Morgunblaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 60
EINKAREIKNINGUR ÞINN
í LANDSBANKANUM.
_________________Mi
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Félag íslenskra iðnrekenda:
Gengistryggð lán
verði heimiluð
STJÓRN Félags islenskra iðnrekenda hefur ályktað að gerðar verði
breytingar á íslenskum fjármagnsmarkaði. FÍI vill að íslenskum
sparifjáreigendum og lántakendum verði gefið fullt frelsi til að binda
sparnað sinn og lántökur hér á landi við gengi erlendra gjaldmiðla.
FII telur að verði framangreindar
ráðstafanir framkvæmdar gefíst
lOgl
I frétt frá FII um þetta mál er
sagt að í beinu framhaldi af þessu
verði gerðar nauðsjmlegar ráðstaf-
anir til að afnema öll höft sem nú
eru á möguleikum íslendinga til
spamaðar og lántöku erlendis. Er-
lendum bönkum verði leyft að
stunda bankastarfsemi á íslandi og
athugaðir verði möguleikar á teng-
ingu íslensku krónunar við mynt-
kerfí eins og ECU.
tækifæri til að tryggja íslenskum
sparifláreigendum og lántakendum
jafnstöðu við það sem tíðkast er-
lendis. Þannig skapist færi á að
losna undan séríslenskum fyrirbær-
um á peningamarkaðinum eins og
lánskjaravísitölu og háum nafn-
vöxtum.
Hitaveitan fær
gallaðar álplöt-
ur í annað sinn
GÖTUN á álplötum, sem nota á í klæðningu á hitaveitugeymunum
á Öskjuhlíð, mistókst hjá Garða-Héðni hf. í Garðabæ. Ekki er ljóst
enn hvort þær eru ónýtar, að sögn Gunnars Kristinssonar hitaveitu-
stjóra. Álplöturnar voru fengnar f stað gallaðra álplatna frá Aust-
urríki, sem keyptar voru fyrir rúmu ári, en það mál er enn ekki til
lykta leitt.
Gunnar sagði að von væri á arki-
tekt til landsins í dag, föstudag, og
Glæsilegnr
árangurEin-
ars í Helsinki
EINAR VUþjálmsson varð sig-
urvegari f mikilli spjótkast-
keppni, sem fór fram á
Óiympfuleikvanginum í Hels-
inki f gærkvöldi. Hann kastaði
spjótinu 82,68 m.
Allir bestu spjótkastarar heims
tóku þátt í keppninni, ma heims-
methafinn Jan Zelezny frá Tékkó-
slóvakíu, heimsmeistarinn Seppo
Raty frá Finnlandi, Norðurlanda-
methafinn Tapio Korjus frá Finn-
landi, Viktor Jevsukov frá Sov-
étríkjunum og Klaus Tafelmeier,
fyrrum heimsmethafi, heimsmeist-
ari og Evrópumeistari, frá V-
Þýskalandi.
Sjá bls. 59.
yrðu skemmdimar á álinu þá metn-
ar, en von væri til þess að hægt
væri að nýta plötumar þrátt fyrir
tjónið. Innkaupsverð á álinu er 7
milljónir króna, en Gunnar sagðist
ekki reikna með að Hitaveitan
þyrfti að borga tjónið vegna þess-
ara mistaka. Þá liti út fyrir að Hita-
veitan fengi skaðann vegna mislitu
platnanna frá Austurríki bættan og
hugsanlega yrðu þær settar upp á
geymum á Reynisvatnsheiði, þar
sem gallinn yrði minna áberandi.
Klárir í bátana
Morgunblaðið/RAX
KRAKKARNIR úr Aftureldingu í Mosfellssveit nutu veðurblíðunnar á Þingvöllum í gær. Bmgðið var á leik
á flötunum og farið út á vatnið. Alls tóku um 150 manns þátt í þessari dagsferð, böm og fullorðnir. Á
myndinni sést Ólafur Ágúst Gíslason rétta Ásgeiri Elíassyni árar út í einn bátinn. Ásgeir hefur átt sæti í
ólympíulandsliði í tveimur greinum íþrótta og kannski hefur hann í hyggju að bæta þeirri þriðju við.
