Morgunblaðið - 25.08.2005, Blaðsíða 37
Íslands án Þorsteins. Er hægt að
ganga inn í aðalbyggingu Háskólans
án þess að hringa sig upp á þriðju
hæð í þeirri von að dyrnar að litlu
skrifstofunni ofan við stigann – sem
var jú bara bókaskápur – séu opnar,
því ef svo var, þá var Þorsteinn þar?
Allir velkomnir. Og alltaf tók hann
manni einlæglega fagnandi og af
hlýju og umhyggjusemi: „Nei, Dag-
finnur minn!“ Hann samgladdist svo
innilega þegar vel gekk og reyndist
ómetanlega þegar gaf á.
Þorsteinn var alltaf að þakka öðr-
um. En við erum svo mörg sem eig-
um honum svo mikið að þakka. Það
er kaldhæðnislegt hversu erfitt get-
ur reynst að þakka þeim sem hafa
reynst mest og best. Orð eru ein-
hvern veginn ekki nóg. Ég á engin
orð til þess að þakka Þorsteini fyrir
að hafa opnað huga minn fyrir svo
mörgum perlum, og fyrir hlýjuna og
vinsemdina. Þorsteinn opnaði huga
og heima, sagði ég. Hann hreyfði við
fólki, kveikti í því, og smitaði af eld-
móð sínum. Vissulega má segja að líf
Þorsteins hafi verið listaverk, í þeim
skilningi að hann var einstakur, eng-
um líkur. En ef til vill er meira um
vert að hann var listamaður, og þá
ekki vegna þess hvernig hann skrif-
aði íslenskt mál, þýddi og orti, sem
hann jú gerði af listfengi, heldur fyr-
ir það að með verkum sínum hjálpaði
hann öðrum að njóta verðleika sinna.
Þorsteinn sagði að líf hvers manns
ætti að geta verið listaverk, og að ná-
kvæmlega þess vegna væri svo mik-
ils vert að sannleikurinn sem býr í
hverjum og einum fái að koma fram.
Eftir því sem verðleikar mannlegra
einstaklinga fá betur notið sín, þeim
mun meira listaverk getur líf þeirra
orðið. Þess vegna má segja að ævi-
starf Þorsteins við að opna huga og
heima hafi eflt samferðamenn hans
til þess að lifa lífinu til meiri fulln-
ustu og af meiri list. Það er hið ómet-
anlega, og ekki endilega vegna þess
að listin sé markmið í sjálfu sér,
heldur vegna hins að hún þjónar
réttlætinu.
Þegar ég sat með honum undir
það seinasta, og ljóst var hvert
stefndi, var hann samur við sig. Þar
voru ekki einungis hlýjan og um-
hyggjusemin söm, heldur einnig
fyndnin og æðruleysið. Hann ræddi
um verkefnin framundan og, eins og
ávallt, benti mér á eitthvað nýtt að
skoða. Enginn bilbugur. Aldrei.
Þannig var Þorsteinn.
Fjölskyldu Þorsteins færi ég mína
dýpstu og innilegustu samúð.
Dagfinnur Sveinbjörnsson.
Lengi mætti Þorstein lofa áður en
oflof þætti. En ég held honum hefði
leiðst sá lestur. Fjölyrt var löngum
um gáfur hans, en fegurst þeirra var
mannvitið sem birtist í viðmóti hans
og viðhorfum til meðbræðra sinna.
Vinátta hans var skilyrðislaus og
þrungin ástúð og fórnfýsi, ekkert
gladdi hann meira en að ausa af
brunni gæsku sinnar. Við minnumst
óskeikuls auga hans fyrir fegurðinni
hvar og hvernig sem hún birtist,
glettni hans og lagni við að eyða
drunga og depurð og gæða hverja
samverustund óforgengilegu inni-
haldi sem lifir með okkur til hinstu
stundar.
Sjálfum mér og ástvinum hans
óska ég einskis fremur en að gleðin
yfir hafa þekkt hann og átt, yfir-
skyggi harminn og söknuðinn.
Ég kann enga leið betri til að
heiðra minningu hans.
Far þú í friði vinur og berðu
kveðju okkar, sem enn eigum ekki
heimangengt.
