Morgunblaðið - 02.12.1992, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDA'GUR 2. DESEMBER 1992
ÚTVARPSJÓNVARP
SJONVARPIÐ
17.45 ►Jóladagatal Sjónvarpsins-Tveir
á báti Annar þáttur. I gær sofnaði
séra Jón um borð í trillunni sinni og
lenti í hafvillu. Hvað er nú til ráða?
17.55 pJólaföndur Að þessu sinni verður
búin til jólakeðja. Þulur: Sigmundur
Öm Arngrímsson.
18.00 ►Töfraglugginn Pála pensill kynnir
teiknimyndir úr ýmsum áttum. Um-
sjón: Sigrún Halldórsdóttir.
18.55 ►Táknmálsfréttir
19.00 ►Grallaraspóar Bandarísk teikni-
myndasyrpa frá þeim Hanna og
Barbera. Þýðandi: Reynir Harðarson.
19.15 ►Staupasteinn (Cheers) Banda-
rískur gamanmyndaflokkur með
Kirstie Aliey og Ted Danson í aðal-
hlutverkum. Þýðandi: Guðni Kol-
beinsson.
19.45 ►Jóladagatal Sjónvarpsins Annar
þáttur endurtekinn.
20.00 ►Fréttir og veður
20.35 ►Skuggsjá Ágúst Guðmundsson
segir frá nýjum biómyndum.
20.50 ►Tæpitungulaust Umsjón: Vilhelm
G. Kristinsson.
21.20 Vl/iyuvun ►Mæð9ur Fyrrí
n ■ I nln I nU hluti (La ciociara)
ítölsk sjónvarpsmynd frá árinu 1989,
byggð á skáldsögu erftir Alberto
Moravia. í myndinni segir frá mæðg-
um sem lenda í hrakningum þegar
herir bandamanna hefja sprengju-
árásir á Róm sumarið 1943. Ekkjan
@esira ákveður að yfirgefa búðina
sina í borginni og flýja með 15 ára
dóttur sína í gamla þorpið sitt uppi
i fjöllum. Þær hitta Michel, hæglátan
hugsjónamann og andfasista. Michel
verður ástfanginn af Cesiru en hann
vekur líka áður óþekktar kenndir í
bijósti Rosettu. Loksins koma banda-
menn og Þjóðveijar neyðast til að
halda undan. Mæðgurnar standa í
þeirri trú að stríðinu sé lokið og
leggja af stað til Rómar. Á leiðinni
verða þær fyrir miklu áfalli. Seinni
hluti myndarinnar verður sýndur á
föstudagskvöld. Leikstjóri: Dino Risi.
Aðalhlutverk: Sophia Loren, Sydney
Penny, Robert Loggia, Andrea Occ-
hipinti, Carla Calo og fleiri. Þýðandi:
Steinar V. Ámason.
23.00 ►Ellefufréttir.
23.10 ►íþróttaauki Sýnt verður frá bikar-
keppni í sundi, Evrópuleikjum í
knattspyrnu og öðrum íþróttavið-
burðum síðustu daga.
STOÐ TVO
16.45 ►Nágrannar Ástralskur framhalds-
myndaflokkur um góða granna.
17.30 ►!’ draumalandi Ævintýraleg
teiknimynd um hóp af krökkum sem
fara á flakk í draumum sínum.
17.50 ►Hvutti og kisi Teiknimyndasaga
fyrir yngstu áhorfenduma.
18.00 ►Ávaxtafólkið Teiknimyndaflokkur
um ævintýri ávaxtafólksins.
.18.30 ►Falin myndavél (Candid Camera)
Endurtekinn þáttur frá síðastliðnu
laugardagskvöldi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður
20.15 ►Eiríkur Viðtalsþáttur Eiríks Jóns-
sonar í beinni útsendingu.
20.35 ►íslandsmeistarakeppnin í sam-
kvæmisdönsum Laugardaginn 7.
nóvember fór fram íslandsmeistara-
keppnin í samkvæmisdönsum í Ás-
garði í Garðabæ þar sem keppt var
í samkvæmis- og suður-amerískum
dönsum. Stöð 2 var á staðnum og
sýnir frá keppninni í tveimur þáttum.
