Morgunblaðið - 12.01.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.01.1988, Blaðsíða 24
24 Björgun breska flugmannsins MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988 Snarræði bj örgnnarmanna og ljós- týra á flotvesti urðu honum til lífs Áhöfn TF-SIF, þyrlu Land- helgisgæslunnar, sem bjargaði breska flugmanninum úr sjón- um undir Svörtuloftum (frá vinstri): Kristján Þ. Jónsson, siglingafræðingur, Sigurður L. Gíslason, sigmaður, Bjarki Þór- arinsson, læknir, Hermann Sigurðsson, flugmaður, og Ben- óný Asgrimsson, flugstjóri. Feijuflugmaðurinn breski sem nauðlenti vél sinni í sjónum undan Snæfellsnesi á laugardagskvöldið getur þakkað það skjótum og örugg- um viðbrögðum Flugmálastjórnar og Landhelgisgæslunnar að hann er á lífi nú. Flugvél Flugmálastjómar var komin í loftið aðeins 14 mínútiun eftir að flugmenn vom kallaðir út, og flugu með Bretanum í átt að flugvellinum á Rifi síðustu tiu mínútumar áður en hann varð að nauðlenda i sjónum. Flugmennirnir sáu hvar vélin lenti í sjónum um einn kílómetra undan Svörtuloftum á utanverðu Snæfellsnesi, og gáfu þyrlu Landhelgisgæslunnar nákvæma staðarákvörðun sem hjálp- aði henni mikið við leit þegar hún kom á staðinn hálftima síðar. Ljóskastarar og hitaskynjarar hefðu að öllum likindum fundið mann- inn fljótlega, en það var dauf ljóstýra á björgunarvesti mannsins sem fyrst vakti athygli þyrlumanna á Bretanum. Hann var ómeiddur þeg- ar hann náðist upp í þyrluna — 45 mínútum eftir að flugvél hans lenti í sjónum — en var orðinn mjög kaldur, og hefði ekki Iifað af 20 mínút- ur í viðbót í sjónum, að eigin sögn. Morgunblaðið/RAX Bretinn ætlaði að feija flugvélina, sem er eins hreyfils af gerðinni Piper Cherokee, frá Bangor í Maine-fylki í Bandaríkjunum til London. Vélin millilenti í Kanada og á Baffinsl- andi, og tók síðan eldsneyti i Syðri- Straumsfirði á Grænlandi á föstudagskvöldið, og beið þar yfír laugardagsnóttina. Klootwyk lagði siðan af stað frá Grænlandi laust fyrir hádegi á laug- ardaginn, og reiknaði með að vera 6-6 'Aklukkustund á leiðinni til Reykjavíkur. Klukkan 16.10 til- kynnti Klootwyk flugumferðarstjóm að hann ætti aðeins eftir eldsneyti til 30-35 mínútna flugs, og fimm mínútum síðar er honum tilkynnt að hann eigi að stefna að Rifi á Snæ- fellsnesi, en það var sá fiugvöllur sem styst var að fara á. Flugmenn TF- DCA, flugvélar Flugmálastjómar, voru ræstir út kl. 18.12, og voru komnir í loftið 14 mínútum síðar. Flugvallarstjórinn á Rifi var einnig látinn vita, og undirbjó hann lend- ingu. Klukkan 18.37 tilkynnir Klootwyk fyrst að það sé dautt á vél hans um 16 sjómílur út af Snæfellsness, en hann náði að setja hana aftur í gang nokkrum sinnum með því að beina tijónu vélarinnar niður á við þannig að eldsneyti lak úr geymunum til vélarinhar. TF-DCA kom á staðinn kl. 18.50 og sá vélina, en hún lenti á sjónum tíu mínútum síðar. Tekin var nákvæm staðarákvörðun þar sem vélin lenti f sjónum, um einn kíló- metra fyrir utan Svörtuloft, og þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sem lagt hafði af stað úr Reylq'avík