Morgunblaðið - 04.06.1999, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Utanborðsmótorar
YAMAHA
Stærðir: 2-250 Hö
Gangvissir, öruggir
og endingargóðir
«1
lir
YAMAHA
Sími 568 1044
VIOSKIPTI
Samvinnuháskólinn sem-
ur við Manitoba-háskóla
SAMVINNUHÁSKÓLINN á
Bifröst hefur gert samstarfs-
samning við Manitoba-háskóla í
Kanada. Var samningurinn ný-
lega undirritaður í Winnipeg, að
viðstöddum fulltrúa Vestur-Is-
lendinga og Svavari Gestssyni,
aðalræðismanni íslands í Kanada.
I samningnum er kveðið á um
skipti á nemendum og kennurum
á milli skólanna. Gert er ráð fyr-
ir að allt að þrír nemendur fari
frá hvorum skóla á hverju ári til
námsvalar í samstarfsskólanum í
3-5 mánuði í senn. Nemenda-
skiptin hefjast haustið 2000 og
munu þau njóta stuðnings ís-
lenska samfélagsins í Kanada.
Þetta er fyrsti samningurinn
sem Samvinnuháskólinn gerir við
háskóla í Norður-Ameríku, en
skólinn hefur verið í samstarfi
við nokkra evrópska háskóla.
Timothy Samson forseti Ice-
land-Canada Foundation, Jónas
Guðmundsson rektor Samvinnu-
háskólans, Svavar Gestsson aðal-
ræðismaður Islands 1 Kanada,
Terrence Hogan, settur forseti
viðskiptadeildar Manitoba-há-
skóla og James Gardner varafor-
seti Manitoba-háskóla voru við
undirritun samstarfssamnings
skólanna.
ICELANDAIR
(orporate
EIÐA OG MasterCard
— sundurliðun ferðaútgjalda
— allar tryggingar vegna viðskiptaferða
■— bflaleigutrygging
—■ betri aðstaða í viðskiptaferðum
EUROPAY ísland og Flugleiðir bjóða fyrirtækjum nýtt kreditkort,
Fyrirtækjakort. Notkun kortsins hefur í för með sér aukið hagræði hjá
fyrirtækjum, sparnað og skilvirkara eftirlit með ferðaútgjöldum.
Fiandhafi kortsins nýtur betri aðstöðu í viðskiptaferðum og korthafi,
sem er íVildarklúbbi Flugleiða, fær að auki ferðapunkta samkvæmt
reglum Vildarklúbbsins.
Láttu Fyrirtækjakortið auðvelda þér að halda utan um reksturinn.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá Europay fslandi í
síma 550 1555 og hjá söluskrifstofum Flugleiða í síma 5050 100.