Morgunblaðið - 11.11.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
Af slysstað
Raufarhöfn:
Harður árekstur
Lögregluþjóninn beitir fyrir landróðrarbát
Raufarhöfn.
ALLHARÐUR árekstur varð á
aðalgötu Raufarhafnar á mánu-
dag er jeppi og sendiferðabif-
reið rákust saman.
Áreksturinn varð með þeim af-
leiðingum að sendiferðabifreiðin
tókst á loft, fór einn hring og
snerist í gagnstæða átt við upp-
Akranes:
haflega akstursstefnu þegar hún
hafnaði á hliðinni yfír á hinum
kanti götunnar. Sá sem árekstrin-
um olli var að koma frá bensínaf-
greiðslu Esso og fór út á
aðalgötuna. Þetta var um hádeg-
isbil og sól skein glatt og blindaði
ökumann jeppans. Engin alvarleg
slys urðu á bflstjórum, en þeir
voru einir í bifreiðunum.
Þetta er fyrsti árekstur þessar-
ar tegundar á Raufarhöfn og
vonandi sá síðasti. Hér hefur ekki
verið mikið um alvarlega árekstra
bifreiða til þessa.
Sá lögregluþjónn sem hér hefur
verið starfandi undanfarin ár er
nú fluttur til Húsavíkur og er orð-
inn starfandi lögregluþjónn þar.
Sá sem leysir hann af til bráða-
birgða er starfandi við beitningu
á landróðrabát og símsvari gefur
upp símanúmer heima hjá honum
og ef ekki næst í þennan stað-
gengil í síma þá segir símsvarinn
að leita skuli til lögreglunnar á
Húsavík. Þá getur lögreglan þar
náð í lögreglubflinn á Raufarhöfn
og ef lögregluþjónninn sem er við
beitningu er með lögreglubflinn
hjá sér við beituskúrinn eða ann-
ars staðar þar sem hann er
staddur getur verið að hann heyri
kallið frá lögreglunni á Húsavík.
Það getur þá verið liðin langur
tími frá því að hringt er í lögregl-
una á Raufarhöfn og símsvarinn
gefur upp þá slóð sem fara skuli
til að ná til lögreglumanns ef slys
eða annað sem þarfnast aðstoðar
lögreglu ber að höndum?
- Helgi
Norskir sölu-
menn stöðvaðir
„VIÐ höfðum afskipti af tveimur norskum skartgripasölum þar
sem þeir höfðu ekki leyfi til að selja vöru sína hér á landi,“
sagði Hermann G. Jónsson, fulltrúi bæjarfógeta á Akranesi.
Skartgripasalamir höfðu feng- voru aldrei kallaðir til yfírheyrslu,
ið inni í verslun á Akranesi og
seldu þar vöru sína, sem þeir
höfðu flutt löglega til landsins í
ágúst. Að sögn Halldórs hafa
þeir áður selt skartgripi í
Reykjavík, Hafnarfírði og á Sel-
fossi og höfðu fengið inni í
verslunum á hveijum stað. „Þeir
en við bentum þeim á að þeir
mættu ekki selja þessa vöru, því
menn þurfa verslunarleyfí jafnvel
þótt þeir þurfí ekki atvinnuleyfí
í landinu, eins og þessir norsku
menn,“ sagði Halldór. „Þeir hafa
hætt starfseminni og ég á ekki
von á neinum eftirmála."
Minningarhlaup um
Jóhannes Sæmunds-
son íþróttakennara
ÁRLEGT mmningarhlaup fer
fram laugardaginn 14. nóvem-
ber um Jóhannes Sæmundsson
íþróttakennara við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Keppt verður
f boðhlaupi 4x2 km umhverfis
Tjömina í opnum flokki karla
og 3x2 km í opnum flokki
kvenna. Einnig verður keppt í
opnum einstaklingsflokki karla
og kvenna ásamt skólaboð-
hlaupi nemenda Menntaskólans
í Reykjavík.
Skráning keppenda og afhend-
ing númera verður í anddyri
Menntaskólans í Reykjavík frá kl.
12.00 til 12.30. Búningsaðstaða
verður í íþróttahúsi skólans.
Keppnin hefst í Tjamargötunni
kl. 13.00 í boðhlaupi karla og
kvenna. Kl. 13.30 hefst skólaboð-
hlaup nemenda menntaskólans og
kl. 14.00 leggja einstaklingsflokk-
ar karla og kvenna af stað. Að
hlaupi loknu mun Guðni Guð-
mundsson rektor afhenda verð-
laun í hátíðarsal menntaskólans.
Verðlaun verða veitt fyrstu kepp-
endum og sveitum í hveijum
flokki, en dregið verður um verð-
laun í einstaklingsflokki. Einnig
munu nemendur 6. bekkjar
menntaskólans bjóða upp á veit-
ingar.
Iþróttaráð menntaskólans sér
Jóhannes Sæmtmdsson
um framkvæmd hlaupsins í sam-
vinnu við íþróttakennara skólans.
Verkalýðsmáiaáiy ktun Alþýðubandalagsins
Hefndaraðgerð
gegn Asmundi
- segir Guðmundur J. Guðmundsson um
verkalýðsmálaályktun Alþýðubandalagsins
„MÉR ER sagt að ályktunin sem slík sé nokkuð góð en þessi
kafli hafi verið samþykktur til að hefna sín á Ásmundi Stef-
ánssyni af þvi að hann hafði átt þátt í að ryðja einhveijum
Ólafsmönnum út úr framkvæmdastjórn þarna um morguninn
þegar bóhemarnir voru á fylleríi,“ sagði Guðmundur J.
