Morgunblaðið - 02.12.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1992
35
uppi á hæð og eru þar af leiðandi
einnig að undirstrika og ýkja lands-
lagið. En að ætla að fara áð byggja
tvo turna ekki bara framan við
hraunbrekkuna okkar, heldur í leið-
inni að draga athyglina frá kirkju-
turninum og skapa sjálfum miðbæ
Hafnarfjarðar andlit tveggja ósam-
stæðra turna og gera Thorsplanið
að skuggabletti lungað úr deginum
stóran hluta árs, það er ekki hægt
að sætta sig við. Látum turnaslysið
í Suðurmjódd, þar sem turnarnir
drepa brekkuna fyrir aftan, verða
okkur víti til varnaðar.
Þeir sem staðið hafa að skipulag-
inu segja gagnrýni á það koma of
seint. Eg starfa við hönnun og í
mínum huga eiga breytingar ein-
mitt að koma á skipulags- og hönn-
unartímanum. Það er aldrei hægt
að segja að verkkaupi, sem í þessu
tilfelli er fyrst og fremst Hafnfirð-
ingar, komi of seint með breytingar
á hönnun. Það verður of seint þeg-
ar framkvæmdum er lokið. Verk-
kaupinn verður að vera ánægður
með verk sem á að þjóna honum.
Uppbygging í miðbænum er orð-
in brýn og stofnað hefur verið hluta-
félag um uppbyggingu hans. En í
gleði sinni yfir að dugmiklir aðilar
eru tilbúnir að hefjast handa með
uppbyggingu mega skipulagsyfir-
völd bæjarins ekki tapa áttum hvað
varðar heildaryfirbragð byggðar og
tillitssemi við umhverfið í skipu-
lagningu svæðisins.
Það er ósk mín að skipulagið
verði ekki gert að pólitísku þrætu-
epli, þarna er á ferðinni eitt stærsta
fagurfræðilega mál sem Hafnfirð-
ingar hafa horfst í augu við á und-
anförnum árum. Framkvæmdaaðil-
ar, sem eiga hrós skilið fyrir kjark
í þessu máli, gerðu farsælast að
ríða á vaðið og leggja fyrir skipu-
lagsyfirvöld breytingartillögu með
meiri tilfinningu fyrir umhverfinu.
Þannig fengjust „allir“ bæjarbúar
til að styðja við bakið á fagmanaleg-
um framkvæmdum.
Höfundur er arkitekt.
an er í raun orðin þrifaleg matvæla-
iðja sem krefst vandaðra vinnu-
bragða og vaxandi sérhæfingar.
Neikvætt viðhorf til fiskvinnslu-
starfa dregur verulega úr því að
ungt fólk horfi til greinarinnar við
náms- og starfsval. Ég tel einnig
að þessi neikvæðni komi fram í
menntastefnu þjóðarinnar, þar sem
sá andi hefur verið ríkjandi að það
sé fyrir neðan virðingu mennta-
stofnana að fást við þorsk og ýsu,
nema þá sem efnahagstölur eða á
latínu.
Þessu þarf að breyta með nánara
samstarfi skóla og atvinnulífs.
Höfundur er skólameistari
Verkmenntaskóla Austurlands.
Lítil flugvél
var í vanda
Viðbúnaður var á Reykjavík-
urflugvelli síðdegis á mánudag
þegar ekki þótti ljóst hvort lítil
farþegavél, TF ELD, hefði
nægjanlegt eldsneyti til að lenda
á vellinum.
Flugstjóri vélarinnar hafði ætlað
að lenda í Kulusuk en varð að snúa
við vegna veðurs. Hann tilkynnti í
fyrstu að ekki væri nægilegt elds-
neyti á vélinni til að lenda í Reykja-
vík og var þá óskað eftir nauðsyn-
legum viðbúnaði frá varnarlið og
flugmálastjóm. Á honum þurfti þó
ekki að halda en þyrla á æfinga-
flugi fylgdi vélinni inn til Reykjavík-
ur.
