Morgunblaðið - 11.11.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
51
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PETER SPINKS
Braskað með böm:
Seld til ættleiðingar, vændis,
barnakláms og þrælkunar
AÐILDARRÍKI Evrópuráðsins, 21 talsins, hafa lagt til hertra að-
gerða til þess að draga úr streymi ungbarna frá löndum þriðja
heimsins til Bandaríkjanna og Evrópu, en mikið er um að bömin
séu seld tii ættleiðingar, starfa við vændi eða í klámiðnaði, og til
þrælkunar. Hefur Evrópuráðið lagt til að sett verði alþjóðalög til
að auðvelda eftirlit með þessum viðskiptum.
essar aðgerðir ráðsins koma
í kjölfar ítarlegrar skýrslu um
þetta vaxandi vandamál sem Piet
Stoffelen, þingmaður hollenzka
Verkamannaflokksins, hefur unn-
ið.
í skýrslunni er haft eftir opin-
berum heimildum frá E1 Salvador
að eftirspumin eftir bömum til
ættleiðingar hafí ekki aðeins leitt
til ólöglegrar verzlunar og pretta,
heldur einnig til útgáfu falsaðra
skjala og bamarána. „Hundrað
bama era flutt út til Banda-
ríkjanna og landa í Evrópu, þar á
meðal til Belgíu, Vestur Þýzka-
lands, Ítalíu, Frakklands, Noregs
og Svíþjóðar," segir Stoffelen, en
listi hans yfír ódæðisverk gagnvart
bömum leiddi til mikilla og tilfínn-
ingaríkra umræðna á þingi
Evrópuráðsins í Strasbourg.
„Hagsmunir bama sem teljast
hæf til ættleiðingar skipta
harðsvíraða kaupahéðna engu
máli. Þau era aðeins verzlunarvara
í þeirra augum, og þeir kaupa
bömin, stundum jafnvel áður en
þau fæðast."
Barnavændi
í skýrslunni er dregin upp átak-
anleg mynd af misnotkun bama
og bent á að 5.000 drengir og
3.000 stúlkur stundi vændi í
París, 300.000 drengir í Banda-
ríkjunum, og að árlega hverfi um
15.000 unglingar í Bretlandi.
Skýrt er frá því að stundum fáist
fímmfalt verð þegar unglingar era
leigðir út til kynmaka miðað við
„gangverð" hjá fullorðnum.
Dulbúin viðskipti á þessu sviði
fela svo í sér ráðningu kvenna eða
stúlkna til starfa í skemmtanaiðn-
aðinum, til dæmis sem dansara
eða barþjóna. Þegar þær svo kom-
ast í kynni við vændiskonur eða
melludólga leiðast þær oft sjálfar
út í vændi. Aðrar neyðast út í
vændi til að greiða skuldir sínar
við vinnumiðlara sem greiddu
ferðakostnað þeirra og útveguðu
þeim vinnu.
Stoffelen segir að þessi við-
skipti séu alls ekki einskorðuð við
streymi frá vanþróuðum löndum
til þeirra þróaðri, heldur sé al-
mennt um að ræða streymi
fátækra kvenna til vel stæðra
karla hvar sem þeir era.
Skýrslan gefur til kynna að
skipulagt bamavændi sem venju-
lega er tengt löndum Suð-austur
Asíu - sérstaklega Thailandi - sé
einnig útbreitt I Brasilíu, Perú,
Bandaríkjunum, Frakklandi,
Vestur Þýzkalandi og Bretlandi.
„Melludólgar útvega viðskiptavin-
unum ungar stúlkur sem bera
fölsuð persónuskilríki,“ segir
Stoffelen. Og til að skilríkin komi
að tilætluðum notum njóta mellu-
dólgamir stundum aðstoðar
yfirvalda og lögreglu.