Seinni þátturinn er á dagskrá næst-
komandi sunnudagskvöld. Umsjón:
Agnes Johansen. Stjórn upptöku:
María Maríusdóttir.
21.25 ►Ógnir um óttubil (Midnight Call-
er) Lokaþáttur bandaríska spennu-
myndaflokksins um útvarpsmanninn
Jack Killian. (23:23)
22.20 ►Sameinuð gegn þjáningu í þess-
um þætti er fjaliað um átak Rauða
kross íslands, Sameinuð gegn þján-
ingu, og leikin lög af hljómplötunni
Minningum 2, en allur hagnaður af
sölu hennar rennur til átaksins. Bryn-
dís Schram er kynnir þáttarins. Rætt
verður við sendifulltrúaj sýndar
myndir frá átakasvæðum og fjallað
um þá samtryggingu sem felst í starfi
alþjóðhreyfmgar Rauða krossins og
Rauða hálfmánans.
22.50 ►Tíska Tíska og tískustraumar eru
viðfangsefni þessa þáttar.
23.15 IflfllíliYIID ►Ástin er ekkert
HllnlTI II1U grín (Funny About
Love) Hjónakornin Duffy og Meg
eiga í mestu erfíðleikum með að
koma bami undir. Þau leita allra
mögulegra leiða og reynir mjög á
hjónaband þeirra. Þetta er mann-
eskjuleg gamanmynd, með örlitlum
gálgahúmor í bland. Aðalhlutverk:
Gene Wilder, Christine Lathi og
Mary Stuart Masterson. Leikstjóri:
Leonard Nimoy. 1990. Maltin gefur
★ ’/2.
0.55 ►Dagskrárlok
Kvikmyndir - Ágúst Guðmundsson fjallar um kvikmyndir
af innsæi fagmannsins, enda reyndur kvikmyndaleikstjóri.
Kvikmyndarýnar
keppa í Skuggsjá
SJÓNVARPIÐ KL. 20.35 í Skugg-
sjá fjallar Ágúst Guðmundsson leik-
stjóri um kvikmyndir af kímni og
innsæi. í þættinum í kvöld verður
að venju litið á nokkrar þeirra mynda
sem nú eru sýndar í kvikmyndahús-
um borgarinnar. í síðasta þætti var
bryddað upp á þeirri nýbreytni að
hafa getraun þar sem áhugamönn-
um um kvikmyndir gafst kostur á
að sanna kunnáttu sína í fræðunum.
Sýnd voru brot úr þremur bíómynd-
um og áttu áhorfendur að bera
kennsl á þær og geta sér til um
hvað þær ættu sameiginlegt. í þætt-
inum í kvöld kemur svo í ljós hver
hinna getspöku hreppir verðlaunin,
skuggsjárbolinn og tíu frímiða í
Háskólabíó, og síðan verður brugðið
upp nýrri getraun.
Sungið fyrir átak
Rauða krossins
STÖÐ 2 KL. 22.20 Þekktir íslenskir
tónlistarmenn hafa ákveðið að
styrkja átak Rauða kross íslands,
Sameinuð gegn þjáningu, með út-
gáfu hljómplötunnar Minningar 2. í
kvöld sýnir Stöð 2 þátt þar sem Bryn-
dís Schram kynnir átakið og þá sam-
tryggingu sem felst í starfsemi al-
þjóðahreyfingar Rauða krossins og
Rauða hálfmánans um allan heim.
Auk þess sýnir hún myndbönd með
lögum af plötunni. Meðal þeirra sem
talað verður við í þættinum eru Krist-
ján Þorkelsson, sem var sendifulltrúi
Rauða krossins í Kúrdistan og írak;
Guðjón Magnússon, formaður RKI
og Þórir Guðmundsson fréttamaður,
Sem hefur tekið myndir og flutt frétt-
ir frá átakasvæðum víða um heim.
