Morgunblaðið - 30.10.1988, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
Stjörnii-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
ErfiÖir tímar
Nú eru erfíðir tímar á fslandi,
eins og fréttir fíölmiðla bera
með sér, samdráttur og erfíð
uppstokkun _á mörgum sviðum
þjóðlífsins. f ftéttum er talað
um gjaldþrot og erfíðleika sem
viðs vegar steðja að, en alltaf
er umfjöllunin ópersónuleg. Að
baki hverri slíkri sögu er hins
vegar persónulegur harmleik-
ur.
HiÖ persónulega
Það er sjálfsagt eins með mig
og flesta sem þessar sögur
snerta ekki persónulega. Ég
finn fyrir óhug á meðan ég les
blöðin en síðan hugsa ég ekki
um það sem er að gerast,
þangað til næsta saga kemur
upp á borðið. Þrátt fyrr það
get ég ekki leitt þetta mái al-
veg hjá mér, ég hef tilfínning-
ar og hef lent í mínum erfíð-
leikum, eins og gengur og ger-
ist með flesta.
HceÖir oglœgÖir
Mig langar þess vegna að
nefna nokkur atriði sem ég tel
að geti hjálpað, þótt ekki sé
nema að litlu leyti. í fyrsta
lagi er gott að hafa það í huga
að eitt af lögmálum lífsins er
lögmál hæða og lægða. Það
þýðir að þó ísland sé nú í lægð
þá munum við risa úr þeirri
Iægð eins og svo oft áður. Og
það fyrr en síðar. Við ættum
því að varast að festa okkur í
gryflu þunglyndis og að álykta
sem svo að þó við eigum erfítt
í dag að svo verði alltaf.
Nýrdagur
Það er tilhneiging mannsins
að sjá ekkert nema svartnætti
þegar illa gengur. „Mér geng-
ur illa í dag og þess vegna
hefur lifíð alltaf verið erfítt og
verður alltaf erfítt." Að sama
skapi fínnst okkur að lífíð hafí
alltaf verið fallegt þegar sólin
skín. Þeir sem eiga erfítt í dag
ættu að reyna að forðast þetta
og leggja á minnið að það kem-
ur dagur eftir þennan dag.
Sólin mun skína að vori með
nýja von.
Peningar
eru ekki allt
Mig langar einnig að segja eitt
við þá sem eiga við fjárhags-
erfíðleika að stríða. Peningar
skipta vissulega miklu og eru
lyldll að mörgu í okkar þjóð-
félagi. Þeir skipta hins vegar
ekki öUu. Það er t.d. mikilvægt
að búa við góða heilsu og eiga
ástvini.
AÖ elska sjálfan sig
Það sem í raun skiptir öliu
máli er persónulegur þroski og
það að kunna að Kða vel með
sjálfum sér, burtséð frá ytri
aðstæðum. Margur fátækur
maðurinn er hamingjusamur
og margur ríkur maður er van-
sælb Hamingja og velgengni
eru ekki mæld í ytri vegtyllum.
Það er þvi innri líðan og innri
styrkur sem skiptir mestu
máli þegar upp er staðið.
Vinna meÖ
sjálfan sig
Þetta atriði tel ég mikilvægt
og tel að það geti opnað leið
itl betra lífs. Ef það er innri
líðan sem skiptir mestu þá er
ein besta leiðin til að koma sér
út úr erfiðleikum sú að vinna
með sjálfan sig. Það ætti
a.m.k. ekki að vera verra að
byggja sig upp, fara t.d. i sund
á hveijum degi, borða hollan
mat og lesa jákvæðar og and-
legar uppbyggjandi bækur.
Slíkt eykur okkur orku og um
leið bjartsýni. Öll sálræn og
andleg vinna vikkar einnig
sjóndeildarhringinn og getur
gert það að verkum að vanda-
málin virðast minni og um leið
viðráðanlegri. Það er því mikil-
vægara en oft áður að byggja
sig upp þegar tímamir eru
erfiðir.
GARPUR
GRETTIR
BRENDA STARR
Lés-ru þessf\ Bzenda hsimtabi.