Atvinnuhúsnæði í Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi:
Rúmlega 108 þúsimd fer-
metrar til leigu eða sölu
Helst skortur á iðnaðarhúsnæði fyrir smáfyrirtæki
í REYKJAVÍK, Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði eru 108.669
fermetrar af skrifstofu-, verslunar- og iðnaðarhúsnæði til sölu eða
leigu samkvæmt lauslegri könnun, sem atvinnumálanefnd
Reykjavíkur hefur látið vinna á framboði atvinnuhúsnæðis í
Reykjavík og nágrannabæjum. Mest er um stórar eignir að ræða.
Hins vegar er helst skortur á 100 til 200 fermetra iðnaðarhúsnæði
undir smáfyrirtæki auk þess sem alltaf vantar gott verslunarpláss
á jarðhæð f Reykjavík.
„Þessi niðurstaða gefur tilefni
til að ætla að um offjárfestingu
hafí verið að ræða í kjölfar góðæris-
ins á síðasta ári en að undanfömu
hefur slaknað á þeirri spennu,"
sagði Jóna Gróa Sigurðardóttir,
formaður atvinnumálanefndar.
í Reykjavík em 109 eignir tii
sölu eða leigu, sem eru samtals
82.556 fermetrar að stærð. Þar af
eru 13.284 fermetrar verslunar-
húsnæði, 39.191 fermetri iðnaðar-
húsnæði og 30.081 fermetri skrif-
stofuhúsnæði. Við Suðurlandsbraut
eru sex eignir á skrá og er flatar-
mál þeirra tæplega 98 þúsund fer-
metrar. í Garðabæ eru 8 eignir til
sölu eða 3.964 fermetrar. Þar af
3.908 fermetrar iðnaðarhúsnæði
og 56 fermetrar verslunarhúsnæði.
í Kópavogi eru 19 eignir falar sem
skiptast á 12.125 fermetra. Þar af
940 fermetrar verslunarhúsnæði,
8.785 fermetrar iðnaðarhúsnæði
og 2.400 fermetrar skrifstofuhús-
næði. í Hafnarfírði eru 17 eignir á
söluskrá eða 10.024 fermetrar. Þar
af 60 fermetrar verslunarhúsnæði
og 9.964 fermetrar iðnaðarhús-
næði.
Könnunin byggir á upplýsingum
frá 25 fasteignasölum, sem sumir
hveijir vildu ekki gefa upp húsnúm-
er á eignum og því er ekki hægt
að útiloka að um tvítalningu sé að
ræða, þar sem eignir eru í mörgum
tilvikum á skrá hjá fleiri en einum
fasteignasala. Þá má vera að skráð
eign sé í fastri leigu og því ekki
um beint framboð að ræða.
Meirihiuti fasteignasalanna telur
að framboð á atvinnuhúsnæði sé
mikið en þeir hafa mismunandi
skoðun á hvaða áhrif það hefur á
verð eignanna. Svo virðist sem það
hafí ekki lækkað en greiðsluskil-
málar hafa breyst.
Banaslys á Miklubraut
BANASLYS varð á Miklu-
brautmni skömmu fyrir há-
degið í gær er 86 ára gamall
maður varð fyrir bifreið.
Maðurinn var að fara norður
yfir brautina við Miklatún,
utan gangbrautar, og varð
fyrir bQ á leið austur götuna.
Maðurinn lést nær samstund-
is.
Lögreglunni var tilkynnt um
slysið kl. 11.44 og var Miklu-
brautinni lokað frá slysstað og
upp að ljósunum á mótum
Lönguhlíðar og Miklubrautar.