Þekktir
íslenskir
tónlistarmenn
syngja lög
Nýjustu
myndirnar
kynntar í
þættinum
Imba-
kassinn
Spaugstofan var óðum að
breytast í eitt samfellt Ára-
mótaskaup. Samt voru þeir
félagarnir Karl Ágúst Úlfsson,
Sigurður Sigurjónsson, Pálmi
Gestsson, Orn Árnason og
Randver Þorláksson ansi mis-
tækir og misfyndnir eins og
gengur. En þeir félagar náðu
þó að skapa grínfígúrur er
lifðu með þjóðinni svo sem
hann Kristján og rónana
margfrægu. Nú hafa þeir Örn,
Pálmi og Sigurður fært sig
um set uppá Stöð 2 og kalla
þáttinn Imbakassann.
„Heilsársgrín“
...við gerum ekki ráð
fyrir að byggja hann upp á
atriðum sem eru bundin við
ákveðna atburði eða tíma. En
ef veður skipast þannig í lofti
munum við auðvitað nýta okk-
ur það sem er að gerast í þjóð-
félaginu hveiju sinni. Imba-
kassinn verður m.ö.o. í anda
erlendra grínþátta eins og
Saturday Night Life, Smith
and Jones eða Benny Hill, svo
nokkir séu nefndir." Svo fór-
ust Emi Árnasyni orð um
Imbakassann í viðtali í októb-
erhefti Sjónvarpsvísis.
Undirritaður telur að hér
hafí þeir Imbakassamenn tek-
ið svolítið skakkan pól í hæð-
ina. Áhorfendur vilja sjá at-
burði líðandi stundar í spaugi-
legu ljósi. Slíkt spaug léttir
mönnum lífsstritið og er
reyndar lífsnauðsynlegur ör-
yggisventill sálarinnar í
skammdeginu. Almennir
brandarar eiga vissulega
heima inná milli en þó eru
þeir stundum ekki nógu bein-
skeyttir í Imbakassanum.
Handritsgerðin mætti vera í
höndum fleiri höfunda og
Laddi gæti tekið sér fyrir
hendur að skapa fastmótaðar
fígúrur sem er jú hans sér-
svið. Þannig yrðu persónurnar
smám saman kunningjar og
grínið áhrifameira. Það er svo
notalegt að setjast fyrir fram-
an imbann á laugardagskveldi
og hlæja að ráðamönnum
þjóðarinnar og fleiri fuglum
sem vilja ráðskast hér með
alla hluti.
Ólafur M.
Jóhannesson
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.55 Bæn.
7.00 Fréttir. Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór
Sverrisson. 7.20 —Heyrðu snöggvast
..." -Með orm í maganum” sögukorn
úr smiðju Kristínar Steinsdóttur. 7.30-
Fréttayfirtit. Veðuriregnir. Heims-
byggð Jón Ormur Halldórsson.
8.00 Fréttir. 8.10 Pólitiska hornið. 8.30
Fréttayfirtit. Úr menningarlífinu Gagn-
rýni. Menningarfréttir.
9.00 Fréttir.
9.03 Laufskálinn. Umsjón: Fínnbogi Her-
mannsson. (Frá isafirði.)
9.45 Segðu mér sögu, —Pétur prakkari",
dagbók Péturs Hackets. Andrés Sigur-
vinsson les aevintýri órabelgs (27)
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
10.10 Árdegistónar.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Fréttír.
11.03 Samfélagið í nærmynd. Umsjón:
Ásdís Emilsdóttir Petersen, Bjarni Sig-
tryggsson og Margrét Erlendsdóttir.
11.53 Dagbókin.
12.00 Fréttayfirlit á tiádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 Auðlindin. Sjávarútvegs- og við-
skiptamál.
12.57 Dánarfregnir. Auglýsingar.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins,
—Flótti til fjalla" eftir John Tarrant Þriðji
þáttur af fímm. Þýöing: Eíöur Guðna-
son. Leikstjóri: Rúrik Haraldsson. Leik-
endur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sig-
urður Skúlason, Þórhallur Sigurðsson
og Baldvin Halldórsson.
13.20 Stefnumót. Listir og menning,
heima og heiman. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir, Halldóra Friðjónsdóttir og
Sif Gunnarsdóttir.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan, „Riddarar hringstig-.
ans" eftir Einar Má Guðmundsson
Höfundur les (2)
14.30 Einn maður: og mörg, mörg tungl
Eftir: Þorstein J.
