Morgunblaðið - 06.03.1999, Page 12
12 LAUGARDAGUR 6. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fiskveiðistefna
Frjálslynda flokksins
Búnaðarlagasamningur undirritaður
Morgunblaðið/Keli
FRÁ undirritun samningsins. F.h.: Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra, Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra og Hákon Sig-
urgrfmsson, deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
Svipaðar fjár-
hæðir og á síð-
ustu árum
HÉR fer á eftir í heild stefnuskrá
Frjálslynda flokksins í fiskveiðimál-
um, sem kynnt var í gær:
Samkvæmt niðurstöðum landsþings
Frjálslynda flokksins á ný stefna um
fiskveiðistjórn að miða að eftirtöld-
um höfuðmarkmiðum:
• Jafn frumburðarréttur allra
þegna til fiskveiða.
• Hámörkun afraksturs af auðlind-
unum í hafinu í þágu allrar þjóðar-
innar.
• Mai-kviss þekkingarleit með
rannsóknum á hafinu, lífríki þess,
stofnvistfræði tegunda og áhrifum
umhverfisþátta.
• Fyllsta gát í nýtingu auðlindanna
í hafinu, með nýjustu og traustustu
þekkingu hvers tíma að leiðarljósi.
• Allt sjávarfang, sem veitt er á
skip, verði flutt í land.
Stefna Frjálslynda flokksins felur
það í sér, að eytt er höfuðgöllum
gildandi kvótaúthlutunar. Horfið er
frá ríkisvemduðu forréttindakerfi til
markaðskerfis með heilbrigða sam-
keppni, atvinnufrelsi og jafnræði
þegnanna að leiðarljósi. Með slíkri
stefnu verður réttur sjávarbyggð-
anna til lífsbjaj'gar með nýtingu
aðliggjandi fiskimiða tryggður. Það
þarf að eyða:
• mismunun hinna stóru og smáu í
útgerð,
• mismunun fiskvinnslu með og án
útgerðar,
• lokun útgerðarinnar fyrir nýlið-
un,
• útfalli fjármagns úr greininni og
braski, sem því fylgir og
• síðast en ekki síst brottkasti á
afla í hafi.
A grundvelli ríkjandi viðhorfa á
landsþinginu hefur miðstjóm Frjáls-
lynda flokksins ákveðið svofellda
stefnuskrá í þessum efnum fyrir
komandi kosningar til Alþingis:
• Núgildandi kvótaúthlutun verði
þegar í stað afnumin og bann lagt við
framsali aflaheimilda.
• Til undirbúnings nýrri skipan og
til reynslu, verði stundaðar frjálsar
veiðar með sóknarstýringu í a.m.k.
tvö ár, þar sem bátaflotinn hafi for-
gang að grunnslóðinni. Togurum
verði beitt á mið utan grannslóðar,
en þó leyfðar veiðai- á hefðbundnum
miðum þeirra. Hámarksþorskafli
slíkt fiskveiðiár verið 400.000 tonn
og veiðar með handfæri og línu einar
heimilar eftir að því marki er náð.
Þyki sóknarstýring takast vel verði
heimilt að framlengja þá skipan
mála, enda verði sóknarleiga greidd,
sem markaðir sjái um innheimtu á.
Upphæð sóknarleigu verði ákveðin
hæfileg með tilliti til afkomu útgerð-
ar og sé bundin vísitölu afurðaverðs
til hækkunar eða lækkunar.
• A rejmslutímanum verði skipuð
óháð rannsóknarnefnd sérfróðra
manna, er endurmeti allar líffræði-
legar forsendur nýtingar fiskistofn-
anna við landið og skili áliti sínu í
skýrslu til Alþingis innan eins árs.
Jafnframt verði undirbúin ný lög-
gjöf, er byggist á mai’kaðsvæðingu
með útboði til leigu á öllum afla-
og/eða sóknarheimildum í frjálsri
samkeppni allra þeirra, sem vilja
veiða eða verka fisk.
• Stefnt verði að ráðstöfun veiði-
heimilda á opnum tilboðsmarkaði,
þar sem leiguverðlag myndast í sam-
ræmi við það, sem rekstur útgerða
ætti auðvelt með að greiða. Slíkt
kaupþing þarf að geta ráðstafað
veiðiheimildum á markaðsverði til
byggða eftir reglum um lágmarksað-
gang einstakra sjávarbyggða að auð-
lindinni.
• Smáútvegsbændum, sem lagt
hafa í kostnað vegna kaupa á veiði-
heimildum sl. fjögur ár, verði heimil-
að að afskrifa þann kostnað með
jöfnum afskriftum á fjórum árum.
