Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Page 16

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Page 16
ganga í nýjan hjúskap, heldur þurfi sérstakt leyfi til að koma. 1 kans.br. 23. des. 1806 segir og, að manni, sem sekur varð um hór með systur konu sinnar, sé kostur að sækja um leyfi til að giftast henni eftir lát konu sinnar. Um væntanleg úrslit þeirrar málaleitunar segir að vísu ekkert í þessu bréfi. 1 kans.br. 7. júní 1823 og 23. apríl 1833 er stjórnvöldum boðið að átelja presta fyrir þá hátt- semi þeirra að vígja menn, er sætt höfðu skilnaðardómi fyrir hór, án þess að sérstakt leyfi væri fengið til nýs hjú- skapar. 1 bréfi kirkju- og kennslumálaráðuneytisins 7. mai 1856 segir og, að G, sem fengið hafði almennt leyfi til að ganga í hjúskap eftir dóm, er hann hlaut fyrir hór- sök, mætti ekki samkvæmt þessu almenna leyfi ganga að eiga S, er hann hafði orðið brotlegur með, heldur þyrfti sérstakt leyfi til þess ráðahags. Þá má hér minna á lands- höfðbr. 16. jan. 1895 (nr. 3), sem áður er getið, þar sem segir svo, að hjúskapur sé sjálffallinn niður við það, er annar maki fremji tvíkvæni, sbr. N.L. 3-18-16-8, og þurfi hinn makinn, sem á er hallað, þá ekki leyfi til þess að ganga í nýjan hjúskap, er svo standi á. Þegar hjónaskilnaður varð fyrir önnur atvik en hórsök, mun það hafa verið svo í lagaframkvæmd frá siðskiptum, að sérstaks leyfis þyrfti til að stofna til nýs hjúskapar a. m. k. af hendi þess, er sök átti á skilnaðinum. Er að vísu ekki vikið beinlínis að þessu í kirkjuskipaninni 1537 né hjónabandsgreinunum frá 1587. 1 tilsk. 30. apríl 1824, 3. gr. 3 er hins vegar boðið, að gengið skyldi eftir sérstök- um skilríkjum frá þeim, sem skilinn var og efna vildi til nýs hjúskapar, fyrir því, að honum væri frjáls hjúskap- urinn. Stefnandi hjónaskilnaðarmáls gat jafnan haft uppi þá kröfu í málinu, að sér yrði dæmd heimild til að ganga að nýju í hjúskap. Ef dómurinn féllst á þá kröfu, var dóm- urinn að sjálfsögðu fullnægjandi skilríki í þessu sam- bandi. Gæta skyldi þó reglnanna i tilsk. 21. des. 1831, IV, er varða áfrýjun slíks máls. Stefndi gat hins vegar aldrei gert slíka kröfu i hjónaskilnaðarmálinu. Hann varð að 78

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.