15.00 Fréttír.
15.03 l’smús. Ungir eistneskir hljóðfæra-
leikarar, annar þáttur Pauls Himma tón-
listarstjóra eistneska ríkisútvarpsins frá
Tónmenntadögum Ríkisútvarpsins sl.
vetur. Kynnir: Una Margrét Jónsdóttír.
16.00 Fréttir.
16.05 Skíma. Fjölfræðiþáttur fyrir fólk á
öllum aldri. Umsjón: Ásgeir Eggertsson
og Steinunn Harðardóttir. Meðal efnis
i dag: Jóhanna K. Eyjólfsdóttir og Unnur
Dís Skaptadóttir litast um af sjónarhóli
mannfræðinnar og fulltrúar ýmissa
deilda Háskólans kynna skólann. 16.30
Veöurfregnir. 16.45 Fréttir. Frá frétta-
stotu barnanna. 16.50 „Heyrðu
snöggvast ...".
17.00 Fréttir.
17.03 Að utan.
17.08 Sólstafir. Tónlist á síðdegi. Umsjón:
Gunnhild Öyahals.
18.00 Fréttir,
18.03 Bókaþel. Lesið úr nýjum og nýút-
komnum bókum.
18.30 Kviksjá. Meðal efnis er listagagn-
rýni úr Morgunþætti. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir og Sif Gunnarsdóttir.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðurfregnir.
19.36 „Flótti til fjalla" eftir John Tarrant.
Þriðji þáttur af fimm. Endurflutt hádeg-
isleikrít. .
19.50 Fjðlmiðlaspjall. Ásgeirs Friðgeirs-
sonar, endurflutt úr Morgunþætti á
mánudag.
20.00 fslertsk tónlist.
— Bergmál Orfeusar og Fjórar Bagatellur
eftir John Speight, Páll Eyjólfsson leikur
á gítar.
— Atmos II éftir Magnús Blöndal Jóhanns-
son, höfundur leikur á syntheziser.
20.30 At sjónarhóli mannfræðinnar. Um-
sjón: Jóhanna K. Eyjólfsdóttir og Unnur
Dís Skaptadóttir.
21.00 Tónlist.
22.00 Fréttir.
22.07 Pólitíska hornið.
22.15 Hér og nú.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veöurfregnir.
22.35 Málþing á miðvikudegí. Egils saga
Frá málþingi Félags íslenskra fræða um
Egilssögu, meðal framsögumanna á
þinginu voru Bjarni Einarsson, Torfi
Túliníus, Baldur Hafstað, Bergljót Krist-
jánsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir.
23.20 Andrarímur Guðmundur Andri
Thorsson snýr plötum.
24.00 Fréttir.
0.10 Sólstafir.
1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum
til morguns.
RÁS 2 FM 90,1/94,9
7.03 Kristín Ólafsdóttir og Kristján Þor-
valdsson. 9.03 Eva Ásrún Albertsdóttir og
Guðrún Gunnarsdóttir. 12.45 Gestur Einar
JónaSson. 14.00 Snorri Sturluson. 16.03
Starfsmenn dægurmálaútvarpsins og
fréttaritarar heima og erlendis rekja stór
og smá mál dagsins. 18.03 Þjóðarsálin.
Sigurður G. Tómasson og Leifur Hauks-
son. 19.30 Ekki fréttir. Haukur Hauksson.
19.32 Blús. Pétur Tyrfingsson. 21.00 Vin-
sældalisti götunnar. 22.10 Gyða Dröfn
Tryggvadóttir og Margrét Blöndal. 0.10
Gyða Dröfn Tryggvadóttir. 1.00 Næturút-
varp til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og
24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Naeturlög. 1.30 Veðurfregnir. 1.35
Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi þriðjudags.
2.00 Fréttii 2.04 Kristján Sigurjónsson.
4.00 Næturlög. 4.30 Veðurfregnir. Nætur-
lögin halda áfram. 6.00 Fréttir. 5.05 Gyða
Dröfn Tryggvadóttir og Margrét Blöndal.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöng-
um. 6.01 Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARPÁ
RÁS 2
8.10-8.30 og 18.03-19.00 Útvarp Norð-
urland. 18.35-19.00 Útvarp Austurland.