Klám á myndböndum
í Bandaríkjunum er einnig mik-
ill uppgangur í sölu klámfenginna
mjmdbanda, og þar nemur salan
á bama-klámmyndum um 500
milljónum dollara á ári. í sumum
höfuðborgum í Evrópu - svo sem
Amsterdam - kemur ólögmæti
bamakláms ekki í veg fyrir sölu
myndanna, sem oft er blygðunar-
laust stillt fram til sölu við hlið
lögmætra klámmynda.
Oft stafar þetta af sinnuleysi
lögreglu og ásókn ferðamanna í
þessháttar myndir. Nýlega kom
upp mikið hneykslismál í Hollandi
þar sem böm höfðu verið seld til
þátttöku í klámmyndum, sem
gerðar vora í bænum Oude Pek-
Um víða veröld ganga börn
kaupum og sölum, hvort sem
þau eru notuð til ættleiðingar,
vændis eða hefðbundinnar
þrælkunar.
ala, en íbúamir þar höfðu aðallega
verið þekktir fyrir stranga siða-
vendni kalvínstrúarinnar. Ferða-
menn haldnir bamafíkn geta svo
keypt vel mjmdskreytta „gjálífis-
bæklinga" með heimilisföngum,
listum yfír tiltæk hótel, verðlag,
nöfnum milliliða, leiðbeiningum
um hvemig viðskiptin fara fram
og skrá jrfír réttarfarslegar höml-
ur, sem ekki era ýkja miklar í
Hollandi.
Enn meira er um það að böm
séu misnotuð við vinnu. Þrátt fyr-
ir ákvæði Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar, ILO, varðandi vinnu
bama virða mörg aðildarríkjanna
ákvæðin um 15 ára lágmarksald-
ur að vettugi. „Algengara er að
böm séu í launuðum störfum hjá
smærri fyrirtækjum sem geta
skotið sér undan eftirlitskerfí
stærri vinnustaða," segir Stoffel-
in, sem áætlar að í það minnsta
50 milljón böm séu misnotuð á
þennan hátt víða um heim. „Það
ætti í það minnsta að skylda aðild-
arríki ILO til að hlýta kröfunum
um lágmarksaldur og nauðsynlegt
er að fletta ofan af undirverktök-
um sem stunda bamaþrælkun við
framleiðslu fyrir stærri fyrirtæki.
Þannig gætu neytendur sniðgeng-
ið vaming sem unninn er með
þrælkun bama.
Börn seld
glæpahringnm
Önnur hlið verzlunar með böm
varðar kaup á 10-15 ára bömum
sígaunafjölskyldna, sem oft fást
keypt fyrir sem svarar 1.200 ísl.
krónum. Þessi böm eru svo endur-
seld ítölskum glæpaflokkum, sem
greiða fyrir þau andvirði 300.000
króna. Eftir að bömin hafa verið
þjálfuð í þjófnaði og vændi geta
þau skilað eigendum sínum marg-
földu kaupverði.
Til að vinna gegn ólögmætum
ættleiðingum nýtur Stoffelin
stuðnings Evrópuráðsins sem hef-
ur hvatt til þess að Allsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna gangist fyrir
lagasetningu varðandi fóstur og
ættleiðingu bama. „Þannig gæt-
um við hert skilyrði fyrir ættleið-
ingu milli landa undir eftirliti
Alþjóða félagsmálaráðsins," segir
hann.
„Við verðum einnig að tryggja
að við ættleiðingar bama utan
heimalands þeirra séu gerðar
sömu kröfur og innanlands," seg-
ir Stoffelin. „Það má aldrei
viðgangast að þeir sem koma við
sögu við fóstur og ættleiðingu
bama geti borið úr býtum ótil-
hlýðilegan hagnað."
Aðildarríki Evrópuráðsins ætla
að standa fyrir ítarlegri kynningu
á þessu vandamáli, þar sem mikil
leynd hefur hvílt yfír allri verzlun
með böm. „Við höfum öll stundað
kaup, á mjög lágu verði, á fram-
leiðslu ungra þræla frá þróun-
arríkjunum," segir hollenzki
þingmaðurinn, sem hnykkir á um
að „við í Evrópu megum ekki og
getum ekki horft framhjá mis-
notkun bama í öðram heimshlut-
um.“
Forráðamenn menntamála í
aðildarríkjum Evrópuráðsins
munu stuðla að því að fræðsla í
mannréttindamálum verði felld
inn í námsefni skóla fyrir alla ald-
ursflokka. Sameiginlegt átak
verður gert til að kanna heima
fyrir og á alþjóðavettvangi hvem-
ig verzlun með böm er skipulögð.