Sigurður Heiðar Jónsson.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2005 37
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Ótrúlegt úrval af öðruvísi
vörum beint frá Austurlöndum.
Frábært verð. Sjón er sögu ríkari.
Vaxtalausar léttgreiðslur.
Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni,
sími 588 4545,
netfang: postulín.is
Barnavörur
BARNAKERRA TIL SÖLU
Barnakerra með lofthjólum og vel
afturleggjanlegu baki er til sölu.
Grá og svört að lit. Mjög vel með
farin. Kostar ný um 24-25 þús.
Fæst á 15 þús. Uppl í síma
551 1163/698 8101.
20% afsláttur af
trampólínum og körfuboltakörf-
um. Margar gerðir.
Barnasmiðjan, Grafarvogi.
www.barnasmidjan.is
Barnagæsla
„Amma“ í Grafarvogi. Barngóð
kona óskast til aðstoðar á heimili
í Foldunum í Grafarvogi þrisvar
í viku. Gæti orðið meira seinna
ef vel gengur. Upplýsingar í síma
864 6530.
Fatnaður
Nýkomnir mjög fallegir dömu-
skór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litur: svart.
Stærðir: 36-41.
Verð: 7.685.
Misty skór,
Laugavegi 178 - s. 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Ath. lokað á laugardögum í sumar.
Ferðalög
Nudd
Við hjá Nuddstofunni í Hamra-
borg 20A getum hjálpað þér með
verki í líkamanum. Verð 2.900 kr.
á klst. Sími 564 6969.
Umsögn viðskiptavinar:
Ég var orðinn mjög slæmur í
hægri hendi, en strax eftir 1. tím-
ann í nuddi gat ég farið að nota
hendina aftur og ég get því mælt
með Kínversku nuddstofunni í
Hamraborg 20A, Felix Eyjólfsson.
Klassískt nudd Árangursrík olíu-
og smyrslameðferð með ívafi ísl.
jurta.
Steinunn P. Hafstað
s. 692 0644, félagi í FÍHN.
Húsgögn
Vel með farið sófasett
3 sæta sófi og tveir stólar, ásamt
sófaborði með marmaraplötu.
Verð 100.000. Upplýsingar í síma
698 4880.
HÅG skrifstofustólarnir eru við-
urkenndir af sjúkraþjálfurum og
eru með 10 ára ábyrgð.
EG skrifstofuhúsgögn,
Ármúla 22, s. 533 5900
www.skrifstofa.is
Húsnæði í boði
Íbúð á Akureyri. 2ja herb. íbúð
í fjórbýli við miðbæ Akureyrar til
leigu. Getur leigst með innbúi auk
aðgengis að þvottavél og þurrk-
ara. Aðeins reyklausir og reglu-
samir koma til greina. Upplýsing-
ar í síma 461 1763.
Sumarhús
Það er ennþá sumar á Hörgs-
landi. Gisting - veiði - sumarhús
- golf - jeppaferðir í Lakagíga,
Núpstaðaskóg og fleiri staði.
Sími 487 6655, horgsland.is .
Iðnaðarmenn
Húseigendur: Varist fúskara.
Verslið við fagmenn.
Málarameistarafélagið.
Sími 568 1165.
Námskeið
Upledger höfuðb.- og spjald-
hryggjarmeðf. Kynningarnám-
skeið á Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð verður
haldið á Akureyri 4. sept. næstk.
Skráning og upplýsingar í síma
466 3090 og á www.upledger.is.
Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi
frá streitu og kvíða.
Notuð er m.a. EFT (Emotional
Freedom Techniques) og
dáleiðsla (Hypnotherapy).
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur, sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
Bættu Microsoft í ferilskrána
Vandað MCSA nám í umsjón
Microsoft netkerfa hefst 12. sept.
Einnig styttri áfangar. Hagstætt
verð. Nánar á www.raf.is og í
síma 86 321 86.
Rafiðnaðarskólinn.
Tölvur
Ódýrar tölvuviðgerðir og upp-
færslur. Get skilað samdægurs.
Uppl. í s. 821 6036.