18.35-19.00Svæðisútvarp Vestfjarða.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Gylfi Þór Þorsteinsson. 9.05 Katrín
Snæhólm Baldursdóttir. 10.00 Böðvar
Bergsson. Radius kl. 11.30. 13.05 Jón
Atli Jónasson. Radius kl. 14.30.16.00 Sig-
mar Guðmundsson. Radíus kl. 18.00.
18.30 Tónlist. 20.00 Magnús Orri. 22.00
Útvarp Lúxemborg.
Fréttir kl. 9,11,13,15 og 17.50, á ensku
kl. 8, og 19.
BYLGJAN FM 98,9
6.30 ÞorgeirÁstvaldsson og Eirikur Hjálm-
arsson. 9.05 Sigurður Hlöðversson og
Erla Friðgeirsdóttir. 13.10 Ágúst Héðins-
son. 16.05 Hallgrímur Thorsteinsson,
Steingrímur Ólafsson. 18.30 Gullmolar.
19.00 Flóamarkaður Bylgjunnar.' 20.00
Kristófer Helgason. 23.00 Kvöldsögur. Ei-
ríkur Jónsson. 24.00 Pétur Valgeirsson.
3.00 Næturvaktin.
Fréttir á heila tímanum fré kl. 7 til kl.
18 og kl. 19.30, fréttayfirlit kl. 7.30 og
8.30, íþróttafréttir kl. 13.00.
BROSIÐ FM 96,7
7.00 Böðvar Jónsson og Hallaór Levi
Björnsson. 9.00 Grétar Miller. 12.00 Há-
degistónlist. Fréttir kl. 13.00. 13.05 Krist-
ján Jóhannsson. 16.00 Ragnar örn Péturs-
son og Hafliði Kristjánsson. Fréttayfirlit og
íþróttafréttir kl. 16.30. 18.00 Lára Yngva-
dóttir. 19.00 Rúnar Róbertsson. 22.00
Plötusafnið. Jenny Johanssen NFS ræður
ríkjum á milli 22 og 23.1.00 Næturtónlist.
FM 957 FM 96,7
7.00 Siguröur Salvarsson.9.05 Jóhann Jó-
hannsson. 12.10 Valdís Gunnarsdóttir.
15.00 ívar Guðmundsson og Steinar Vikt-
orsson, Umferðarútvarp kl. 17.10, 18.05
Ragnar Bjamason. 19.00 Ragnar Már Vil-
hjálmsson. 22.00 Halldór Backman. 1.00
Bandaríski vinsældalistinn endurtekinn.
5.00 Ókynnt tónlist.
Fréttir á heila tímanum frá ki. 8 til 18.
ÍSAFJÖRÐUR FM 97,9
7.00 Samtengt Bylgjunni. 16.30 Isafjörður
síödegis. Björgvin Árnar og Gunnar Atli.
19.30 Fréttir. 20.10 Gunnar Þór Helgason.
23.00 Kvöldsögur- Eiríkur Jónsson. 24.00
Sigþór Sigurösson 1.00 Næturdagskrá.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri FMtoi,8
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson. Fréttir
frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöðvar 2 kl.
18.00. Timi tækifæranna kl. 18.30.
SÓLIN FM 100,6
8.30 Kristján Jónsson. 10.00 Birgir
Tryggvason. 13.00 Gunnar Gunnarsson.
16.00 Steinn Kári Ragnarsson. 19.00 Vign-
ir. 21.00 Jass og blús. Guðni Már Henn-
ingsson og Hlynur Guðjónsson. 23.00
Stefán Arngrimsson.
STJARNAN FM 102,2
7.00 Ragnar Schram. 9.00 Sæunn Þóris-
dóttir. Barnasagan Kátir krakkar eftir Þóri
S. Guðbergsson kl. 10.00. Lesari Guðrún
Magnúsdóttir. 13.00 Ásgeir Páll. Barnasa-
gan endurtekin kl. 17.15. 17.30 Erlingur
Níelsson. 19.00 Islenskir tónar. 20.00 Eva
Sigþórsdóttir. 22.00 Guðmundur Jónsson.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 7.15, 9.30,13.30, 23.50.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 12, 17, 19.30.