kl. 18.40, gefnar þær upplýsingar. Siguijón Einarsson og Snæbjöm Guðbjömsson, flugstjórar TF-DCA, sáu ljós á vélinni í sjónum í 10-12 mínútur, en þeir sáu ekki hvort mað- urinn komst frá borði eða ekki. Flugvélin flaug áfram yfir slysstaðn- um og hafði yfirstjóm með björguna- raðgerðum eftir að þyrla Landhelgis- gæslunnar kom á slysstaðinn um kl. 19.30. Þyrlan hóf leit með hitamynd- sjá og ljóskösturum, en 10 mínútum eftir komu hennar tók Sigurður Gíslason, sigmaður, eftir daufri ljó- stýru, sem síðar kom í ljós að var af ljósi á björgunarvesti Bretans. Það tók smátíma að finna manninn eftir að ljósið sást fyrst, en kl. 19.45 náði sigmaður Bretanum úr örlitlum eins manns gúmbát sem hann var í um borð í TF-SIF. Hercules-flugvél frá vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli var komin á staðinn rétt um það leyti sem þyrla Landhelgisgæslunnar var búin að finna manninn, og kastaði út sterku ijósblysi samkvæmt beiðni frá Flugmálasijómarvélinni þegar verið var að ná Bretanum upp í þyrl- una. Þyrla vamarliðsins fór líka af stað, og átti ekki mjög langt eftir á slysstað þegar björgunin var afstað- in. Veður var þokkalegt á slysstað, en nokkur vindur, norðaustan 7 vind- stig. Nokkur alda var, en ekki mjög slæmt í sjóinn. Þrátt fyrir að orðið væri dimmt var skyggni gott og stjömubjart. Læknir skoðaði Klootwyk um leið og hann var kominn um borð í TF- SIF, og sá strax að hann var ómeiddur, og var frekari björgunar- aðgerðum því aflýst kl. 19.50. Klootwyk var hins vegar orðið mjög kalt eftir nær þriggja stundaifyórð- unga volk í um 5 gráðu heitum sjónum, og gat til dæmis ekki veifað til leitarmanna. TF-SIF flaug siðan með manninn á Borgarspítalann, og gat hann gengið studdur úr þyrlunni, en hann dvaldist síðan í Borgarspítalanum yfir nótt. Á sunnudaginn tók Loft- ferðaeftirlitið skýrslu af Klootwyk, og síðan hélt hann til London. Að sögn Grétars óskarssonar hjá Loftferðaeftirlitinu er það ljóst að flugvélin sem Klootwyk var á var ekki með nóg eldsneyti er hún Iagði af stað frá Syðra-Straumsfirði, en eldsneytið átti að duga í um eina og hálfa til tveimur klukkustundum lengur en það gerði. Nokkur mót- vindur var á leiðinni, en ekki nægi- Iega mikill til að skýra hvers vegna vélin varð eldsneytislaus svo snemma. Ekkert bendir til að vélin hafi bilað, en það er óhægt um vik að rannsaka það, því Piper-vélin er nú á hafsbotni. Ekki er vitað hvers vegna ekki hefur verið nóg eldsneyti á vélinni þegar hún lagði af stað frá Grænlandi. Klootwyk telur að hann hefði ekki lifað af að vera 20 mínútum lengur í sjónum, og því er ljóst að snör við- brögð björgunaraðila og góð samræming aðgerða skiptu sköpum við björgun hans. Aðeins fjórtán mínútur liðu frá því að Siguijón Ein- arsson og Snæbjöm Guðbjömsson vora kallaðir út þar til TF-DCA var komin á loft. Karl Eiríksson, formað- ur flugslysanefndar sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri „alveg með ólíkindum hvað Siguijón og starfsmenn Flugmálastjómar hefðu gert og bjargað; Siguijón er alltaf kominn í loftið 10-15 mínútum eftir að það