Til sölu
Tékkneskar og slóvanskar krist-
alsljósakrónur handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
Tékknesk postulíns matar-,
kaffi-, te- og mokkasett.
Frábær gæði og mjög gott verð.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
NERO skrifstofustóll kr. 58.600
Skrifstofustólar í úrvali.
EG Skrifstofuhúsgögn,
Ármúla 22, s: 533 5900
www.skrifstofa.is
Fyrirtæki
Til sölu þjónustufyrirtæki. Til
sölu gott fyrirtæki í skyndibitum
o.fl. Gott verð og skilmálar. Nán-
ari upplýsingar á Fyrirtækjasöl-
uni, Suðurveri, sími 581 2040,
Reynir.
Radíó Reykjavík til sölu. Út-
varpsstöðin ásamt öllum búnaði
og leiguhúsnæði í Rvík. Miklir
möguleikar í sölu auglýsinga og
þáttagerðar. Selst að hálfu eða
öllu leyti. S. 846 1948/517 8600.
Laugarás í Biskupstungum
Tvær garðyrkjustöðvar til sölu á
þessum vinsæla og gróðursæla
stað. Tvö einbýlishús ,íbúð og
margt fleira. Uppl. í síma 8934003
og á www.vortex.is/mask/
laugaras/
Bókhald
Bókhald. Tek að mér færslu bók-
halds og frágangs til endurskoð-
anda. 25 ára reynsla af bókhalds-
störfum. Sveinbjörn, s. 587 5210,
898 5434, svbjarna@simnet.is.
Bókhald
Getum bætt við okkur verkefnum.
Renta ehf. bókhaldsþjónusta, sími
586 8125 renta@renta.is.
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir, viðgerðir, töfluskipti,
endurnýjun á raflögnum.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025 • lögg. rafverktaki
Innrömmun
Innrömmun - Gallerí Míró Málverk
og listaverkaeftirprentanir. Speglar
í úrvali, einnig smíðaðir eftir máli.
Alhliða innrömmun. Gott úrval af
rammaefni. Vönduð þjónusta, byggð
á reynslu og góðum tækjakosti.
Innrömmun Míró, Framtíðarhús-
inu, Faxafeni 10, s. 581 4370,
www.miro.is, miro@miro.is
Ýmislegt
Kínaskór
Litir: Rauðir, svartir, hvítir, bleikir.
turkis, appelsínugulir.
Stærðir 27-41. Verð 1 par kr. 1.290
og 2 pör kr. 2.000.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Haldgóður og fallegur
brjóstahaldari í CD sálum
kr. 1.995, buxur í stíl kr. 995.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Ath. lokað laugardaga í sumar
Blómaskórnir vinsælu komnir
Barna- og fullorðinsstærðir.
Verð aðeins kr. 990.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Vélar & tæki
Stór byggingakrani. Til sölu
þessi byggingakrani. Er staðsett-
ur á Akranesi. Verð 2,5 millj. Sími
846 1948.
Bátar
Bátaland, allt fyrir báta.
Utanborðsmótorar, bátahlutir,
dælur, öryggisbúnaður, bátar,
þurrkubúnaður og margt fleira.
Bátaland, Óseyrarbraut 2,
Hafnarfirði, S. 565 2680,
www.bataland.is
Bílar
Mjög lítið ekin Astra 1600 16V,
svartur, árgerð 12/1999. Ek. að-
eins 63 þ. Er á 15" álfelgum. Þjón-
ustubók. Einn eigandi. Nýskoðað-
ur. Afar snyrtilegur bíll. Kr. 795 þ.,
engin skipti! Sími 856 7455.
Honda Civic árg. 1998, ekinn að-
eins 59 þús. km, spoiler,
geislaspilari, gullfallegur bíll.
Upplýsingar í síma 894 5899.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '95. Legacy
'90-'99, Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Impreza
'97, Isuzu pickup '91 o.fl.
Pallbíll
Ford F150 King Ranch nýir bílar
Verðsprengja í bílum frá USA.
Fengum viðbótarmagn af F150
King Ranch á ótrúlegu útsölu-
verði.
Upplýsingar á www.automax.is
og í síma 659 9427.