Guðmundsson formaður Dagsbrúnar þegar Morgunblaðið
leitaði álits hans á verkalýðsmálaályktun landsfundar Al-
þýðubandalagsins en tillaga frá Birnu Þórðardóttur sem var
samþykkt á landsfundinum og inniheldur harðorðar ákúrur
í garð verkalýðsforystunnar hefur vakið mikla athygli.
„Þetta er svona frasakjaftæði,
klisjur upþúr Neista og Fylking-
unni gömlu, samþykkt í einhverj-
um hefndarhug," sagði
Guðmundur. „Ég les satt að segja
miklu frekar Tarsan eða eitthvað
svoleiðis í dagblöðunum frekar en
þetta, ég sofna yfirleitt útfrá
svona lesningu. Þetta snertir mig
ekki. Þetta er yfírborðskennd og
grunnhyggin skilgreining." Guð-
mundur sagði einnig að merkileg-
ast við þessa ályktun væri að
Fylkingin geti fengið sínar
pólitísku skilgreiningar sam-
þykktar á landsfundi Alþýðu-
bandalagsins.
Um breytingamar á forystuliði
Alþýðubandalagsins sagði Guð-
mundur að hann væri ekki lengur
í Alþýðubandalaginu og vildi ekki
setjast í dómarasæti yfír forystu
þess. „En ég var löngu búinn að
segja að Ólafur Ragnar mundi
ríða ösnu sinni inn í Jerúsalem
Alþýðubandalagsins og það yrði
mikill grátur og gnístran tanna
við Grátmúrinn og sú spá stóðst,
það var löngu séð að Ólafur Ragn-
ar væri búinn að ná meirihluta á
þinginu, sagði Guðmundur. Loks
sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son að í Alþýðubandalaginu væri
mjög mikið af góðu fólki, vinum
sínum og félögum „og líka tölu-
vert af fólki sem ég á enga
pólitíska samleið með.“
Samþykkt að lítt
hugsuðu máli
- segir Benedikt Davíðsson um verka-
lýðsmálaályktun Alþýðubandalagsins
„ÉG GET tekið undir flest það
sem kemur fram i verkalýðs-
málaályktun Alþýðubandalags-
ins ef undan er skilin viðbótin
frá Birnu Þórðardóttur," sagði
Benedikt Daviðsson formaður
Sambands byggingamanna.
„Ég held að það sé rétt hjá
Ásmundi Stefánssyni að hún
hafi verið samþykkt að lítt hug-
suðu máli.“
Benedikt kvaðst ekki taka mik-
inn þátt í flokksstarfi Alþýðu-
bandalagsins núverið, segist vera
að hvfla sig á flokksstarfinu en
vera sáttur við mannaskiptin í
forystunni. „Ég vona að þessi
skipti gangi vel fyrir sig og mun
leggja mig fram um að svo megi
verða," sagði Benedikt Davíðsson.
Var ekki viðstaddur
- segir Þröstur Ólafsson
ÞRÖSTUR Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar
segir að heildarályktun lands-
fundar Alþýðubandalagsins um
verkalýðsmál hafi verið af-
greidd á meðan hann sat ekki
fundinn. Hann kvaðst hafa
starfað i nefndinni sem lagði
drög að verkalýðsmálaályktun
fyrir þingið og lagði jafnframt
til að viðbótartillaga Birnu
Þórðardóttur yrði felld.
„Ég er í öllum aðalatriðum
sammála ályktuninni ef breyt-
ingatillagan frá Bimu Þórðardótt-
ur er undanskilin, sagði Þröstur.
„Ég skil ekki að meirihluti fulltrúa
skuli hafa séð sér fært að greiða
henni atkvæði. Sjálfur hafði ég
brugðið mér fram á gang og var
þar í samræðum við nokkra aðra
fulltrúa þegar tillagan var borin
undir atkvæði og því vissi ég ekki
fyrr en eftir á að hún hefði verið
borin upp og samþykkt,"
Varðandi hina nýju forystu Al-
þýðubandalagBÍns sagði Þröstur
að flokkurinn þyrfti nú skýra for-
ystu og að hann treysti Óiafí
Ragnari Grímssyni til að veita
hana. „Flokkurinn hefur átt í
langvarandi pólitfskum erfíðleik-
um og baráttumál hans hafa ekki
komist til skila sem pólitíkur val-
kostur, hlutverk forystunnar er
að snúa við blaðinu í því efni og
ég vona að til þess fái hún starfs-
frið, sagði Þröstur Ólafsson.
Alþýðubanda-
lag* - ekkiAl-
þýðuflokkur
í viðtali við Ólaf Ragnar
Grimsson formann Alþýðu-
bandalagsins í Morgunblaðinu
í gær, urðu blaðamanni á þau
mistök að skrifa á einum stað
Alþýðuflokkur í stað Alþýðu-
bandalags. í viðtalinu stendur
þvi eftirfarandi: „Ég tel mig
þess vegna á margan hátt betur
í stakk búinn eftir að hafa far-
ið í gegnum þessa reynslu en
ef ég hefði alltaf starfað innan
vébanda Alþýðuflokksins.“
Þama átti að standa „Alþýðu-
bandalagsins". Þessi mistök
skrifast eingöngu á reikning
blaðamanns og er beðist vel-
virðingar á þessu.