Morgunblaðið - 11.11.1987, Síða 46
ífTTD
46
Y8(H JJ3HM3VÓM íf HUOACITjDÍIVGTM .CTKTA IHMtJ05T0M
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
pTTnT??fn??H|
Betri
bíll
fyrir
litinn pening
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Jeppa
eigendur
66
„Gas Ryder LT
j. i,á Gabriel
^ han
on ..nii
Gasfylltur höggdeyfir, sér-
hannaöur fyrir notkun í jeppum
og „pick-up" bílum. Bœtir aksturs
eiginleikana viö erfiöar aöstœöur.
G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
Bildudalsflugvöllur.
Bíldudalur:
Morgunblaðið/Finnbjöm Bjamason
Guðbjörn Charlesson, umdæm-
isstjóri flugs á Vestfjörðum.
Stærri og öruggari flugvöllur
Bfldudal.
FLUGVÖLLURINN á Bíldudal
hefur verið opnaður á ný fyrir
flugumferð eftir gagngerar end-
urbætur. Flugbrautin er nó 1000
metra löng og gerð hafa verið
öryggissvæði, en það hefur ekki
verið gert áður hérlendis við
flugvöll af þessari stærð.
Að sögn Guðbjöms Charlessonar,
umdæmisstjóra flugs á Vestfjörð-
um, hefur flugvöllurinn í Fossfirði
við Bfldudal verið í endurbyggingu
síðan 1981, en upprunalega flug-
brautin var gerð 1969 af áhuga-
mönnum. Unnið hefur verið í
áföngum við endurbætumar og er
þetta 3ja árið í röð sem unnið er
við flugvöllinn. í þetta sinn var
hann lokaður í tæpar 3 vikur vegna
framkvæmdanna, en á meðan var
flogið til Patreksfjarðar. Nú er flug-
brautin 1000 metra löng og gerð
hafa verið öryggissvæði utan flug-
reinar sem ekki hafa tíðkast áður
hér á landi nema við stærri flug-
velli. Samkvæmt nýju flugmála-
áætluninni em nú gerðar kröfur um
öryggissvæði við minni flugvelli,
alls staðar sem því verður við komið.
„Mun ömggara er að lenda á
vellinum nú og ljóst er að stærri
vélar gætu lent hér eftir þessar
breytingar," sagði Guðbjöm Charl-
esson. Nýtt burðarlag er komið í
flugbrautina og unnið malarslitlag
og gera má ráð fyrir að aurbleyta
setjist síður í brautina eftirleiðis.
Sett hafa verið færanleg brautarljós
við flugvöllinn til nota við sjúkra-
flug, en varanleg flugbrautarjós
fyrir næturflug vantar enn. Á Bíldu-
dalsflugvelli er nýleg flugstöð sem
var fullgerð 1983. Góðar samgöng-
ur em frá Bíldudal til flugvallarins,
en þangað liggur endumýjaður veg-
ur. Amarflug sér um áætlunarflug
til Bfldudals sex daga vikunnar all-
an ársins hring og er það mikið
samgönguöryggi fyrir staðinn.
Talið er að allt að 9% farþega-
flutninga til og frá Vestfjörðum
almennt sé í lofti. Góð skilyrði em
til flugs til Bfldudalsflugvallar,
bæði veðurfarslega og landfræði-
lega séð og fellur flug sjaldan niður.
Það helsta sem orðið hefur flugi til
trafala er að flugvöllurinn er van-
búinn tækjum til snjómoksturs og
sandburðar. Með þessum endurbót-
um á Bíldudalsflugvelli opnast nýr
möguleiki á varaflugvelli fyrir
næstu byggðarlög, en aðalflugvöll-
ur sýslunnar á Patreksflrði er oft
ófær vegna hliðarvinds.
- RJ
Símstöð varstj órar stofna
nýtt stéttarfélag
Keflavík.
STÖÐVARSTJÓRAR hjá Pósti
og síma stofnuðu nýtt stéttarfé-
lag á laugardaginn í Reykjavík
og var Björgvin Lúthersson
stöðvarstjóri í Keflavik kosinn
formaður. Nýja félagið heitir
Félag stöðvarstjóra Pósts og
síma og eru félagar um 90 tals-
ins.
Björgvin Lúthersson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að eitthvað
hefði orðið að gera í þessum mál-
um. „Stöðvarstjórar hafa verið í
tveim stéttarfélögum, Félagi
íslenskra símamanna og Póst-
mannafélaginu, og það gengur ekki
að tvö félög fari með samningsrétt
einnar starfsstéttar."
Björgvin sagði að símstöðvar-
stjórar væm orðnir vemlega á eftir
öðmm í launabaráttunni og hann
vissi þess nokkur dæmi að félagar
sínir hefðu orðið að fara í aðra vinnu
til að geta framfleytt fjölskyldum
sínum.
Að sögn Björgvins var mikil sam-
staða meðal fundarmanna og allir
þeir sem ekki áttu heimangengt
hefðu sent erindi um að gerast fé-
lagar. Björgvin sagði að samþykkt
hefði verið á stofnfundinum að óska
eftir að félagið fengi aðild að
Bandalagi ríkis og bæjar.„Við höf-
um góðar vonur um að fá inngöngu,
en fram að þeim tíma verðum við
áfram aðilar að okkar gömlu stétt-
arfélögum,“ sagði Björgvin enn-
fremur.
BB
P.
etta tæki vinnur dag
og nótt við að halda stöð-
ugum kjörhita á heimili
þínu, hvemig sem viðrar
og gætir þess að orku-
reikningurinn sé í lág-
marki.
etta tæki vinnur við
að halda stöðugum kjör-
hita á baðvatninu og gæt-
ir þess að orkureikning-
urinn sé í lágmarki.
HEÐINN
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260
Ofnahitastillar
og baðblöndunartœki
Óþrjótandi ánœgja
ZentiS
- orugg gæði -
6 MISMUNANDI GERÐIR
• KIWISULTA
• BLÁBERJASULTA
• JARÐABERJASULTA
• APRIKÓSUSULTA
• HINDBERJASULTA
• ÁVAXTASULTA BLÖNDUÐ
I*
Heildsölubirgðir:
P. Marelsson
Hjallavcgi 27, 104 Reykjavik
ÍT 91-37390 - 985-20676
ZENTIS VORLI! FVRIR VANDLATA