði-
ferð. Aflinn var 40,1 tonn af þorski,
17,4 karfi og 16,7 tonn af ufsa.
J.H.S.
Keflavík:
Búrfell KE
var aflahæst
Morgunblaðið/Sigurgeir.
Skipveijar á Þórunni Sveinsdóttur gæða sér á tertunni góðu, sem
bökuð var í tilefni þess að þeir höfðu náð 1000 tonna aflamarkinu.
Fremstur er Sigurjón Óskarsson skipstjóri.
V estmannaeyjar:
Keflavfk.
BÚRFELL KE var með 64,7 tonn
í síðustu viku og var aflahæsti
báturinn í Keflavík. Talsvert dró
úr aflanum hjá bátunum í vik-
unni og var heildaraflinn um 575
tonn eða um 200 tonnum minna
en vikuna þar á undan. Þar mun-
ar mestu um að nokkrir af
bátunum hafa lagt upp í Sand-
gerði.
©
INNLENT
Flestir stóm netabátanna em
með netin eða em að færa þau
suður af Jökli og út af Malarifi þar
sem aflinn hefur verið einna skást-
ur.
Skagaröst KE var með næst
mesta aflann 56,7 tonn, síðan kom
Skarfur GK með 53,8 tonn, Hrafn
Sveinbjamarson II GK 52,1 tonn,
Happasæll KE 51,4 tonn, Stafnes
KE 45,6 tonn, Vonin KE 38 tonn
og Þorsteinn KE 37,1 tonn. Aðrir
vom með minna.
Færabátamir komust tvisvar á
sjó í síðustu viku og var afli þeirra
lítill. Þeir vom að fá 200 til 400
kíló, enginn náði að komast í tæpt
tonn. Búrfell KE sem hefur verið á
línu er nú hættur á þeim veiðiskap
og er farinn á net.
- BB
Þóntnn Sveinsdóttir kom-
in með yfir 1000 tonn
Því var fagnað
með rjómatertu-
veislu um borð
Vestmannaeyjum.
VEISLU var slegið upp um borð
í Þórunni Sveinsdóttur VE á
föstudagskvöldið. Glæsilegum
rjómatertum var sporðrennt ljúf-
lega eftir að búið var að landa
32 tonnum af þorski og þar með
Grindavík:
Sorglega lélegar
tölur í síðustu víku
hafði 1000 tonna markinu verið
náð og raunar gott betur. 1017
tonn voru i landi á vertíðinni og
þvi engin furða að skipverjum á
Þórunni Sveinsdóttur og að-
standendum þeirra þætti ástæða
til veisluhalda.
Síðasta vika var erfið hjá sjó-
mönnum vegna brælu. Afli neta-
báta var ágætur framan af vikunni
og veður þá skaplegra. Á mánudag
var Suðurey með 56 tonn, Valdimar
Sveinsson 20, Skúli fógeti 16, Gull-
borg 12, og Sigurbára 10. Á þriðju-
dag var Þórunn Sveinsdóttir með
57 tonn, Ófeigur 43, Katrín 37,
Glófaxi 25 og Suðurey 38. Svo kom
brælan og allt á kafí. Bátarnir sem
sækja á heimamiðin voru flestir í
landi og þeir sem sækja austur um
komu ekki inn fyrr en á föstudag.
Þórunn Sveinsdóttir með 32 tonn,
Katrín 40 og Valdimar Sveinsson
12.
Loðnuvertíðinni er nú lokið og
varð þetta metvertíð í Eyjum. Meira
brætt og meira fryst af loðnu og
loðnuhrognum en áður. Bræðslurn-
ar tvær tóku á móti 94.400 tonnum
frá áramótum. Hjá Fiskimjölsverk-
smiðjunni var tekið á móti 58.400
tonnum og sagði Bemharð Ingi-
mundarson verkstjóri að þetta væri
það mesta sem þeir hefðu fengið á
einni vertíð, gamla metið var 57.500
tonn árið 1977. Eftir er að bræða
um 13.500 tonn og verður því lokið
í vikunni fyrir páska. Afköstin hafa
verið um 1000 tonn á sólarhring í
vetur.
Hjá Fiskimjölsverksmiðju Einars
Sigurðssonar var tekið á móti
36.000 tonnum sem er svipað og
árið 1972. Afköstin í vetur hafa
verið um 600 tonn á sólarhring og
lýkur bræðslu í næstu viku.
— hkj.
Sandgerði:
Dagfari kom fimm
sinnum með loðnu
Grindavík.
FISKERÍIÐ var mjög lélegt hjá
öllum Grindavíkurbátunum í
síðustu viku og virtist ekki skipta
neinu máli hvar þeir reyndu fyr-
ir sér með netin. Skipstjórarnir
velta að vonum vöngum yfir
þessu aflaleysi og eru rifjaðar
upp undanfarnar vertíðir til að
finna hliðstæðu. Nefndar eru
vertíðir þar sem gott fiskerí var
Ólafsvík:
Ólafsvík.
SLÆMT veður hefur rýrt ver-
tíðina allmikið við Breiðafjörð-
inn. Varðar það bæði magn fisks
og gæði. Ekki hefur komið nein
hrota en þó glæddist afli hjá
stóru bátunum núna fyrir helg-
ina.