• Öll yfirstjórn umskiptanna frá
gildandi fiskveiðistjórn til hinnar
nýju, verði í höndum þriggja manna,
sem skipaðir væru af Hæstarétti.
Þeir hefðu víðtæk umboð til að ná
hinum settu markmiðum. Að því
leyti sem umboð stjórnarnefndarinn-
ar hrykkju ekki til, hefði stjórnar-
nefndin frumkvæðisskyldu til til-
lögugerðar til sjávarútvegsráðherra
eða eftir atvikum Alþingis um úr-
bætur.
• Nefndin skal einnig gera tillögur
til Alþingis um ráðstöfun leigutekna
af veiðiheimildum, eða sóknarleigu,
þar sem leigutekjum yrði fyrst og
fremst ráðstafað til hafrannsókna,
tilrauna með ný veiðarfæri og búnað
skipa, og öryggismála sjómanna.
• Ofangreind stefna er byggð á
þeirri forsendu, að bátafloti sjávar-
byggðanna nái í slíkum útboðum for-
skoti til þess að ná þeim veiðiheim-
ildum, sem hann þarf til nýtingar
heimamiða. Reynist þessi forsenda
stefnunnar ekki halda, þegar til
slíkrar markaðsvæðingar veiðiheim-
ildanna kæmi, telur Frjálslyndi
flokkurinn, að aflaheimildum eigi
þegar í stað að skipta milli veiða á
bátaflotann og veiða á togaraflotann
og láta hvorn flokk keppa á aðskild-
um mörkuðum.
• Brottkasti á fiski vill Frjálslyndi
flokkurinn eyða með því að veita sem
mest frelsi í fiskveiðum innan settra
marka, enda er slíkt fi-elsi forsenda
ábyrgrar nýtingar og þess, að áreið-
anleg gögn fáist, sem byggja má vís-
indalega ráðgjöf á. Utboð á veiði-
heimildum á fiski fari fram í stærðar-
flokkum, en jafnframt verði lág-
verðsafla landað ft-amhjá leigðum
veiðiheimildum gegn skiptingu á and-
virði aflans milli ríkisins, útgerðar og
áhafnar eftir nánari umsömdum regl-
um. Ströng viðuriög verði sett við öllu
brottkasti sjávai’afla, þar með talinn
úrgangur á vinnsluskipum.
• Að því skal stefnt, svo fljótt sem
auðið er, að allur afli verði seldur á
löggiltum fiskmörkuðum.
• Eitt af meginmarkmiðum þessar-
ar stefnu Frjálslynda flokksins er að
koma í veg fyrir hina ógnarlegu
byggðaröskun, sem núgildandi fisk-
veiðistjórn hefir leitt yfir þjóðina.
• Island sæki um aðild að Alþjóða
hvalveiðiráðinu nú þegar. Hafnar
verði hrefnuveiðar og leyfð veiði allt
að helmingi þess fjölda af dýrum
sem stofnmælingar sýna að óhætt sé
að yeiða úr stofninum.
• Áherzla verði lögð á að ná samn-
ingum um fiskveiðar og nýtingu
fiskistofna við þjóðh’ Norður-Atl-
antshafsins. Sérstök áherzla verði
lögð á lausn ágreiningsmála við
Norðmenn, án þess að í neinu verði
sveigt á bakborða fyrir yfirgangs-
stefnu þeirra.
• Sérstök nefnd sérfróðra manna
verði sett á laggir til að gera tillögur
um umgengnisreglur við hafið. Á það
sérstaklega við um mengunai-varnir
hverskonar og einnig rannsóknir og
tillögugerð um áhrif veiðiaðferða á
hafsbotninn og lífríki hans.
SAMNINGUR á milli landbúnaðar-
ráðherra og fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs og Bændasamtak-
anna um verkefni samkvæmt bún-
aðarlögum og framlög ríkisins til
þeirra var undirritaður í gær á Bún-
aðarþingi. Ríkissjóður mun verja
424-474 milljónum króna á ári
næstu fimm ár til verkefna á sviði
ráðgjafarþjónustu, umbótaverkefna
á bújörðum, verkefna á sviði búfjár-
kynbóta og til Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins.