SKBPNU FA67AJ -06
0H£'NDU Á B&EHDA HEIMTftR,
tfEIM F _X\ Se BINS 60 TT
A£> FA&A ,
BFVR. PU/.
BN /f /H6BAN htEFUF. BfZENDA
N'AB fSÉTTU Bf...
DUTTLUHGAFDUA KDNA'. ABR-A
STUND/NA HElMTAR-þÚ 'AStÚB AUNA,
'EN HfNA FEfSDU MBÐ /H'G E/NS OG
FL/GN/NGSHUND!'
-yíi
:::::::: DÝRAGLENS
PABBI,<5ET
és fengið
FLÓÖHESTlNf^
l'KVÖLD?
. FcRDIIMAIMD
:::~rr 11 n u ~ TTT\TI . FZTJ
) PI8 copenhagen
3103
SMÁFÓLK
Nei, reyndar ekki
Þeir sem fóru voru sjálf-
boðaliðar ...
50 YOU DON T HAVE TO
60 TO THE M00N IF
YOU DON'T WANTTO..
Svo að þú þaft ekki að
fara til tunglsins ef þú vilt
það ekki____
Úff, þarna munaði mjóu!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Dobl á slemmum hafa þann
tilgang fremur öðrum að vísa
makker á útspil. Báðir spilarar
í sæti vesturs túlkuðu meiriingu
makkers rétt og skutu út í þeim
lit sem hann óskaði eftir. En það
reyndist ekki leiðin til lífsins:
Suður gefur; AV á hættu.
Vestur
♦ 3
V 983
♦ K10976
+ G8
Norður
4-
VÁK765
♦ D8542
+ KD10
Austur
♦ ÁG987652
V D104
♦ -
+ 92
Suður
+ D4
V G2
♦ ÁG3
♦ Á76543
Þetta var í leik fyrrverandi
og núverandi ólympíumeistara,
Pólveija og Bandaríkjamanna í
A-riðli keppninnar. Bæði NS-
pörin komust í sex lauf, sem
austur doblaði til að biðja um
tígul út:
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Rodwell Zmudz. Meckst. Balicki
- - - 1 lauf
Pass 1 tígull 4 spaðar 5 lauf.
Pass 6 lauf Dobl Pass
Pass Pass
Lokaður salun
Vestur Norður Austur Suður
Gawrys Wolff Lesiews. Hamman
- - - 2 lauf
Pass 2 tlgiar 3 spaðar Pass
4 spaðar 6 lauf Pass Pass
Pass
í opna salnum sýndi opnun
Balickis á laufí 7—12 punkta og
ójafria skiptingu. Tígullinn á
móti var biðsögn, en siðan varð
Balicki að hrökkva eða stökkva
við fjórum spöðum. Hann stökk,
og hafði heppnina með sér.
Á hinu borðinu vakti Hamman
á Precision tveimur-Iaufum, og
eftir það var leiðin í slemmuna
greið.
Tígull kom út á báðum borð-
um, sem austur trompaði, og það
varð fyrsti og eini slagur vamar-
innar, 1090 og spilið féll. Það
reynist létt verk að fría hjartað
og losna við tígul og spaða að
heiman.
í einum leik a.m.k. spilaði
vestur út spaða gegn slemm-
unni, sem sagnhafí trompaði
með tíunni, tók einu sinni lauf
og spilaði tígli. Austur tromp-
aði, spilaði aftur spaða og sagn-
hafi varð að gefa slag á tígul.
Einn niður!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á minningarmótinu um Tigran
Petrosjan, fyrrum heimsmeistara,
í Erevan í Sovétrikjunum í vor
kom þessi staða upp í skák
sovézka stórmeistarans Smagin
og ungs landa hans Akopjan, sem
hafði svart og átti leik.
• b c 4 * | | h
22. - Hh2+! og hvítur gafst upp,
því eftir 23. Kxh2 - Dxf2+, 24.
Khl er einfaldast að leika 24. -
Ke7 og með hótuninni 25. -
Hh8+.