3M
Sandpappír
Nýir eigendur að Sængur-
fataversluninni Verinu
NÝLEGA hafa orðið eigenda-
skipti á Sængurfataversluninni
Verinu, Njálsgötu 86. Nýju eig-
endurnir eru Guðrún Sigur-
steinsdóttir og Erna Kristins-
dóttir Kolbeins, en hún hefur
starfað við fyrirtækið í nær 30
ár.
Sængurfataverslunin Verið hefur
verið starfrækt í 32 ár, ásamt
saumastofu, sem framleiðir hvers-
konar rúmfatnað úr viðurkenndum
efnum t.d. frá Fussengger og Dier-
ing, einnig bróderuð vöggusett og
barnasett í mörgum gerðum, dúxlök
og teygjulök. Þar er einnig saumað-
ar vöggusængur, sængur og koddar
í öllum stærðum, rúmföt merkt og
handklæði.
Hinir nýju eigendur munu kapp-
kosta við að veita alla þá þjónustu
sem fyrirtækið héfur boðið.
Verslunin er opin virka daga frá
kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14
nema desemberopnun verður á
laugardögum eins og hjá öðrum
verslunum.
(Úr fréttatilkynningu.)
Nýju eigendurnir, f.v. Erna
Kristinsdóttir Kolbeins, Grima
Sveinbjörnsdóttir, afgreiðslu-
maður og Guðrún Sigursteins-
dóttir.
AEG þvottavél Lavamat 508 W
Rétt verð 76.571 kf.
Tilboð 62.490 kr. stgr.
AEG uppþvottavél
Favorit 775 U-w
Rétt verð 75.806 kr.
Tilboð61.390 kr.stgr.
AEG ryksuga Vampyr 821
Rétt verð 16.239 kr.
Tiiboð 11.490 kr. stgr.
Gerðu heimilisstörfin auðveld með AEG!
Tilboðið gildirtil 31. desember 1992. Umboðsmenn um allt land.
Umboðsmenn Reykjavík og nágrenni
oðsmenn Reykjav
t og búið, Reyícjavik
vestfiröir:
Rafbúð Jónasar Þór, Patreksfirði
BjarnabúÖ, Tálknafiröi
Edinborg, Blldudal
Verslun Gunnars Sigurössonar, Þingeyri
Einar Guöfinnsson, Bolungarvík
Straumur, Isafirði
Austurland:
Sveinn GuÖmundsson, Egilsstöðum
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi
Stál, SeyöisfiröT
Verslunin Vfk, Neskaupstaö
Hjalti Sigurðsson, Eskifiröi
Rafnet, Reyðarfiröi
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi
KASK, Höfn
ngbraut
BYKO, Kópavog
BYKO. Hafnarfu
BYKO, Hafnarfiröi
Gos, Reykjavlk
Hagkaup, Reykjavik
Brúnás innréttingar, Reykjavlk
Fit, Hafnarfiröi
Þorsteinn Bergmann, Reykjavlk
H.G. Guöjónsson, Reykjavlk
Rafbúöin, Kópavogi
Norðurland:
Kf. Steingrlmsfjaröar, Hólmavlk
Kf. V-Hún., Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Rafsjá, Sauöáritróki
KEA, Akureyri
KEA, Dalvík
Bókabúö Rannveigar, Laugum
Sel, Mývatnssveit
Kf. Þingeyinga, Húsavík
Urö. Rautarhöfn
Suðurlar.d:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Mosfell, Hellu
Arvirkinn, Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Brimnes, Vestmannaeyjum
Vesturland:
Málningarþiónustan, Akranesi
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Guöni Hallgrlmsson, Grundarfiröi
Ásubúö, Buðardal
Reykjanes:
Stapafell, Keflavfk
Rafborg, Grindavik
©
ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820