Morgunblaðið - 02.12.1992, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1992
RAÐAUGIYSINGAR
Noregur - atvinna
Norskt fyrirtæki óskar að ráða mann í still-
ansauppsetningar. Aðeins kemur til greina
ábyggilegur fjölskyldumaður. Uppmælinga-
vinna. Laun 200-240 þús. N.kr. árslaun.
Allar nánari upplýsingar í síma 625405 eftir
kl. 17.00.
íslenski dansflokkurinn
Hæfnispróf
Vegna forfalla er laust starf kvendansara við
íslenska dansflokkinn frá 1. janúar nk. um
óákveðinn tíma.
Hæfnispróf verður föstudaginn 4. desember
kl. 19.00 á Engjateigi 1.
Dansarar komi með táskó.
Vélstjóri óskast
Óskum eftir að ráða vélstjóra með full rétt-
indi á frystitogarann Stakfell ÞH-360.
Búseta skilyrði.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. desember merkt: „S - 14068".
Hraðfrystistöð Þórshafnarhf.
Söluturn
Til sölu er einn af glæsilegri söluturnum í
Reykjavík, miðsvæðis. Vaxandi velta. Nætur-
sala. Lottó, RKÍ-kassar. Tilvalið fyrir tvær
samhentar fjölskyldur að skapa sér sjálf-
stæðan atvinnurekstur.
Upplýsingar gefur Björn í síma 680666. Verð
12-15 millj. (eftir greiðslum).
ÞIMilIIOLT
Suöurlandsbraut 4A, fJ sími 680666
Til sölu
234 fm. og 160 fm. á jarðhæð, hægt að
tengja salina saman, einnig möguleiki á að
skipta í smærri einingar. í húsinu eru hús-
gagnaversiun, blómaverslun, og gistiheimili.
Húsnæðið er til sýnis í Suðurhlíð 35, Reykja-
vík.
Upplýsingar í síma 16541.
Vilborgarsjóður starfs-
mannafélagsins Sóknar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði hefst
7. desember og stendur til 18. desember.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins eða
hafi samband í síma 681150 eða 681876.
Stjórn starfsmannafélagsins Sóknar.
Viðvörun
Nú í nóvember hafa verið seldar brauðristar
af tegundinni TA51 frá Black & Decker, sem
vegna mistaka frá verksmiðju voru með
ójarðtengdri kló, sem getur skapað hættu.
Kaupendur að ofangreindum brauðristum
eru beðnir að hafa samband við útsölustaði
eða Borgarljós hf.
« BUCKSDECKER
■BBBM
Ármúli 15, sími 812160.
Suðurlandsbraut
Til leigu eitt gott skrifstofuherbergi með að-
gangi að móttöku í húsinu Suðurlandsbraut
12, 3. hæð, hjá lögfræðingi og fasteigna-
sölu. Aðgangur að faxtæki, Ijósritunarvél o.fl.
Laust 1. janúar nk.
Upplýsingar í síma 31800.
SJÁLFSTJEÐISf=LOKKURINN
F H I. A (', S S T A R F
Aðalfundur Landsmála-
félagsins Varðar 1992
Boðað er til aðalfundar Landsmálafélagsins
Varðar fimmtudaginn 10. desember nk. kl.
20.30. Fundarstaður er í Valhöll v/Háaleitis-
braut.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Guðmundur Magnússon, þjóðminja-
vörður, fiytur ræðu kvöldsins.
3. Umræður og kaffiveitingar.
Stjórn Landsmálafélagsins Varðar.
IIFIMOAIIUK
Niðurskurður
fjárlaga
l dag, miðvikudaginn 2. desember, kl. 17.00
heldur Heimdallur fund með Hreini Lofts-
syni. Ætlunin er að fara yfir fjárlagafrum-
varpið með það að markmiði að skera burt
ríkissjóðshallann. Tillögur Heimdallar verða
svo sendar Friðriki Sóphussyni, fjármála-
ráðherra.
Þeir sem hafa skráð sig í hópinn eru vin-
samlega beðnir að mæta stundvíslega.
Allir áhugasamir velkomnir.
Niðurskuróarhópurinn.
Keflavík/Suðurnes
Miðvikudaginn 2. desember mun Sjálfstæðisfélag Keflavíkur standa
fyrir opnum fundi um EES-samninginn. Fundurinn hefst kl. 20.00 á
Flughóteli í Keflavík.
Fundarsetning: Magnús Æ. Magnússon, formaður sjálfstæðisfélags
Keflavíkur.
Frummælendur: Halldór Árnason, aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra.
Ingjaldur Hannibalsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Árni Ragnar Árnason, alþingismaður.
Fundarstjóri: Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
□ HELGAFELL 5992120219
VI 2
I.O.O.F. 7 = 1741228V2 =
□ GLITNIR 5992120219 I 1
Frl. Atkv.
I.O.O.F. 9 = 1741228'h =
REGLA MUSTERISRIDDARA
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Námskeiðið „Kristið Iff og vitnis-
burður". Kennarar: Mike Fitzger-
ald og Hafliði Kristinsson.