er hóað í hann“. Vegna hinna skjótu viðbragða flugstjóranna náðu þeir að sjá flug- - segirbreski flugmaðurinn Ares Klootwyk „ÉG HAFÐI verið I sjónum í 40 mínútur er mér var bjargað og ég efast um að ég hefði lifað af 20 minútur í viðbót," sagði Ares Klootwyk, flugmaðurinn breski sem bjargað var úr sjónum fyrir utan Svörtuloft á laugardaginn. „Björgunin tókst mjög vel; bæði flugvélin og þyrlan stóðu sig stór- kostlega og ég er áhöfnum þeirra þakklátur fyrir björgun mína,“ sagði Klootwyk ennfremur. „Þegar mér varð ljóst að ég átti of lítið eldsneyti eftir hafði ég sam- band við flugumferðarstjóm í Reykjavík og sagðist ætla að stefna til Keflavíkur, en þeir sögðu að með svo lítið eldsneyti væri eina von mín að lenda á Rifi. Ég var i um 13.000 feta hæð þegar vélin drap á sér í fyrsta skiptið, en mér tókst að fá hana aftur í gang öðra hvora með því að beina tijónunni niður á við. Um þetta leyti kom björgunarflug- vélin og sá mig og ég tilkynnti henni að ég myndi ekki ná flugvellinum, og spurði hvemig landslagið hentaði fyrir nauðlendingu. Þeir sögðu það vera mjög slæmt, hn þá sá ég brimið við ströndina og sá að ég kæmist ekki yfír bjargið hvort sem væri og sneri vélinni upp í vindinn og lenti á sjónum. Flugvélin stöðvaðist skyndi- vélina þar sem hún nauðlenti í sjónum, og gátu gefið þyrlu Land- helgisgæslunnar nákvæma staðarák- vörðun, en það var aðalástæðan fyrir því hve skamman tíma það tók að finna flugmanninn í sjónum, ásamt árvökulu auga Sigurðar Gíslasonar, sigmanns, sem sá daufa ljóstýruna á björgunaiVestinu. lega og sjór byijaði að leka inn um dymar. Eg var ómeiddur og náði í björgunarbátinn, neyðarsendinn og nauðsynlegustu pappjra og opnaði svo dymar og fór út. Ég fór um borð í bátinn og reyndi að skella hurðinni aftur án árangurs. Ég hélt mér smá- stund í stélið, en þá fór framendi vélarinnar í kaf og ég kom mér burt svo vélin drægi mig ekki með sér niður. Ég settist f bátinn og horfði á flugvélina hringsóla fyrir ofan mig, og um 30 mínútum eftir að ég lenti f sjónum kom þyrlan. Ég var allan tfmann bjartsýnn og þegar ég sá þyrluna var ég orðinn nokkuð öragg- ur um að mér yrði bjargað. Þeir fundu mig ekki strax þar sem neyð- arsendirinn hætti að senda út þegar hann blotnaði. Þeir segjast síðan hafa séð ljósið á björgunarvestinu mínu, sem er mjög dauft og erfitt að koma auga á, og 10 mfnútum eftir að þyrlan kom á staðinn féll ljóskastari þeirra á mig og skömmu síðar var ég hffður upp f þyrluna. Þá var ég orðinn mjög kaldur og leið mjög illa. Þeir flugu sfðan með mig á sjúkrahús í Reykjavfk og eftir einn og hálfan klukkutíma þar var mér aftur farið að líða vel. Ég eyddi síðan nóttinni þar og flaug aftur til Englands á sunnudag og er við hesta- heilsu nú.“ Aðspurður um ástæður slyssins sagði Klootwyk: „Það var mjög mik- ill mótvindur og ég varð eidsneytis- laus. Það er unnið að rannsókn nú og ég vil ekki segja meira á þessu stigi málsins." Flugvél sömu gerðar og sú sem Klootwyk var á. Hefði ekki þolað 20 mín- útur 1 viðbót í sjónum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.