Morgunblaðið - 31.03.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1987
69
Húsfyllir á baráttufundi Hins íslenska kennarafélags:
Stuðningur við kennara
- segir Kristín Norðland í verkfallsstjórn HIK
ER að tæplega eittþúsund
manns hafi verið á baráttu-
fundi sem Hið íslenska kenn-
arafélag efndi til í Broadway á
sunnudag. Hlé var gert á samn-
ingaviðræðum félagsins við
ríkið meðan á fundinum stóð.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Kristín Norðland í verkfalls-
stjóm HÍK að tilgangurinn með
fundinum hefði verið að efla sam-
stöðuandann og sýna að kennur-
um er alvara með verkfalli sínu.
Það hefði síðan komið í ljós að
mjög mikill stuðningur er við
málstað kennara og fólk vildi beij-
ast áfram því annars hefði það
varla látið sjá sig á fundinum
miðað við þær fréttir sem verið
höfðu í fjölmiðlum fyrr um helgina
að samningar væru um það bil
að nást milli HÍK og ríkisins.
Kristín sagði að á tveggja tíma
dagskrá fundarins hefðu verið
bæði ávörp og skemmtiatriði þar
sem allir gáfu sína vinnu. Þá
hefðu fundinum borist áluktanir
og samstöðuskeyti víða að.
SPENNANDI
MOGULEIKAR FYRIR UNGLINGA
[ Gráfeldi bjóðast nú ótal spennandi og líflegir möguleikar
í unglingaherbergið. Samstæður frá Lundia; rúm.hillur,
skrifborð, stólar o.m.fl. - allt í stíl og ótal litum t.d. svart
og hvítt eða rautt og hvítt, eða sá litur sem þú helst kýst.
Veriðtímanlegaáferðinni þvístórhátíðarnálgast óðum.
Léttur, Ijúfur og þéttur
Þú eyðir u.þ.b. 1/3 hluta œvi þinnar í svefn og hvíld.
Því skiptir það máli að þú veljir góðan kodda, - kodda
sem veitir höfði og hálsi nákvœmlega réttan stuðning.
Latex koddinn er hannaður til þess að mœta ítrustu
kröfum vandlátra notenda og er prýddur fjölmörgum
kostum:
• Hann er gerður úr hreinu náttúrugúmmíi, - sérstaklega
hreinlegu efni sem hrindirfrá sér ryki og óhreinindum og
þolir þvott. Hann er því einnig mjög heppilegur fyrir þá
sem þjást af ofnœmi, asma og heymceði.
• 3000 rörlaga loftgöt sjá um að loftið leikur um koddann
að innanverðu, - einstakt loftrœstikerfi sem tryggir
jafnframt að koddinn heldur ávallt lögun sinni, er mjúkur
og fjaðurmagnaður.
Haltu þér fast! - Verðið kemur á óvart!
Við erum með tvœr gerðir af Latex koddum: i.fiV
Þynnri gerð á kr.873,-. Þykkari gerð á kr. 1.036 $0'
Útsölustaðir: , qOv. ^
Hagkaupsbúðirnar \ V>
Reykjavik, Njarðvík og Akureytl ^
LYóTADUn °ss?3?»10
Alyktun frá Bandalagi ísl. sérskólanema:
Kemiaralaim
allt of lág
Morgunbladiö/iijami
Hvert sæti var skipað í Broadway á baráttufundi Hins íslenska kennarafélags sem þar var haldinn
á sunnudaginn.
Framkvæmdastjórn Banda-
lags íslenskra sérskólanema
hefur sent frá sér ályktun þar
sem lýst er furðu yfir að ríkis-
valdið skuli ekki gera meira en
raun ber vitni til að leysa þá
deilu sem uppi er á rnilli þess og
kennara í Hinu íslenska kennara-
félags. Bent er á að varla hafi
verið rætt við kennara nema
síðustu dagana áður en verk-
fallið skall á og eftir það hafi
viðræður verið stopular, og með
þeirri afstöðu sé ríkið ábyrgt
fyrir að deilan er komin í meiri
hnút en ástæða hefði verið til.
í ályktuninni er tekið undir þær
röksemdir HÍK að laun kennara séu
of lág. Þetta hafi nemendur orðið
áþreifanlega varir við með því með-
al annars að hafa þurft að horfa á
eftir fjöldanum öllum af hæfum
kennurum út á almennan vinnu-
markað, einungis vegna þess að
kennarastarfið er engan veginn
samkeppnishæft launalega.
í ályktuninni segir síðan: Ríkinu
ber skylda til að tryggja að kenn-
arastarfið sé eftirsóknarvert og í
það veljist einungis hæfir einstakl-
ingar. Kennarastarfíð verður að
vera vel samkeppnisfært launalega
þannig að það geti keppt við hinn
almenna vinnumarkað um besta
starfskraftinn hveiju sinni. Ef svo
er ekki þá er tilgangslaust fyrir
stjómmálamenn og aðra að vera
að velta sér upp úr draumum um
að íslendingar eigi möguleika á að
skapa sér eitthvert nafn á hinum
ýmsu sviðum t.d. tölvusviðum, efna-
iðnaði eða hinum ýmsu hátækni-
sviðum. Þeim sem húsum ráða hjá
ríkisvaldinu ætti að vera kunnugt
um að þegar byggt er hús þá er
það ekki gert öðruvísi en að byija
á grunninum.
Lágt fersk
fisk verð í
Þýzkalandi
VERÐ á ferskum karfa á fisk-
mörkuðunum í Þýzkalandi er nú
lágt og búizt við því að svo verði
að minnsta kosti fram yfir páska.
Meðalverð á karfa úr Vigra RE
var á mánudag 47,19 krónur.
í þýzka dagblaðinu Nordsee Zeit-
ung síðastliðinn laugardag er það
haft eftir Jochen Jantzen, formanni
stjórnar fískmarkaðsins í Bremer'- **
haven, að hann búist við því að
fískverð yfir páskana verði neytend-
um hagstætt.
Vigri RE seldi á mánudag 326
lestir, mest karfa í Bremerhaven.
Heildarverð var 15,4 milljónir
króna, meðalverð 47,19. Sama dag
seldi Ottó Wathne NS 128 lestir,
mest þorsk í Grimsby. Heildarverð
var 7,9 milljónir króna, meðalverð
61,75.