Þetta eru svipaðar fjárhæðir og
veittar hafa verið til þessara verk-
efnaflokka á fjárlögum á síðustu ár-
um. Munurinn er sá að nú hefur
verið gerður samningur um fram-
lögin og skilgreint til hvaða verk-
efna þau eigi að renna. Breytt er
áherslum varðandi stuðning við
verkefni og haft að leiðarljósi að
styðja framsækin verkefni. Samn-
ingurinn byggist á ákvæðum búnað-
arlaga sem samþykkt voru frá Al-
þingi á síðasta ári. Markmið þeii’ra
er að stuðla að framförum í ís-
lenskri búvöruframleiðslu og auka
samkeppnishæfni íslensks landbún-
aðar.
Guðmundur Bjamason landbún-
aðarráðherra lýsti við undirritun
samningsins ánægju sinni með
hann. Hann sagði að í raun væri
fjárveiting til þessara verkefna 474
milljónir króna á ári allan samn-
ingstímann. „Hluti af þessu gengur
til þess að greiða eldri jarðræktar-
framlög. Samningur samkvæmt
þessum lögum er í raun trygging
fyrir því að þessi stuðningur standi
öruggari en verið hefur samkvæmt
lagaákvæðum sem gilt hafa hingað
til,“ sagði Guðmundur.
Fáðu senda
nfu kjúklingabita
franskar, sósu, salat og
21. kók 2300 kr.
Taktu með...
16" 990 kr. með 2 áleggstegundtim og 2 L kók
Fáðu senda...
16" 1.290 kr. með 2 áleggstegundum og 21. kók
. -. V
Fáðu senda...
4 hamborgara, franskar og 2 I. kók 1.490 kr.
Opið virka
daga kl.
11.00-24.00
Helgar kl.
11.00-05.00
Núpalind 1,
sími 564 5777
FOCUS verður frumsýndur hjá Ford-umboðinu, Brimborg,
um helgina í nýju húsnæði við Bfldshöfða.
Ford Focus frumsýndur
BRIMBORG hf. frumsýnir Ford
Focus helgina 6.-7. mars í nýjum
húsakynnum fyrirtækisins á
Bfldshöfða 6 í Reykjavík og einnig
hjá Brimborg-Þórshamri á Akur-
eyri.
Ford Focus var kosinn bfll árs-
ins í Evrópu 1999 og hefur hlotið
fjölda verðlauna. Focus verður fá-
anlegur í þrennra dyra, fernra
dyra, fimm dyra og wagon-útgáf-
um og bæði beinskiptur og sjálf-
skiptur. Um tvær vélarstærðir
verður að ræða, 1,4 lítra vél og
1,6 lítra vél, sem báðar eru 16
ventla. Focus er vel búinn og
verður boðinn á breiðu verðbili
eða frá 1.375.000 með 1,4 lítra
vélinni og frá 1.531.000 með 1,6
Iítra vélinni.
Focus verður frumsýndur í nýj-
um 1.600 fermetra sýningarsal
Brimborgar á Bfldshöfða 6 og
verður sýningin opin frá kl. 10-16
á laugardag og frá 12-16 á
sunnudag. Nýbygging Brimborg-
ar er um 8.000 fermetrar í heild
en heildarflatarmál alls húsnæðis
fyrirtækisins verður um 10.500
fermetrar þegar allt hefur verið
tekið í notkun. Brimborg áætlar
að vera búin að taka allt húsnæð-
ið í notkun um miðjan þennan
mánuð.
Beiðni V-Landeyinga
um rannsdkn
Akvörðun
tekin í fyrsta
lagi í næstu
viku
ARNAR Jensson, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra, segir að tekin verði ákvörð-
un í fyrsta lagi í næstu viku um
hvort ástæða þyki til opinberrar
rannsóknar á störfum fyrrverandi
oddvita og löggilts endurskoðanda
hreppsins, að beiðni níu V-Landey-
inga. Fara þurfi yfir rök og gögn
V-Landeyinga, sem fylgja beiðn-
inni.
V-Landeyingarnir óska þess að
fram fari rannsókn á því, hvort
meint brot hafi átt sér stað, er varði
almenn hegningarlög, bókhaldslög,
sveitarstjórnarlög, stjórnsýslulög
og skattalög. Einnig að rannsakað
verði hvort kjörnir hreppsnefndar-
menn hafi sinnt störfum sínum sem
eftirlitsskyldir aðilar samkvæmt
sveitarstjórnarlögum.
Hreppsnefnd V-Landeyjahrepps
samþykkti á síðasta fundi sínum,
hinn 17. febrúar, að halda borgara-
fund að kröfu íbúa hreppsins. Dag-
setning hefur ekki verið ákveðin, en
búist er við að hann verði haldinn
fljótlega, að sögn Brynjólfs Bjarna-
sonar, nýkjörins oddvita.