Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Side 42

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Side 42
Gunnlaugur Þórðarson: „Hin hvíta bóku um aðgerðirnar frá 19. marz 1952. Að tilhlutan ríkisstjórnar Islands var, eins og kunnugt er gefin út á s.l. ári, svokölluð „hvít bók“ um aðgerðir ríkisstjórnarinnar frá 19. marz 1952 til verndar fiskistofn- inum og fleira varðandi það mál. Bók þessi er sérstæð að því leyti að hún er fyrsta ríkis- stjórnarútgáfa, sem kölluð er „hvít bók“, og fjallar auk þess um milliríkjamál. Árið 1931 var gefin út af tilhlutan ríkisstjórnar Islands: „Skýrsla um nokkrar framkvæmdir ríkisins 1927—1930“, sem alkunn er undir heitinu „Verkin tala“. Sennilega mætti telja hana fyrstu „hvítu bók“ ís- lenzkrar ríkisstjórnar. Það er ekki fátítt að ríkisstjórnir gefi út bækur, þ. e. skýrslur eða minnisgreinar, sem kenndar eru við tiltekin lit. Er þá jafnan m. a. gerð grein fyrir sjónarmiðum hlut- aðeigandi stjórnar og leitazt við að réttlæta gerðir hennar í því máli, sem á baugi er. 1 Bretlandi munu t. d. aðallega vera um tvenns konar bækur að ræða: „Hvítar bækur“, sem gefnar eru út af ríkisstjórninni, samkv. samþykkt brezka þingsins og „bláar bækur“, gefnar út einungis að tilhlutan rikisstjórnarinnar. 1 Frakklandi eru slíkar skýrsl- ur stjórnarvaldanna nefndar „gular bækur“. Þessi fyrsta „hvíta bók“ ber titilinn „The icelandic efforts for fisheries conservation", á íslenzku myndi það vera „Islenzku aðgerðirnar til varðveizlu fiskveiðanna". En bókin hefur ekki ennþá verið þýdd á íslenzku, sem þó hefði bæði mátt telja rétt og skylt, þar eð hún fjallar um þau mál, sem íslenzka þjóðin lætur sig miklu skipta og á rétt á að fylgjast með. Ekki hefur bókin heldur verið til 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.