„Það verður að veita auknum fjár-
munum til framfærslu fjölskyldna
og bama, og þjónustuaðilar jafnt
í einkarestri sem á vegum hins
opinbera ættu að taka höndum
saman við eftirlit með velferð
bama og vinna gegn upplausn
fjölskyldna," segir Stoffelin.
Eftir að hafa einbeitt sér að
því að bæta lífsskilyrði bama á
Vesturlöndum stefna aðildarríkin
að því að sameina skilyrði til
menntunar og starfsþjálfunar
annarri félagslegri þjónustu á
sviði heilsugæzlu og næringar-
mála. Einnig er mælt með því að
almennt eftirlit verði aukið með
því að fá verkalýðsfélögin til að
fylgjast með vinnu bama og með
skipan sérstakra umboðsmanna
bama.
Tillögu Stoffelins um að aðild-
arríkin komi upp sérstökum
stofnunum til að fylgjast með
verzlun á götum úti og hafa sam-
band við þau böm er við þessa
verzlun starfa var vel tekið hjá
Evrópuráðinu. Mætti sfðan fela
þessi böm umsjá annarra félags-
máladeilda til frekari menntunar
þeirra þótt þau héldu störfum
sínum áfram. Ef fyrirhugaðar
aðgerðir Evrópuráðsins bera til-
ætlaðan árangur ætlast Stoffelin
til að bömin hverfí endanlega frá
störfum á götum úti.
Höfundur er blaðamaður bjá
brezka blaðinu Tbe Observer.
Þrjár bílveltur
á Reykjanesbraut
Keflavik.
ÞRJÁR bilveltur urðu með stuttu
millibili á Reykjanesbraut í hálk-
unni á mánudagsmorgun. Að
sögn lögreglunnar í Keflavík
fóru tveir bílanna útaf á Strand-
arheiði og urðu ekki slys á fólki.
Þriðja bilveltan kom til kasta
lögreglunnar i Hafnarfirði.
Þá valt lögreglubfll frá lögregl-
unni á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir
utan aðalhliðið aðfaranótt laugar-
dags. Lögreglumaðurinn sem var
einn í bflnum slapp án teljandi
meiðsla. Bifreiðin sem var nýlegur
Saab skemmdist mikið og er jafn-
vel talin ónýt.
BB
Jeppum stolið
TVEIMUR jeppum var stolið í
Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dagsins. Lögreglan biður þá, sem
gætu gefið upplýsingar um það
hvar jepparnir eru niður komnir,
um að hafa samband.
Fyrri jeppinn ætti að vera auð-
þekktur, því hann mun vera sá eini
sinnar tegundar hérlendis. Hann er
af gerðinni Citroen Mehari, grár
að lit með brúnu þaki. Honum var
stolið frá Hávallagötu 14 og ber
hann númerið R-62519.
Hinn jeppinn er af gerðinni Wag-
oneer, hvítur að lit, með númerið
R-9589, árgerð 1976. Honum var
stolið frá Háaleitisbraut 34. Þeir
sem gætu gefíð upplýsingar um
afdrif jeppanna era beðnir um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Þessi hús sem eru byggfi úr stálgrind og sérstöku níðsterku plast-
efni, sem þolir mikil veður og eld.
Húsið má setja upp á naerri hvaða jaröveg sem er. Það tekur aðeins
örfáa daga að setja húsin upp eða taka þau niður.
Og verðið er eins og á meðalbfl: 8-900.000,-
Einnig er hugsanlegt að leigja húsin.
Gísli Jónsson og Co hf.
Sundaborg 11, sími 686644.
HAFÐU ALLT Á
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK