Morgunblaðið - 12.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.01.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 8. tbl. 76. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ólympíuleikarnir: Sovétmenn ætla að keppa í Seoul Moskvu, Reuter. SOVÉTMENN munu taka þátt í Ólympíuleikunum, sem fram fara í í Seoul í Suður-Kóreu nú í sumar. Að sögn hinnar opinberu frétta- stofu Tass ákvað Ólympiunefnd Sovétrikjanna að þekkjast boð Alþjóðaólympiunefndarinnar, en til þess fer hver að verða siðastur þvi fresturinn til þess að tilkynna þátttöku rennur út næstkomandi sunnudag. Áreiðanlegar heimildir í Kína herma ennfremur að þar- lend stjórnvöld hafi tekið ákvörðun um þátttöku. Tass sagði að um leið og ákveðið hefði verið að senda lið til Seoul í sumar hefði sovéska Ólympíunefnd- in ítrekað stuðning sinn við tillögu Norður-Kóreu um að Ólympíuleik- arnir verði haldnir í Norður- og Suður-Kóreu, en tillöguna telur nefndin vera í „fyllsta samræmi við anda Ólympíusáttmálans og þau markmið sem þar eru í heiðri höfð“. Þátttaka Sovétmanna í leikunum hafði verið nokkurri þoku hulin vegna krafna þeirra um-að Norður- Kórea yrði jafnhár gestgjafi leik- anna. Nú þegar hafa tæplega 140 þjóð- ir tilkynnt þátttöku sína, svo ljóst er að hér verður um best sóttu Ólympíuleika til þessa að ræða. Afganistan: Reuter Ryzhkov íSvíþjóð Níkolaj Ryzhkov, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, er nú í opinberri heimsókn í Svíþjóð. Þegar eftir komuna til Stokk- hólms hófust fundir Ryzhkovs með Ingvari Carlson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar og ræddu þeir einkanlega deilu ríkjanna um lögsögu Eystrasalts. Dagblöð og stjórnarandstaða í Sviþjóð hafa gagnrýnt Carl- son nokkuð fyrir að gera deilu þessa, sem staðið hefur siðan 1969, að aðalefni funda þeirra, þegar mun mikilvægara sé að ræða tíðar ferðir ókunnra kaf- báta við strendur Svíþjóðar. Heimsókn Ryzhkovs í Svíþjóð stendur í þrjá daga en þaðan heldur hann til Noregs. Dönsk fiskiskip: Skylda að hafa björgun- arbúninga Kaupmannohöfn. Frá N. J. Bruuil, fréttaritara Morgunblaðsins. FRÁ og með sumrinu 1991 eiga að vera viðurkenndir björgun- arbúningar um borð í öllum dönskum fiskiskipum, sem eru 20 tonn eðá stærri. Ný skip eiga að vera komin með þessa búninga þegar á kom- andi hausti en hver búningur kostar um 29.000 ísl. kr. Mikill ágreiningur hefur verið um búningana og varð Niels Wil- hjelm iðnaðarráðherra að taka af skarið um skyldukaup þeirra. Pravda segir brottfor Rauða hersins geta hafist 1. maí Stuðningur Bandaríkjanna við frelsissveitir sagður helsta hindrunin Islamabad og Moskvu. Reuter. PRAVDA, málgagn sovéska kommúnistaflokksins, greindi frá því í gær að Rauði herinn gæti hafið brottflutning frá Afganistan hinn 1. maí á þessu ári, að þvi tilskildu að samningar næðust með Pakis- tönum og kommúnistastjórninni í Kabúl í upphafi mars. Þetta er í fyrsta skipti sem sovésk yfirvöld nefna ákveðna dagsetningu í sam- bandi við brottflutning innrásarheijanna úr Afganistan. Fréttaskýrandi Prövdu, Vsevolod Ovtsjinníkov, sagði að helsti Þránd- ur í Götu sáttar í Afganistan væri stuðningur Bandaríkjanna við „stigamenn" i landinu og ítrekaði að til þess að innrásarherinn færi úr landi þyrftu Bandaríkin og Pak- istan að gera ráðstafanir til þess að sveitir múslima hættu aðgerðum sínum. „Málið snýst ekki um hvenær hersveitir Sovétmanna snúa aftur til síns heima heldur hvenær Banda- ríkjamenn hætta stuðningi sínum við stigamennina," en svo nefna Sovétmenn og leppstjómin frelsis- Kínverjar óbúnir undir leiðtogafund með Rússum Peking, Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, Sovétleið- togi, hvatti í viðtali, sem birtist í kínversku vikublaði í gær, til þess að Kínveijar og Sovétmenn héldu með sér leiðtogafund, en Kínveijar vildu ekkert segja um þessa uppástungu. Vestrænir stjómarerindrekar í Peking sögðu að sambúð rikjanna hefði vissulega farið batnandi að und- anförnu, en töldu óliklegt að Kínveijar vildu taka upp jafn- vinsamleg samskipti og Gorba- tsjov virðist vilja. Vestrænir sendimenn sögðu að Kínveijar myndu ekki hvika frá þeim „þremur hindrunum“, sem þeir sjá í vegi bættra samskipta ríkjanna. Sú veigamesta er krafa Kínveija um að Kremlvetjar fái bandame.nn sína í Víetnam til þess að draga heri sína í Kambódíu úr landinu. Kínveijar gera ennfremur kröfu um að innrásarher Sovétmanna fari frá Afganistan og í þriðja lagi að Kremlarbændur dragi verulega úr 151 tvw m*.