Á föstudag voru nokkrir með
góðan afla og á laugardag voru sjö
bátar með yfír 20 tonn. Mest var
hjá Gunnari Bjamasyni eða 28 tonn.
eftir páska eða jafnvel í maí svo
ekki er öll nótt úti enn. Flestir
ef ekki allir eru þó sammála um
að búið sé að drepa alltof mikið
af smáfiski.
í síðustu viku var Hópsnes GK
aflahæst með 68 tonn og Gaukur
GK næstur með 53 tonn. Báðir
bátamir eru með netin í röstinni
og lönduðu 6 sinnum. Þriðji var svo
Hringur hafði 24 tonn og Halldór
Jónsson 23 tonn. Mestan vikuafla
fengu Halldór Jónsson, 108 tonn,
Lómur, 99 tonn og Gunnar Bjama-
son, 96 tonn.
Heildaraflir.n frá áramótum er
nú 6.681 lest í 1.455 sjóferðum.
Aflahæstur er Gunnar Bjamason
með 529 tonn í 56 róðmm, en
næstir koma Garðar II með 463
tonn og svo Fróði með 402 tonn.
- Helgi
Sighvatur GK með 40,5 tonn í 4
löndunum. Alls róa 47 bátar með
net frá Grindavík og em það fáir
bátar því oft lönduðu hér um og
yfír 100 bátar þegar mest var.
Frá áramótum er Hafbergið GK
með mestan afla, 562 tonn, Hóps-
nes GK með 547 tonn og Sigurður
Þorleifsson GK með 537 tonn.
Fimm bátar em á trolli og var Már
GK hæstur í síðustu viku með 13
tonn í 3 löndunum. Þrír bátar em
enn á línu og landaði Freyja GK
mestu eða 27 tonnum í 2 löndunum.
Einn bátur, Bliki ÞH, er byijaður
með dragnót og hefur hann landað
einu sinni, 5,6 tonnum eftir daginn.
Loðnuvertíðinni er nú lokið,
loðnuskipin frá Grindavík em öll
hætt en Grindvíkingur GK landaði
500 tonnum á laugardag eftir
síðasta túr._
Willard Ólasson skipstjóri sagði
að aldrei hefði hrygnt eins mikið
af loðnu hér við Island eins og á
þessum vetri. „Sjórinn er svartur
af loðnu hvar sem litið er. Vestur-
gangan gekk hér austur með um
daginn og hrygndi við Vestmanna-
eyjar og enn em að koma gusur
framhjá Hornafirði á vesturleið.
Það er því loðna frá Látrabjargi og
austur um og nú fær hún frið til
að hrygna því flestir bátar em
hættir," sagði Willard.
— Kr.Ben.
Sandgerði.
DAGFARIÞH landaði fimm sinn-
um tæplega 2000 tonnum af
loðnu í Sandgerði i siðustu viku.
Stutt er á loðnumiðin og er það
skýringin á hversu vel hefur
gengið hjá þeim Dagfaramönn-
um. Heildarþorskaflinn í vikunni
var 855 tonn og er það mun
meira en vikuna á undan.
Togarinn Gautur GK landaði 102
tonnum og er sá afli ekki meðtalinn
í vikuaflanum. Sæborg GK var afla-
hæsti Sandgerðisbáturinn með 69,1
tonn. Næst kom svo Amey GK með
64,1 tonn, Bergþór var með 62,9
tonn, Mummi GK með 59,6 tonn,
Víðir II 56,2 tonn, Hafnarberg GK
43,6 tonn, Þorlákur Helgi 35,6 tonn
og Boði KE 35 tonn.
*
Trollbátamir em tveir, Elliði fékk
15,4 tonn í einni sjóferð og Reynir
var með 17,8 tonn í tveim sjóferð-
um. Einn bátur er á dragnót, Bliki
GK og fékk hann 18,6 tonn. Sóley
er á steinbítsveiðum og kom hún
með 6 tonn, þar af vom 2 tonn
steinbítur. í vikunni lönduðu 12
færabátar 11,7 tonnum í 8 sjóferð-
um.
BB
Hellissandur:
Misjafn afli
og' risjótt tíð
Hellissandi.
AFLI vertíðarbáta sem nú róa frá
Rifshöfn hefur verið mjög misjafn
í vetur. Hafa bátar fengið frá 5
tonnum upp i 42 tonn eftir nótt-
ina. Einnig hefur veðrátta verið
mjög risjótt nú í marsmánuði og
hafa smærri bátar róið litið síðast-
liðna 10 daga.
Afli síðustu viku var þokkalegur
og fengu sumir bátamir frá 60 tonn-
um upp í 130 tonn eftir vikuna. Nú
em komin 431 tonn á land í vetur
sem er mun minna en á sama tíma
í fyrra. Aflahæstu bátamir em Rifs-
nes SH 44 með 580 tonn og
Saxhamar SH 50 með 511 tonn og
þriðji er Hamar SH með 470 tonn.
Fréttaritari.
Afli glæddist hjá
stóru bátunum