(ffli SAMBAND (SLENZKRA
igPj KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60.
Eþfópíukvöld í Kristniboðssaln-
um kl. 19.00. Ræðumaður verð-
ur Guðlaugur Gunnarsson.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ <ÍMI 682533
Afmælismyndakvöld
„Töfraríslands“og
„Myndir úr starfi félags-
ins“ miðvikudaginn 2. des-
ember kl. 20.30
í Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Efni: Björn Rúriksson kynnir og
sýnir myndir úr nýútkominni bók
sinni „Töfrar íslands". Björn
kemur sífellt á óvart með mynd-
um sínum af landslagi og nátt-
úrufegurð þessa lands. Eftir
kaffihlé kynnir Grétar Eiríksson
starf félagsins fyrr og nú í máli
og myndum. Forvitnilegt efni
fyrir alla, sem vilja kynnast starfi
Ferðafélagsins.
Fræðist um landið ykkar á
myndakvöldi Ferðafélagsins, all-
ir velkomnir, félagar og aðrir.
Aðgangur kr. 500,- (kaffi og
meðlæti innifalið).
Ferðafélag Islands.
Andrés Péturs-
son - Kveðjuorð
Andrés Pétursson, vinur minn
0g bróðir æskuvinkonu minnar,
var fyrirtaksmaður og það vissum
við öll, en ekki var hann hégómleg-
ur eða sóttist eftir skjalli. Hann
var sá ágætismaður, sem mátti
mikið af læra. Ævistarf hans var
við útgerð, bæði hér syðra og fyr-
ir norðan, og því fjölfróður um
það, sem að útgerð laut. Trúi ég,
að vinnuveitendur hans hafí sakn-
að trúmennskunnar er hann fór.
í einkalífi var hann gæfumaður.
Hann kvæntist indælli konu frá
Hafnarfirði, Svanhvíti Reynisdótt-
ur, og eignuðust þau fímm mann-
vænleg böm, þrjá sonu, Magnús,
Pétur og Sverri, og dæturnar
Margréti og Ingibjörgu. Alls stað-
ar tókst þeim hjónum að gera
heimilin prýðileg, og gera móttök-
urnar að sama skapi þannig, að
vart mátti betur til takast. Þau
voru ákaflega gestrisin, og sam-
hent í því sem öðm. Andrés var
skarpgreindur og skemmtilegur,
dálítið stríðinn án þess að vera
meinlegur.
Hólavöllur, heimili foreldra
hans, Ingibjargar Guðmundsdótt-
ur og Péturs Magnússonar, ráð-
herra og bankastjóra, var stórt
heimili; þár voru átta börn, yfír-
leitt fólk utan af landi sem dvald-
ist þar í ýmsum erindagerðum til
lengri eða skemmri tíma auk mik-
ils gestagangs, svo og aðstoðar-
fólk. Allt þetta að ógleymdum fé-
lögum hvers bamanna um sig, en
þeir gátu stundum orðið fleiri en
einn. Aldrei var amast við neinum,
jafnvel þótt húsfreyja væri ekki
alltaf heilsuhraust. Menn gleymdu
sér síðan við leik og störf og gættu
þá ekki alltaf að raddstyrknum.
Allar endurminningarnar frá
þessum dögum og áfram eru fjár-
sjóður sem þetta menningarheim-
ili lét okkur vinum sínum í té, og
setti mark sitt á alla, sem þar ól-
ust upp. Glaðværð var mikil, og
dillandi hlátur húsfreyjunnar var
svo fallegur. Oft sagði hún okkur
ævintýr, hún sagði svo vel frá.
Þarna var skemmtilegasta heimili,
sem hægt var að hugsa sér, og
undantekningarlítið séð í gegnum
fingur við ungviðið, sem kom svo
ótal margt í hug.
Ég tilheyrði yngstu börnunum,
og Andrés því lítið eitt eldri, og
hann varði okkur með ráðum og
dáð, ef með þurfti. Hann lét aldrei
þessi fáu ár sem munaði, skipta
neinu. Andrés var skapfastur,
þéttvaxinn, göfuglyndur og góður,
án þess að vera væminn. Hann
talaði umbúðalaust um það sem
honum féll miður en var laus við
allt dægurþras.
Svanhvít og Andrés settu hag
og heill barna sinna 0g heimilis
ofar öllu; sumarhúsið sitt í fögru
umhverfi fóru þau mikið í. Þetta
var hlé og upplyfting frá daglegu
amstri. Þama sem annars staðar
var hægt að hyggja að velferð
hópsins síns og hefur vel til tekist
í vænum höndum. Stundum er
allt svo sjálfsagt... þangað til það
er ekkert sjálfsagt lengur.
Andrés fæddist 1. júlí 1924.
Hann veiktist hastarlega 22. nóv-
ember og nú mátti ekkert til bjarg-
ar verða.
Ég minnist þessa hlýja og glað-
lynda vinar míns með söknuði og
þakklæti, en ég þakka líka Svan-
hvíti, sem ég nú votta samhygð
mína, hana bið ég einnig börnin
að meðtaka.
M. Thors.