*ít >»'« v* \ t ft E3 % 11 f!l« f Í»1 ^■4 c4»-yc-x> '4. . Mynd þessi birt- ist af Gorbatsjov í kinverska tíma- ritinu ásamt eiginhandarárit- un leiðtogans undir fyrirsögn- inni: „Míkhaíl (íorbatsjov svar- ar blaðamanni okkar.“ liðsafnaði sínum við landamæri Kína og Sovétríkjanna. Gorbatsjov kom með uppástungu sína hinn 28. desember þegar tíma- ritið Liaowang (Viðhorf) tók við hann viðtal. „Að okkar mati væri leiðtogafundur Kína og Sovétríkj- anna rökrétt þróun mála,“ sagði Gorbatsjov. Nýja Kina, hin opinbera frétta- Reuter stofa Kína, og opinber blöð skýrðu frá viðtalinu, en gátu í engu um leiðtogafundaruppástunguna. Kommúnistaríkin tvö áttu síðast leiðtogafund árið 1959, þegar Níkíta Khrústsjov fór til fundar við Maó Zedong í Peking. Ári síðar dofnaði vinskapurinn og hafa sam- skipti ríkjanna ekki verið með sama hætti síðan. sveitir múslima. Sagði að þegar Bandaríkjamenn samþykki að hætta aðstoð sinni við „stigamenn- ina“ gætu Sovétmenn dregið hersveitir sínar til baka innan tólf mánaða. Yfírvöld í Moskvu og Kab- úl hafí komist að samkomulagi um það. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjómar, sagði frétta- mönnum í síðustu viku að stjómin hyggist ekki samþykkja að hætta stuðningi við uppreisnarmennina fyrr en Sovétmenn ákveði hvenær þeir dragi hersveitir sínar til baka. Viðræður milli stjómvalda í Kab- úl og Islamabad fyrir meðalgöngu Sameinuðu þjóðanna munu hefjast að nýju í Genf síðla í næsta mán- uði og hafa embættismenn í Washington jafnt og Moskvu gefíð tilefni til bjartsýni. Rauði herinn gerði innrás í Afg- anistan á jólum 1979 þegar kommúnistastjórn Hafizullah Am- ins virtist riða til falls. Vestrænir sérfræðingar telja að í landinu séu nú 115.000 sovéskir hermenn. ísrael: Ókyrrð vegna dráps á 16 ára unglingi Reuter. Á HERNUMDUM svæðum ísra- els sat við sama i gær, en ókyrrð magnaðist vegna dráps á unglingi nokkrum, sem gert hafði aðsúg að einum leiðtoga ísraelskra landnema á her- numdu svæðunum. Pilturinn og félagar hans komu fyrir vegartálma og þegar ísrael- inn Pinchas Wallerstein neyddist til þess að nema staðar hóf hópur- inn gijótkast. Wallerstein og lífvörður hans fóru út úr bílnum og skutu að hópnum með ofan- greindum afleiðingum. Frakkland: Réttarhöld yfir með- limum Action Directe París, Reuter. FYRSTU pólitísku fjöldaréttarhöld í Frakklandi frá stríðslokum hófust í gær, en þá voru leiddir fyrir rétt 22 menn, sem grunaðir eru um að vera meðlimir hinna vinstrisinnuðu hryðjuverkasamtaka Action Directe. Allir eru þeir ákærðir fyrir pólitískt samsæri með því að aðstoða eða vera virkir meðlimir hryðjuverkasamtakanna, en þau hafa lýst sig ábyrg fyrir átta morðum og meira en 80 hryðju- verkaárásum frá stofnun þeirra árið 1979. Gífurlegar öryggisráðstafanir voru gerðar í París fyrir réttar- höldin og umhverfis dómshúsið mátti hvarvetna sjá lögregluþjóna gráa fyrir járnum. Á hveiju götu- homi var öflugur vörður með hunda og á húsþökum fylgdust árvökular leyniskyttur með hverri hreyfíngu á jörðu niðri. Frönsk yfirvöld óttast, að þrátt fyrir að þorri samtakanna sé nú bak við lás og slá, kunni einhveijir með- limir samtakanna enn að leika lausum hala og hyggi á frekari ódæði. Þá hafa tengsl Action Directe við Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi og hryðjuverkasamtök kommúnista í Belgíu ekki gert mönnum rórra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.